06 febrúar 2026
/
Matsfyrirtækjum fækkað
Síðustu áratugi hefur ríkissjóður verið með samningssamband um mat á lánshæfi Íslands við þrjú matsfyrirtæki: Fitch Ratings, Moody’s Ratings og S&P Global Ratings.
Haustið 2025, að loknu útboðsferli, hefur fjármála- og efnahagsráðuneytið ákveðið að fækka matsfyrirtækjum með samningssamband úr þremur í tvö.
Áfram verður ríkissjóður með samningssamband við Moody’s Ratings og S&P Global Ratings um mat á lánshæfi ríkissjóðs.