04 febrúar 2026
/
Bætt verklag við framkvæmd laga um fjármál stjórnmálasamtaka
Fjármála- og efnahagsráðuneytið fagnar niðurstöðu Ríkisendurskoðunar um að uppfært verklag ráðuneytisins við greiðslur framlaga til stjórnmálasamtaka styrki framkvæmd laga um fjármál stjórnmálasamtaka og frambjóðenda og tryggi að skilyrðum fyrir greiðslum úr ríkissjóði sé fylgt.
Í kjölfar ábendinga í ársbyrjun 2025 um að framlög hefðu verið greidd árið 2022 án þess að skilyrði um skráningu í stjórnmálasamtakaskrá hefðu verið könnuð, fór ráðuneytið yfir ferla sína og gerði viðeigandi úrbætur. Jafnframt óskaði ráðuneytið eftir mati Ríkisendurskoðunar á viðbrögðum þess og þeim breytingum sem gerðar voru.
Í niðurstöðu Ríkisendurskoðunar kemur fram að verklagið hafi verið skýrt nánar og bætt þannig að betur sé tryggt að lagaskilyrðum sé fullnægt áður en greiðslur fara fram. Þá er bent á að kanna megi hvort einfaldara og skilvirkara sé að færa umsjón og framkvæmd greiðslna til eins aðila, til dæmis Fjársýslunnar. Einnig er hvatt til þess að umsóknarferill verði formfestur frekar, meðal annars með rafrænu umsóknarkerfi.
Ráðuneytið mun hefja samtal við dómsmálaráðuneytið og Alþingi um þessar mögulegu úrbætur í samræmi við ábendingar Ríkisendurskoðunar, með það að markmiði að efla yfirsýn, gagnsæi og skilvirkni í framkvæmd greiðslna.