29 janúar 2026
/
Úrskurður nr. 42/2026
Hinn
úrskurður nr. 42/2026
í stjórnsýslumáli nr. KNU25090177
Kæra [...]
I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild
Hinn 25. september 2025 kærði [...], fd. [...], ríkisborgari Albaníu (hér eftir kærandi), ákvörðun Lögreglustjórans á Suðurnesjum, dags. 24. september 2025, um frávísun frá Íslandi.
Kærandi krefst þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi.
Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.
Lagagrundvöllur
Í máli þessu koma einkum til skoðunar ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016 ásamt síðari breytingum, reglugerð um útlendinga nr. 540/2017 ásamt síðari breytingum, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, ákvæði laga um landamæri nr. 136/2022, reglugerð um för yfir landamæri nr. 866/2017, reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins 2016/399 um för yfir landamæri (Schengen-landamærareglurnar), stjórnarskrá lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944, mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, auk annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.
II. Málsatvik og málsmeðferð
Í hinni kærðu ákvörðun kemur fram að kæranda hafi verið frávísað frá Íslandi á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga. Í viðbótarathugasemdum sem fylgdu ákvörðuninni er einungis vísað í lagaákvæðið.
Samkvæmt samantekt lögreglu, dags. 27. september 2025, hafði lögregla afskipti af kæranda við almennt löggæslueftirlit á Keflavíkurflugvelli. Vegna tungumálaörðugleika hafi kæranda verið boðið í aðstöðu lögreglu til frekari viðræðna. Í aðstöðu lögreglu var kæranda kynntur réttur sinn til að leita sér aðstoðar lögmanns á eigin kostnað samkvæmt 11. gr. laga um útlendinga. Aðspurður hafi kærandi viljað skoða kirkju í miðbænum, heimsækja Bláa Lónið og Sky Lagoon, og fara í hvalaskoðun. Aðspurður um hvaða kirkju hann hafi viljað skoða kvaðst kærandi hvorki þekkja nafnið á henni né getað greint frá staðsetningu hennar. Hann hafi einnig ætlað að taka myndir af umræddri kirkju, í Bláa Lóninu og Sky Lagoon. Kærandi kvaðst hvorki hafa bókað sér miða í Bláa Lónið né vita hvar Lónið væri. Kærandi hefði þó pakkað sundfatnaði. Kærandi kvaðst heldur ekki hafa bókað miða í Sky Lagoon og gat ekki greint lögreglu frá því hvar ferðamannastaðurinn væri. Þá hafi hann viljað fara í hvalaskoðun en hafði heldur ekki bókað miða í hvalaskoðun. Aðspurður gat kærandi ekki greint lögreglu frá því hvernig hvalaskoðun færi fram.
Kærandi greindi lögreglu frá gistibókun til tveggja nátta á tilteknu gistiheimili. Aðspurður kvaðst kærandi hvorki vita hvar gististaðurinn væri né hversu lengi það tæki að komast þangað. Kærandi hafi framvísað 1.400 evrum í reiðufé en auk þess kvaðst hann hafa greiðslukort undir höndum en væri óviss um innstæðu á kortinu. Kærandi kvaðst munu ferðast á milli staða með rútu. Þar sem kærandi hafði greint lögreglu frá því að vita ekki hvar ferðamannastaðirnir sem hann hugðist heimsækja væru breytti hann framburði sínum og kvaðst ætla að taka leigubíl á milli staða. Aðspurður hafi kærandi þó ekki vitað hversu mikið leigubíll kostaði, hann myndi greiða það sem þyrfti að greiða til þess að komast á milli staða.
Aðspurður kvaðst kærandi ekki þekkja neinn á Íslandi. Hann hafi fengið útgefið vegabréf í júní 2025 og greindi lögreglu frá því að eldra vegabréf hefði runnið út. Að sögn kæranda hafi faðir hans bókað og borgað flugmiða og gistingu með atbeina tiltekinnar ferðaskrifstofu. Kærandi kvaðst starfa við landbúnað í heimaríki. Hann hafi þó ekki sýnt fram á launaseðla eða annað sem staðfesti atvinnu hans. Kærandi hafi sýnt lögreglu myndbönd sem tengdust dýrahaldi. Aðspurður um aðra einstaklinga sem tengdust flugbókun kæranda kvaðst kærandi ekki þekkja umrædda aðila.
