29 janúar 2026

/

Mál nr. 727/2025-Úrskurður

 

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 727/2025

Fimmtudaginn 29. janúar 2025

A

gegn

Reykjavíkurborg

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur.

Með kæru, dags. 6. nóvember 2025, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála synjun Reykjavíkurborgar, dags. 5. nóvember 2025, á umsókn hennar um húsbúnaðarstyrk að fjárhæð 150.000 kr.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Með umsókn, dags. 26. september 2025, sótti kærandi um húsbúnaðarstyrk hjá Reykjavíkurborg að fjárhæð 150.000 kr. á grundvelli 19. gr. reglna Reykjavíkurborgar um fjárhagsaðstoð. Umsókn kæranda var synjað 27. október 2025 og staðfesti áfrýjunarnefnd velferðarráðs þá niðurstöðu með ákvörðun, dags. 5. nóvember 2025.

Kærandi lagði fram kæru hjá úrskurðarnefnd velferðarmála 6. nóvember 2025. Með bréfi, dags. 25. nóvember 2025, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Reykjavíkurborgar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Reykjavíkurborgar barst með bréfi, dags. 10. desember 2025, og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndarinnar, dags. 11. desember 2025. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Í kæru til úrskurðarnefndar kemur fram að kærandi hafi fengið ráðgjafa frá félagsþjónustunni heim til að athuga hvað hafi vantað í innbú hennar, sem hafi reynst vera töluvert af grunnatriðum. Kærandi ásamt ráðgjafa hafi gert lista yfir allt sem vanti t.d. sófa, blandara, hraðsuðuketil og brauðrist. Þá vanti eldhúsborð, stóla, könnur, ketil, diska, skálar, kaffibolla, potta og kjöthamar. Einnig vanti teppi, púða, rúmföt, sæng, kodda, rúmteppi, púða, lök á rúmið, ryksugu, kvörn, kaffivél, hrærivél, vigt og alls konar eldhúsdót.

III.  Sjónarmið Reykjavíkurborgar

Í greinargerð Reykjavíkurborgar kemur fram að kærandi sé X árs gömul kona sem eigi tvö börn. Hún þiggi örorkulífeyri frá Tryggingastofnun sér til framfærslu og búi í almennu leiguhúsnæði. Kærandi eigi sögu um félagslega erfiðleika og sé greind með vefjagigt, geðhvörf og áfallastreituröskun. Kærandi hafi greinst með krabbamein árið 2024 og hafi verið í eftirfylgd á Landspítala síðan þá. Nýverið hafi hún slitið sambandi við mann sem hafi beitt hana ofbeldi og sé nú hjá B í endurhæfingu. Við sambandsslitin hafi húsgögn og húsbúnaður orðið eftir og því hafi kærandi sótt um húsbúnaðarstyrk þann 26. september 2025, að upphæð 150.000 kr. skv. 19. gr. reglna Reykjavíkurborgar um fjárhagsaðstoð til að kaupa húsbúnað. Umsókn kæranda um húsbúnaðarstyrk hafi verið synjað með bréfi, dags. 27. október 2025, á Vesturmiðstöð. Kærandi hafi skotið þeirri ákvörðun áfrýjunarnefndar velferðarráðs Reykjavíkurborgar sem hafi tekið málið fyrir á fundi sínum þann 5. nóvember 2025 og hafi afgreitt það með eftirfarandi bókun:

„Áfrýjunarnefnd velferðarráðs staðfesti synjun starfsmanna á Vesturmiðstöð Reykjavíkurborgar um húsbúnaðarstyrk að upphæð kr. 150.00. – skv. 19. gr. reglna Reykjavíkurborgar um fjárhagsaðstoð.“

