05 febrúar 2026

/

Tvö hundruð milljónir til samstarfs og nýsköpunar í íslensku fyrir innflytjendur

{image.Description}

Mennta- og barnamálaráðherra úthlutaði nýlega styrkjum til að efla samstarf og nýsköpun á vettvangi íslenskunnar sem annars tungumáls. Tæplega 200 milljónum var úthlutað til 17 aðila til að styðja við nýjungar í íslenskunámi innflytjenda og ná til fjölbreyttari hópa með nýju námi, aðferðum eða verkfærum sem gera á aðgengileg öllum.

Úthlutunin byggir á stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar um að innflytjendur fái tækifæri til að læra íslensku og taka virkan þátt í samfélaginu. Hún byggir jafnframt á menntastefnu 2030 og á þingsályktun um aðgerðaáætlun í málefnum íslenskrar tungu fyrir árin 2024-2026.

Leitað var til m.a. þeirra sem starfa beint með innflytjendum eftir nýjum hugmyndum sem vinna ætti í samstarfi ólíkra aðila og miðla áfram sem víðast. Öflugt samstarf var því eitt af þeim skilyrðum sem varð að uppfylla til að fá styrk og því verða nú til ný samstarfsnet sem efla íslenskuna þvert á skólastig, sveitarfélög, stofnanir og aðila vinnumarkaðarins.

Styrkirnir voru auglýstir lausir til umsóknar á vef ráðuneytisins í agúst þar sem tilgreind voru skilyrði og áherslusvið. Tengja þurfti samstarfsverkefnin við a.m.k. einn meginmarkhóp innflytjenda þar sem talin er sérstök þörf á nýjum nálgunum. Alls barst 51 umsókn. Ákveðið var að styrkja 17 umsóknir sem allar fólu í sér áhugavert samstarf og fróðlegar nýjungar sem ættu að geta farið í almenna dreifingu. Eftirfarandi verkefni hlutu styrk:

Heiti verkefnis:

Umsækjandi:

Samstarfsaðili/-ar

Styrkupphæð

Tengsl og tunga. Íslenska í verki

Eirð Náttúruhús

Nýsköpunarsetrið við Lækinn, Vinnumálastofnun

3.300.000

Gefum íslensku tíma

Hafnarfjarðarbær

Mímir símenntun, Íslenskuþorpið

8.185.000

Inngildingarbrú milli háskólans og vinnumarkaðar

Háskóli íslands

Vinnumálastofnun

9.570.000

Skólaorðaforði fyrir erlenda foreldra- samtalskvöld með stuðningi

Rauði krossinn við Eyjafjörð

Menntaskólinn á Akureyri, VMA, Akureyrabær,

4.740.000

Samtal og samfélag- íslenska í daglegu lífi

Farskólinn- Miðstöð símenntunar á NV

Aldan stéttarfélag

6.000.000

Íslenskuvæn fyrirtæki- Tungumálastefna og fyrirmyndarverkefni fyrir stóra og smáa vinnustaði

Mímir símenntun

ASÍ, Samtök fyrirtækja í velferðaþjónustu, Mýrdalshreppur, SA, FA,, SAK, Grund hjúkrunarheimili

18.018.000

ÍSAN- íslenska til inngildingar

Fjölbrautaskólinn í Breiðholti

Menntaskólinn á Ísafirði, Menntavísindasvið HÍ

31.692.894

Grunnspor- leið að námi og samfélagsþátttöku ungs fólks af erlendum uppruna

Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum

Reykjanesbær

5.410.125

Lært í gegnum leikinn- íslenskuspil fyrir börn og foreldra

Heimili og skóli, landssamtök foreldra

Skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar

5.000.000

Bara tala í framhaldsskólum

Bara tala ehf.

Verslunarskóli íslands, Tækniskólinn, Framhaldsskólinn á Húsavík, Verkmenntaskóli Austurlands

25.000.000

Umönnun á íslensku- Efling íslenskukunnáttu og menningarfærni á Blend deildum Landspítalans

Múlti kúltí ehf.

Landakot, bráða- lyfja- og endurhæfingardeild

3.189.000

Íslenskumót: Tenging, tungumál og tækifæri

Menntaskólinn á Ísafirði

Tækniskólinn

8.855.000,00

Virkni og íslenskunám einangraðra kvenna af erlendum uppruna

Sveitarfélagið Árborg

Fræðslunet Suðurlands

1.436.000

Saman í málinu- íslenskukennsla foreldra barna í frístundastarfi

Þekkingarnet Þingeyinga

Norðurþing, Völsungur

6.525.000

Mín Rödd: að efla íslenskukunnáttu, menningar- og samfélagslæsi ungra innflytjenda

Framvegis

Fjölsmiðjan á höfuðborgarsvæðinu

7.990.000

Læsi er lykillinn að lýðræði

Dósaverksmiðjan

Vinnumálastofnun, FÁ og Hafnarfjarðarbær

26.000.000

Áfram íslenska- lykilinn að samfélaginu

Via Nostra ehf.

Brimsalir, Framhaldsskólinn á Tröllaskaga, Fræðslumiðstöð Vestfjarða, Fræðslumiðstöð atvinnulífsins, Fjallabyggð

28.080.000

Alls

 

 

198.991.019