03 febrúar 2026
/
Úttekt á Háskólanum í Reykjavík
Gæðamat háskóla hefur nú birt niðurstöður stofnunarúttektar Háskólans í Reykjavík.
Matið er framkvæmt af nefnd erlendra sérfræðinga og eins nemanda sem stundar nám við íslenskan háskóla. Matinu til grundvallar liggja þrír matsþættir: (1) nám og kennsla, (2) rannsóknir og nýsköpun, og (3) gæðakerfi og stefnumiðuð stjórnun.
Í úttektarskýrslunni kemur fram að styrkleikar Háskólans í Reykjavík felist í sterkum tengslum við atvinnulíf og áherslu á hagnýtt nám sem eykur atvinnuhæfni útskrifaðra. Þá er einnig dregið fram að skólinn veitir nemendum öflugan og heildrænan stuðning og leggur ríka áherslu á velferð þeirra. Að lokum kemur fram að rannsóknarumhverfi sé hvetjandi og í vexti, með góðum stuðningi við starfsfólk, auknum árangri í birtingum og utanaðkomandi styrkjum, sem og sterkri gæðamenningu um alla starfsemi.
Í úttektinni er kallað eftir umbótum á verklagi við þróun og breytingar á námsleiðum, traustu nemendabókhaldskerfi og betri upplýsingagjöf til nemenda. Þá er auk þess lagt til að skólinn setji skýra stefnu um vísindasiðferði, skrái samfélagsleg áhrif rannsókna, styrki umgjörð doktorsnáms og efli heildstætt gæðastjórnunarkerfi með betra aðgengi að reglum og markvissri stjórnun yfirstjórnar. Gæðamat mun fylgja eftir tveimur ábendingum með eftirfylgniúttekt innan tveggja ára. Aðrar tillögur að umbótum verða áfram teknar fyrir á árlegum gæðafundum háskólans og Gæðamats háskóla sem og í næstu stofnunarúttekt, í samræmi við gildandi leiðbeiningar.
Gæðamat háskóla starfar fyrir menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti en er sjálfstætt í ákvörðunum sínum. Helsta hlutverk Gæðamats háskóla er að móta rammaáætlun um eflingu gæða í íslenskum háskólum og framkvæma reglubundnar stofnunarúttektir. Áætlunin byggist á umbótamiðaðri nálgun og markmið hennar er að gera íslenskum háskólum kleift að tryggja og auka gæði starfsemi sinnar. Íslenskir háskólar bera sjálfir ábyrgð á gæðum starfsemi sinnar, en Gæðamat háskóla annast ytra gæðamat á sömu starfsemi.Ytra gæðamati er einnig ætlað að tryggja að skilyrði fyrir viðurkenningu ráðherra á fræðasviðum háskóla séu uppfyllt og tryggja samkeppnishæfni íslenskra háskóla á alþjóðavettvangi.
Niðurstöður stofnunarúttektar Háskólans í Reykjavík