Núgildandi reglur um fjárhagsaðstoð frá Reykjavíkurborg með áorðnum breytingum hafi tekið gildi þann 1. apríl 2021 og verið samþykktar á fundi velferðarráðs Reykjavíkurborgar þann 24. febrúar 2021 og á fundi borgarráðs þann 4. mars 2021. Umræddar reglur séu settar á grundvelli 21. gr. laga nr. 40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga. Litið sé svo á að fjárhagsaðstoð til framfærslu frá sveitarfélagi sé neyðaraðstoð sem ekki beri að veita nema engar aðrar bjargir séu fyrir hendi. Í 1. gr. reglnanna komi fram að skylt sé að veita fjárhagsaðstoð til framfærslu einstaklinga og fjölskyldna sem ekki geti séð sér og sínum farborða án aðstoðar, sbr. IV. og VI. kafla laga nr. 40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga, með síðari breytingum, sbr. og III. kafla reglnanna. Um fjárhagsaðstoð til framfærslu frá Reykjavíkurborg gildi sú meginregla að umsækjandi fái einungis greidda fjárhagsaðstoð til framfærslu ef hann geti ekki framfleytt sér. Umrædd meginregla eigi sér stoð í 2. gr. reglna um fjárhagsaðstoð, sbr. 19. gr. laga nr. 40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga, sem kveði meðal annars á um skyldu hvers og eins að framfæra sjálfan sig, maka sinn og börn yngri en 18 ára.

Í 19. gr. reglna Reykjavíkurborgar um fjárhagsaðstoð sé fjallað um styrk vegna húsbúnaðar. Samkvæmt greininni sé fjárhagsaðstoð til kaupa á húsbúnaði heimil í eftirfarandi tilvikum:

  1. Til einstaklings sem fær fjárhagsaðstoð til framfærslu samkvæmt reglum þessum er eignalaus og er að stofna heimili eftir a.m.k. tveggja ára dvöl á stofnun.
  2. Til ungs fólks á aldrinum 18–24 ára, sem er eignalaus, fær fjárhagsaðstoð til framfærslu samkvæmt reglum þessum, hefur átt í miklum félagslegum erfiðleikum og er að stofna heimili í fyrsta sinn.
  3. Þegar rýma þarf íbúð af heilbrigðisástæðum.
  4. Þegar um er að ræða einstaklinga/hjón/sambúðarfólk sem eiga í félagslegum erfiðleikum og þurfa aðstoð vegna kaupa á nauðsynlegum heimilistækjum. Skilyrði er að viðkomandi hafi fengið fjárhagsaðstoð til framfærslu samkvæmt reglum þessum

    síðastliðna þrjá mánuði.

  5. Til einstaklings sem er eignalaus, er að stofna heimili í fyrsta sinn eða að nýju og hefur átt í miklum og langvarandi félagslegum erfiðleikum, auk þess að vera í eða hafa nýlokið endurhæfingu.
  6. Til einstaklings sem er að stofna heimili, er með miklar og flóknar þjónustuþarfir og hefur verið heimilislaus.

Viðmiðunarmörk aðstoðar séu allt að 150.000 kr. Greitt sé gegn framvísun sundurliðaðra greiðslukvittana. Þá greiðist húsbúnaðarstyrkir einu sinni og gildistími umsóknar sé þrír mánuðir frá samþykkisdegi.

Ljóst sé að kærandi uppfylli ekki framangreind skilyrði hvað varði greiðslu styrks til kaupa á húsbúnaði. Kærandi uppfylli ekki skilyrði a., b. og d. liða reglnanna um að hafa fengið fjárhagsaðstoð til framfærslu en samkvæmt upplýsingum sem hafi legið fyrir áfrýjunarnefnd velferðarráðs fái kærandi greiddan örorkulífeyri frá Tryggingastofnun. Kærandi uppfylli því ekki skilyrði d. liðar 19. gr. um að hafa fengið fjárhagsaðstoð til framfærslu samkvæmt reglunum síðastliðna þrjá mánuði.

Þá liggi fyrir að kærandi búi í almennu leiguhúsnæði. Því sé ekki unnt að líta svo á að skilyrði a. liðar 19. gr. um að minnsta kosti tveggja ára dvöl á stofnun sé uppfyllt. Þá eigi b. og c. liðir reglnanna ekki við um tilvik kæranda. Ekki sé unnt að líta svo á að e. liður reglnanna sé uppfylltur þar sem kærandi sé ekki að stofna heimili í fyrsta sinn og hún sé ekki eignalaus. Þá eigi f. liður ekki við um tilvik kæranda þar sem hún sé hvorki með miklar og flóknar þjónustuþarfir né hafi hún verið heimilislaus. Þá hafi kærandi fengið húsbúnaðarstyrk að upphæð 100.000 kr. skv. 19. gr. reglna í nóvember 2023 og uppfylli því ekki heldur skilyrði 3. mgr. 19. gr. reglna um fjárhagsaðstoð.

