30 janúar 2026
/
Óskað eftir tilefningum til landbúnaðarverðlauna 2026
Óskað er eftir tilnefningum til landbúnaðarverðlauna atvinnuvegaráðuneytisins sem Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra veitir í tengslum við Búnaðarþing.
Öllum er frjálst að senda inn tilnefningar um bændabýli eða önnur landbúnaðarfyrirtæki og félög sem talin eru hafa verið til fyrirmyndar að einhverju leyti í íslenskum landbúnaði á síðasta ári.
Stutt greinargerð skal fylgja með tilnefningu þar sem fram koma helstu upplýsingar um starfsemi tilnefndra ásamt rökstuðningi fyrir tilnefningunni. Verðlaunahafar geta verið allt að þrír.
Við valið er litið til þátta eins og frumkvöðlastarfs, nýjunga í starfsháttum eða annars árangurs sem getur verið öðrum fyrirmynd í landbúnaði svo sem á sviði umhverfisstjórnunar, loftslagsmála, ræktunarstarfs eða annarra þátta í starfseminni. Ráðherra landbúnaðarmála veitti landbúnaðarverðlaun fyrst 1997 og þau hafa verið veitt flest ár síðan eða alls í 27 skipti.
Biðukolla er hönnuð af Matthíasi Rúnari Sigurðssyni myndhöggvara.
Verðlaunagripurinn ber heitið „Biðukolla“ og er sérhannaður fyrir landbúnaðarverðlaunin af Matthíasi Rúnari Sigurðssyni myndhöggvara. Biðukollan er táknmynd hringrásarinnar sem er undirstaða sjálfbærs landbúnaðar. Eftir að hafa blómstrað að sumri dreifir biðukollan fræjum sínum um víðan völl með vindinum. Fræin eru þannig vísbending um þá möguleika og tækifæri til vaxtar sem framtíðin ber í skauti sér.
Frestur til að skila inn tillögum er til 3. mars 2026.
Tillögur merktar „Landbúnaðarverðlaun“ sendist á netfangið [email protected].