Í kjölfarið hafi lögregla tekið ákvörðun um að frávísa kæranda á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga. Lögregla hafi ítrekað rétt kæranda í samræmi við 11. gr. laga um útlendinga. Kæranda hafi verið gert að halda sig á lokuðu svæði innan flugvallarins. Samkvæmt samantekt lögreglu hafi kærandi sýnt ógnandi tilburði við birtingu ákvörðunarinnar.
Kærandi kærði ákvörðun Lögreglustjórans á Suðurnesjum til kærunefndar útlendingamála 25. september 2025. Hinn 29. september 2025 var kæranda skipaður talsmaður samkvæmt 3. mgr. 13. gr. laga um útlendinga. Greinargerð kæranda barst 30. september 2025. Gögn frá lögreglu vegna málsins bárust kærunefnd 20. október 2025.
III. Málsástæður og rök kæranda
Í greinargerð kæranda kemur fram að hann hafi komið til landsins með flugi frá Mílanó, Ítalíu. Lögregla hafi haft afskipti af honum og spurt út í tilgang ferðar hans. Kærandi vísar til þess að ákvörðun um frávísun hafi verið tekin 24 mínútum eftir lendingu en ákvörðun ekki verið birt fyrr en síðar. Tímasetning birtingar sem ákvörðunin tilgreini sé röng. Við birtingu hafi kæranda fyrst verið kynntur réttur sinn til aðstoðar lögmanns.
Kærandi byggir á því að hafa gefið upp lögmætan tilgang í skilningi c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga með framvísun gagna í samræmi við 5. gr. reglugerðar nr. 866/2017. Þegar litið sé til gagna málsins, m.a. með vísan til tímalengdar fyrirhugaðrar dvalar kæranda hér á landi og að ekkert bendi til þess að hann hafi áður komið við sögu hjá lögreglu, dvalið hér á landi með ólögmætum hætti eða stundað ólögmæta atvinnu, verði ekki talið að tilefni hafi verið til að gera strangari kröfur til framlagningar gagna eða trúverðugleika framburðar kæranda. Kærandi byggir á því að ekkert í gögnum málsins bendi til þess að tilgangur dvalar sé annar en framburðurinn hafi borið með sér. Á hinn bóginn sé ljóst að embætti Lögreglustjórans á Suðurnesjum hafi ekki lagt skýringar kæranda til grundvallar við töku hinnar kærðu ákvörðunar enda hafði embættið þegar ákveðið að frávísa kæranda. Telur kærandi að lögregla hafi með þessu brotið gegn meginreglum stjórnsýsluréttar um réttmæti og lögmæti stjórnvaldsákvarðana. Því sé haldið fram af hálfu kæranda að brot gegn framangreindum reglum teljist til verulegs efnislegs annmarka á stjórnvaldsákvörðun og sé hún því ógildanleg.
Að auki er byggt á því að brotið hafi verið gegn meðalhófsreglu 12. gr. stjórnsýsluréttar um markhæfni, þar sem ákvörðunin falli ekki að markmiðum 106. gr. laga um útlendinga. Vísar kærandi til þess að markmiðið sé að koma í veg fyrir að einstaklingar komi til landsins á fölskum forsendum með það fyrir augum að dvelja og vinna án leyfis. Ekkert í gögnum málsins bendi til þess að kærandi hafi komið í öðrum tilgangi en sem ferðamaður.
Kærandi byggir á verulegum málsmeðferðarannmörkum. Með þeirri háttsemi að taka ákvörðun um leið og afskipti voru höfð af kæranda, mörgum klukkutímum áður en farið var í að rannsaka tilgang komu kæranda til landsins hafi hann verið sviptur öllum tækifærum til að gæta hagsmuna sinna. Málsmeðferðin hafi því farið fram án hans vitundar og aðkomu sem sé skýrt brot gegn grundvallarreglum stjórnsýsluréttar. Með háttseminni hafi lögregla brotið gegn leiðbeiningarskyldu sinni, sbr. 7. gr. stjórnsýslulaga, sem leggi skyldu á stjórnvöld að leiðbeina um þau gögn sem skorti og þær réttarheimildir sem eigi undir. Hafi embætti lögreglu einnig girt fyrir að kærandi fengi að njóta andmælaréttar síns samkvæmt 13. gr. stjórnsýslulaga og 12. gr. laga um útlendinga.