Af framangreindum ástæðum hafi áfrýjunarnefnd velferðarráðs því talið að synja bæri kæranda um umbeðinn styrk og staðfest synjun starfsmanna Vesturmiðstöðvar um húsbúnaðarstyrk að upphæð 150.000 kr. samkvæmt 19. gr. reglna um fjárhagsaðstoð frá Reykjavíkurborg.

Samkvæmt framansögðu sé ljóst að ákvörðun áfrýjunarnefndar velferðarráðs Reykjavíkurborgar hafi hvorki brotið gegn fyrrgreindum reglum um fjárhagsaðstoð, sbr. 21. gr. laga nr. 40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga, né öðrum ákvæðum laganna, stjórnsýslulögum nr. 37/1993 eða fleiri lögum.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Reykjavíkurborgar um að synja umsókn kæranda um húsbúnaðarstyrk að fjárhæð 150.000 kr.

Markmið félagsþjónustu á vegum sveitarfélaga er að tryggja fjárhagslegt og félagslegt öryggi og stuðla að velferð íbúa á grundvelli samhjálpar, sbr. 1. mgr. 1. gr. laga nr. 40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga. Samkvæmt 2. mgr. 1. gr. laganna skal þess gætt við framkvæmd félagsþjónustunnar að hvetja einstaklinginn til ábyrgðar á sjálfum sér og öðrum, virða sjálfsákvörðunarrétt hans og styrkja hann til sjálfshjálpar. Um leið skulu við framkvæmd félagsþjónustunnar sköpuð skilyrði til að einstaklingurinn geti tekið virkan þátt í samfélaginu á eigin forsendum. Félagsleg þjónusta skuli í heild sinni miða að valdeflingu og miðast við einstaklingsbundnar þarfir og aðstæður. Með félagsþjónustu er átt við þjónustu, aðstoð og ráðgjöf, meðal annars í tengslum við fjárhagsaðstoð, sbr. 1. mgr. 2. gr.

Í 1. mgr. 12. gr. laganna kemur fram að sveitarfélag skuli sjá um að veita íbúum þjónustu og aðstoð samkvæmt lögunum og jafnframt tryggja að þeir geti séð fyrir sér og sínum. Þá segir í 2. mgr. 12. gr. að aðstoð og þjónusta skuli jöfnum höndum vera til þess fallin að bæta úr vanda og koma í veg fyrir að einstaklingar og fjölskyldur komist í þá aðstöðu að geta ekki ráðið fram úr málum sínum sjálf. Í athugasemdum með ákvæði 12. gr. í frumvarpi til laga nr. 40/1991 kemur fram að skyldur sveitarfélaga miðist annars vegar við að veita þjónustu og aðstoð samkvæmt lögunum og hins vegar að tryggja að íbúar geti séð fyrir sér og fjölskyldum sínum.

Í VI. kafla laga nr. 40/1991 er kveðið á um fjárhagsaðstoð en í 19. gr. laganna kemur fram sú grundvallarregla að hverjum manni sé skylt að framfæra sjálfan sig, maka sinn og börn yngri en 18 ára. Samkvæmt 21. gr. laganna skal sveitarstjórn setja reglur um framkvæmd fjárhagsaðstoðar að fengnum tillögum félagsmálanefndar er metur þörf og ákveður fjárhagsaðstoð til einstaklinga í samræmi við reglur sveitarstjórnar, sbr. 2. mgr. sömu greinar. Lög nr. 40/1991 veita þannig sveitarfélögum ákveðið svigrúm til útfærslu á fjárhagsaðstoð til einstaklinga. Í samræmi við það og ákvæði stjórnarskrárinnar um sjálfstjórn sveitarfélaga er mat á þeirri útfærslu að meginstefnu til lagt í hendur hverrar sveitarstjórnar er þjónustuna veitir. Verður ekki við því mati hróflað af hálfu úrskurðarnefndar velferðarmála, svo fremi sem það byggi á lögmætum sjónarmiðum og sé í samræmi við lög að öðru leyti.

