29 janúar 2026

/

Dr. Sandra Ósk í hópi aðalhöfunda aðferðafræðiskýrslu IPCC

{image.Description}
Dr. Sandra Ósk Snæbjörnsdóttir

Dr. Sandra Ósk Snæbjörnsdóttir, sérfræðingur í umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu, hefur verið valin sem einn af aðalhöfundum nýrrar aðferðafræðiskýrslu Milliríkjanefndar Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar (IPCC), eftir tilnefningu frá landsnefnd um vísindastarf vegna loftslagsbreytinga.

Skýrslan mun fjalla um tæknilausnir sem gegna lykilhlutverki við að halda hlýnun jarðar innan 1.5°C og við mótun aðferðafræði, sem gerir kleift að meta árangur þeirra á gagnsæjan og sannprófanlegan hátt til stuðnings alþjóðlegum loftslagsmarkmiðum.

Sandra hefur unnið að rannsóknum tengdum geymslu koldíoxíðs í jarðlögum í rúman áratug og hefur birt fjölda vísindagreina um efnið, m.a. í vísindatímaritum á borð við Nature og Science.

Aðferðafræðiskýrslu IPCC er ætlað að uppfæra og styrkja vísindalegan grunn landlosunarbókhalds gróðurhúsalofttegunda og er sérstök áhersla lögð á kolefnisföngun, - nýtingu- og geymslu (e. carbon capture utilisation and storage) og kolefnisfjarlægingu (e. carbon dioxide removal). Er skýrslunni ætlað að nýtast ríkjum heims við samræmda skráningu, samanburð og eftirfylgni með aðgerðum á sviði tæknilausna í loftslagsmálum.

Gert er ráð fyrir að skýrsla IPCC verði gefin út fyrir árslok 2027.