Framangreindu til viðbótar byggir kærandi á því að lögregla hafi brotið gegn þeirri sértæku leiðbeiningarskyldu sem 11. gr. laga um útlendinga kveður á um. Samkvæmt ákvæðinu skuli útlendingi þegar í upphafi frávísunarmáls leiðbeint um réttindi sín og málsmeðferð á tungumáli sem með sanngirni megi ætla að hann skilji. Kærandi vísar til tiltekinna úrskurða máli sínu til stuðnings. Auk þess hafi lögregla alfarið virt rannsóknarreglu 10. gr. stjórnsýslulaga að vettugi enda kveði reglan á um skyldu stjórnvalda til að rannsaka mál áður en ákvörðun sé tekin.
Kærandi byggir á því að ákvörðunin hafi hvorki innihaldið efnislegan rökstuðning né hafi kæranda verið leiðbeint um rétt sinn til að óska eftir rökstuðningi, sbr. 20. til 22. gr. stjórnsýslulaga. Annmarkinn sé augljós afleiðing þess að ákvörðun hafi verið tekin fyrir skýrslutöku af kæranda. Skortur á efnislegum rökstuðningi styðji þá málsástæðu kæranda að hin kærða ákvörðun sé geðþóttaákvörðun fremur en ígrunduð stjórnvaldsákvörðun.
Kærandi geri athugasemdir við birtingu hinnar kærðu ákvörðunar um frávísun. Eins og áður greinir mótmælir kærandi því sem fram komi í gögnum málsins, þ.e. að birting hafi farið fram sama dag og lögregla tók hina kærðu ákvörðun. Kærandi árétti að birtingin hafi farið fram degi síðar, að morgni 25. september 2025. Með því að skrá ranga tímasetningu hafi embætti lögreglu brotið gegn meginreglu stjórnsýsluréttar um góða og vandaða stjórnsýsluhætti.
Að lokum byggi kærandi á því að hafa orðið fyrir mismunun á grundvelli þjóðernis sem brjóti gegn 65. gr. stjórnarskrárinnar, 11. gr. stjórnsýslulaga og 14. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Vísar kærandi til þess að ákvörðun sem tekin hafi verið, áður en nokkur samskipti hafi átt sér stað milli kæranda og lögreglu, sýni ótvírætt að grundvöllur ákvörðunarinnar sé þjóðerni kæranda en ekki einstaklingsbundið mat. Þar sem ákvörðun um frávísun sé ógildanleg byggir kærandi á því að lögreglu hafi ekki verið heimilt að setja hann í tilkynningarskyldu á flugvellinum, sbr. g-lið 1. mgr. 114. gr. laga um útlendinga og 15. gr. laga um landamæri.
IV. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála
Samkvæmt 1. mgr. 49. gr. laga um útlendinga er útlendingi, sem ekki þarf vegabréfsáritun til landgöngu, heimilt að dveljast hér á landi í 90 daga frá komu til landsins. Dvöl í öðru ríki sem tekur þátt í Schengen-samstarfinu telst jafngilda dvöl hér á landi. Kærandi er ríkisborgari Albaníu og þarf því ekki vegabréfsáritun til landgöngu hér á landi, enda sé hann handhafi vegabréfs með lífkennum.
Ákvörðun Lögreglustjórans á Suðurnesjum um frávísun kæranda, dags. 24. september 2025, byggir á c-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. reglugerð um för yfir landamæri nr. 866/2017.
Í 106. gr. laga um útlendinga er kveðið á um frávísun við komu til landsins. Samkvæmt ákvæðinu er m.a. heimilt að vísa útlendingi frá landi við komu til landsins eða allt að sjö sólarhringum frá komu þegar hann hefur ekki tilskilið leyfi til dvalar eða vinnu eða getur ekki leitt líkur að þeim tilgangi sem gefinn er upp fyrir dvölinni, sbr. c-lið ákvæðisins. Í greinargerð með frumvarpi því sem varð að gildandi lögum um útlendinga segir m.a. að ákvæði c-liðar mæli fyrir um að heimilt sé að vísa útlendingi frá landi ef hann geti ekki leitt líkur að þeim tilgangi sem gefinn sé upp fyrir dvölinni. Sé ákvæðið efnislega samhljóða c-lið 1. mgr. 5. gr. reglugerðar (EB) nr. 562/2006 um för fólks yfir landamæri (Schengen landamærareglurnar). Þá er í greinargerðinni vísað til 5. gr. reglugerðar um för yfir landamæri nr. 866/2017. Samkvæmt 5. mgr. 106. gr. laga um útlendinga er heimilt að vísa útlendingi frá landi eftir reglum 1. mgr. þótt sjö sólarhringa fresturinn sé liðinn. Þó verður meðferð máls að hefjast innan níu mánaða frá komu hans til landsins. Samkvæmt 1. mgr. 106. gr. a laga um útlendinga tekur lögreglustjóri ákvörðun um frávísun við komu til landsins samkvæmt 1. mgr. 106. gr. laganna. Útlendingastofnun tekur ákvörðun um frávísun eftir komu til landsins og aðrar ákvarðanir samkvæmt XII. kafla laganna.