Í 1. gr. reglna um fjárhagsaðstoð frá Reykjavíkurborg er kveðið á um lagagrundvöll fjárhagsaðstoðar. Þar kemur fram í 1. mgr. að skylt sé að veita fjárhagsaðstoð til framfærslu einstaklinga og fjölskyldna sem ekki geta séð sér og sínum farborða án aðstoðar. Í 2. gr. reglnanna kemur einnig fram sama grundvallarregla og í 19. gr. laga nr. 40/1991 að hverjum manni sé skylt að framfæra sjálfan sig, maka sinn og börn yngri en 18 ára.

Í 19. gr. reglna um fjárhagsaðstoð frá Reykjavíkurborg er kveðið á um styrk vegna húsbúnaðar. Þar segir að fjárhagsaðstoð til kaupa á húsbúnaði sé heimil í eftirfarandi tilvikum:

  1. Til einstaklings sem fær fjárhagsaðstoð til framfærslu samkvæmt reglum þessum er eignalaus og er að stofna heimili eftir a.m.k. tveggja ára dvöl á stofnun.
  2. Til ungs fólks á aldrinum 18–24 ára, sem er eignalaus, fær fjárhagsaðstoð til framfærslu samkvæmt reglum þessum, hefur átt í miklum félagslegum erfiðleikum og er að stofna heimili í fyrsta sinn.
  3. Þegar rýma þarf íbúð af heilbrigðisástæðum.
  4. Þegar um er að ræða einstaklinga/hjón/sambúðarfólk sem eiga í félagslegum erfiðleikum og þurfa aðstoð vegna kaupa á nauðsynlegum heimilistækjum. Skilyrði er að viðkomandi hafi fengið fjárhagsaðstoð til framfærslu samkvæmt reglum þessum síðastliðna þrjá mánuði.
  5. Til einstaklings sem er eignalaus, er að stofna heimili í fyrsta sinn eða að nýju og hefur átt í miklum og langvarandi félagslegum erfiðleikum, auk þess að vera í eða hafa nýlokið endurhæfingu.
  6. Til einstaklings sem er að stofna heimili, er með miklar og flóknar þjónustuþarfir og hefur verið heimilislaus.

Samkvæmt 2. mgr. 19. gr. eru viðmiðunarmörk aðstoðar allt að 150.000 kr. og greitt er gegn framvísun sundurliðaðra greiðslukvittana. Þá segir í 3. mgr. ákvæðisins að húsbúnaðarstyrkir greiðist einu sinni og samkvæmt 4. mgr. ákvæðisins er gildistími umsókna þrír mánuðir frá samþykkisdegi.

Ljóst er að kærandi uppfyllir ekki ákvæði a. til e. liða reglnanna þar sem hún hefur ekki þegið fjárhagsaðstoð til framfærslu og var ekki nýlega að ljúka endurhæfingu. Þá liggja engin gögn fyrir því til stuðnings að kærandi hafi verið að rýma íbúð af heilbrigðisástæðum og er því ekki haldið fram. Að lokum bera gögn málsins ekki með sér að kærandi sé með miklar og flóknar þjónustuþarfir né að hún hafi verið heimilislaus og því er ákvæði f. liðar 19. gr. framangreindra reglna ekki heldur uppfyllt. Fyrir liggur að kærandi fékk húsbúnaðarstyrk í nóvember 2023 að upphæð 100.000 kr. skv. 19. gr. og uppfyllir hún því ekki skilyrði 3. mgr. 19. gr. reglna um fjárhagsaðstoð.

Með vísan til framangreinds er ákvörðun Reykjavíkurborgar um að synja umsókn kæranda um húsbúnaðarstyrk staðfest.


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Reykjavíkurborgar, dags. 5. nóvember 2025, um að synja umsókn A, um húsbúnaðarstyrk að fjárhæð 150.000 kr., er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir