30 janúar 2026
/
Ný heildarlög um leiðarmerki og öryggi siglinga kynnt í samráðsgátt
Í samráðsgátt stjórnvalda hafa verið birt drög að nýjum heildarlögum um leiðarmerki og öryggi siglinga sem eiga að koma í stað laga um vitamál (nr. 132/1999). Markmiðið er að tryggja öruggar og greiðar siglingar við Ísland með notkun vita og annarra leiðarmerkja. Ráðuneytið vann frumvarpsdrögin í nánu samráði við Landhelgisgæslu Íslands, Samgöngustofu og Vegagerðina.
Allir hafa tækifæri til að senda inn umsögn eða ábendingar um frumvarpsdrögin en frestur er til og með 8. febrúar 2026.
Með frumvarpinu er ætlunin að einfalda rekstur leiðbeiningakerfa siglinga á Íslandi og skýra skiptingu verkefna milli aðila til að mynda samhljóm við aðra málaflokka samgangna án þess að dregið sé úr kröfum um öryggi. Jafnframt verði tryggt að Ísland uppfylli alþjóðlegar skuldbindingar sínar í málaflokknum.
Í frumvarpinu er kynnt nýtt ákvæði sem fjallar sérstaklega um áhættumat siglinga en kallað hefur verið eftir lagabreytingum til að tryggja lagastoð fyrir slíku áhættumati og skýra betur framkvæmd þess. Í ákvæðinu er einnig að finna heimild fyrir ráðherra til að setja reglugerð með nánari ákvæðum um áhættumat siglinga.
Með því verður tryggt að mannvirki séu ekki reist í eða á hafi nema áhættumat siglinga, og þær mildunaraðgerðir sem áhættumatið kveður á um, hafi verið framkvæmt.