Með reglugerð nr. 866/2017 um för yfir landamæri voru innleidd ákvæði reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 2016/399 um setningu sambandsreglna um för fólks yfir landamæri (e. Schengen Borders Code) og tók reglugerðin við af áðurnefndri reglugerð nr. 562/2006. Í 5. gr. reglugerðar nr. 866/2017 er mælt fyrir um skilyrði fyrir komu útlendinga til landsins sem hvorki eru EES- né EFTA borgarar. Kemur þar fram að útlendingur sem hvorki er EES- né EFTA-borgari, sem hyggst dvelja á Schengen-svæðinu, þ.m.t. Íslandi, í allt að 90 daga á 180 daga tímabili verði, auk þeirra skilyrða sem koma fram í 106. gr. laga um útlendinga, að uppfylla þau skilyrði sem fram koma í a- til e-liðum ákvæðisins. Eru skilyrðin eftirfarandi: Að framvísa gildum, lögmætum og ófölsuðum ferðaskilríkjum eða öðru kennivottorði sem heimilar honum för yfir landamæri, sbr. viðauka 3. Ferðaskilríki skal vera gefið út á sl. 10 árum til þess að það teljist gilt og gildistími ferðaskilríkis vera í a.m.k. þrjá mánuði umfram brottfarardag, sbr. a-lið. Hafa gilda vegabréfsáritun sé hann ekki undanþeginn áritunarskyldu, nema hann hafi gilt dvalarleyfi eða gilda vegabréfsáritun til langs tíma, sbr. viðeigandi viðauka í reglugerð um vegabréfsáritanir, sbr. b-lið. Má ekki vera skráður í Schengen-upplýsingakerfið í þeim tilgangi að meina honum komu til landsins, sbr. c-lið. Má ekki vera talinn ógna þjóðaröryggi, allsherjarreglu, almannaheilsu eða alþjóðasamskiptum ríkisins eða annars Schengen-ríkis, sbr. d-lið. Loks þarf viðkomandi að geta fært rök fyrir tilgangi og skilyrðum fyrirhugaðrar dvalar, og hafa nægt fé sér til framfærslu, á meðan dvöl stendur og vegna ferðar til upprunalands eða gegnumferðar til þriðja lands, eða vera í aðstöðu til að útvega sér slíkt fé á lögmætan hátt, sbr. e-lið.
Til sönnunar á að framangreindum skilyrðum 5. gr. reglugerðarinnar fyrir komu sé fullnægt sé landamæraverði m.a. heimilt að krefja útlending samkvæmt 1. mgr. um eftirfarandi gögn vegna ferðalaga af persónulegum ástæðum: Gögn sem sýna fram á tryggt húsnæði, t.d. boðsbréf frá gestgjafa eða önnur gögn sem sýna fram á hvar viðkomandi hyggst búa, gögn sem staðfesta ferðaáætlun, staðfesting bókunar á skipulagðri ferð eða önnur gögn sem varpa ljósi á fyrirhugaða ferðaáætlun og gögn varðandi heimferð, s.s. farmiða.
Samkvæmt gögnum málsins greindi kærandi lögreglu frá því að hann myndi dvelja hér á landi í þrjá daga frá 24. til 26. september 2025. Kærandi hafi sýnt fram á flugmiða úr landi 26. september s.á. og bókun fyrir gistingu fyrir tímabilið. Hafi lögregla fengið gistibókun kæranda staðfesta en ekkert í samantektinni bendir til þess að lögregla hafi dregið flugbókun kæranda í efa. Í samantekt lögreglu kemur fram að kærandi hafi m.a. ætlað að fara í Bláa Lónið, Sky Lagoon, hvalaskoðun og skoða tiltekna kirkju í miðbænum. Kærandi hafi þó ekki getað nefnt kirkjuna né hafi hann vitað hvar Bláa Lónið og Sky Lagoon væri að finna. Fram kemur að kærandi hafi ekki framvísað bókunum fyrir ferðamannaafþreyingu. Í fyrstu kvaðst kærandi ætla að ferðast um með rútum en nánar aðspurður hafi kærandi breytt framburði sínum á þá leið að hann myndi ferðast með leigubílum. Þá hafi kærandi framvísað nægu fjármagni fyrir dvöl sinni. Samkvæmt framangreindu hefur kærandi lagt fram viðhlítandi gögn með vísan til 5. gr. reglugerðar um för yfir landamæri.
