03 febrúar 2026

/

Átta sækja um embætti héraðsdómara

{image.Description}

Hinn 12. janúar 2026 auglýsti dómsmálaráðuneytið í Lögbirtingablaði laust til umsóknar embætti dómara með fyrsta starfsvettvang við Héraðsdóm Reykjavíkur. Skipað verður í embættið hið fyrsta eftir að dómnefnd um hæfni umsækjenda um embætti dómara lýkur störfum.

Umsóknarfrestur rann út þann 27. janúar og eru umsækjendur eftirtalin:

  • Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir lögmaður,
  • Marta María Friðriksdóttir aðstoðarmaður dómara við Landsrétt,
  • Sindri M. Stephensen dósent og settur héraðsdómari,
  • Sverrir Sigurjónsson lögmaður,
  • Særún María Gunnarsdóttir aðalskrifstofustjóri,
  • Valborg Steingrímsdóttir saksóknarafulltrúi,
  • Þorbjörg I. Jónsdóttir lögmaður,
  • Þóra Hallgrímsdóttir lögfræðingur.

Umsóknir verða afhentar dómnefnd um hæfni umsækjenda til meðferðar á næstu dögum.