Þegar litið er til gagna málsins, m.a. með vísan til tímalengdar fyrirhugaðrar dvalar kæranda hér á landi og þess að ekkert bendi til þess að hann hafi áður komið við sögu hjá lögreglu, dvalið hér á landi með ólögmætum hætti eða stundað ólögmæta atvinnu, verður ekki talið að tilefni hafi verið til að gera strangari kröfur til framlagningar gagna eða trúverðugleika framburðar kæranda. Þá er ekkert í gögnum málsins sem bendir til þess að tilgangur dvalar kæranda hér á landi hafi verið annar en framburðurinn ber með sér. Áréttast í þessu sambandi að ákvörðun um frávísun er íþyngjandi stjórnvaldsákvörðun og ber að túlka vafa aðilanum í hag.
Að virtum gögnum málsins hefur kærandi lagt fram fullnægjandi gögn með vísan til 5. gr. reglugerðar um för yfir landamæri. Að framangreindu virtu hefur kærandi leitt nægar líkur að á þeim tilgangi sem hann hafi gefið upp fyrir dvöl sinni hér á landi og eru skilyrði til frávísunar, sbr. c-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, því ekki uppfyllt. Er hin kærða ákvörðun því felld úr gildi.
Í ljósi þess að kærandi hefur fengið meginkröfu sína uppfyllta er ekki tilefni til þess að fjalla um aðrar málsástæður hans í úrskurði þessum.
Skylda kæranda til að dveljast á tilteknum stað
Í greinargerð kæranda er gerð krafa þess efnis að felld verði úr gildi ákvörðun lögreglu um að gera kæranda að halda sig á ákveðnum stað á grundvelli 15. gr. laga um landamæri nr. 136/2022, sbr. g-lið 1. mgr. 114. gr. laga um útlendinga. Endurskoðun á ákvörðunum lögreglu sem teknar eru á grundvelli 114. gr. laga um útlendinga er á höndum dómstóla en ekki kærunefndar útlendingamála. Verður þeim hluta málsins því vísað frá kærunefnd.
Athugasemdir við störf lögreglu
Hin kærða ákvörðun fjallar um réttindi og skyldur kæranda í skilningi 2. mgr. 1. gr. stjórnsýslulaga. Í ákvörðuninni kemur fram að kæranda væri vísað frá landinu á þeim lagagrundvelli sem hér hefur verið fjallað um að framan. Að öðru leyti kom ekki fram í ákvörðuninni hvaða atvik er vörðuðu kæranda hefðu leitt til þeirrar niðurstöðu eða þau meginsjónarmið sem voru ráðandi við töku ákvörðunarinnar að undanskilinni athugasemd í ákvörðun þar sem vísað er orðrétt til þess hluta c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga sem málið varðaði. Er sú athugasemd með öllu ófullnægjandi og ekki til þess fallin að greina nánar frá þeim meginsjónarmiðum sem voru ráðandi við mat lögreglu eða gera kæranda kleift að meta réttarstöðu sína. Verður því að líta svo á að hinni kærðu ákvörðun hafi ekki fylgt rökstuðningur í skilningi 22. gr. stjórnsýslulaga. Bar því að leiðbeina kæranda um þá heimild sína samkvæmt 21. gr. stjórnsýslulaga að fá slíkan rökstuðning eftir á. Í hinni kærðu ákvörðun var ekki fyrir að finna slíkar leiðbeiningar. Að þessu leyti var hin kærða ákvörðun ekki í samræmi við 2. mgr. 20. gr. stjórnsýslulaga. Er gerð athugasemd við framangreint í hinni kærðu ákvörðun.
Úrskurðarorð:
Ákvörðun Lögreglustjórans á Suðurnesjum er felld úr gildi.
The decision of the Police Commissioner of Suðurnes District is vacated.