06 febrúar 2026

/

Mál nr. 65/2025. Ákvörðun kærunefndar útboðsmála.

Ákvörðun kærunefndar útboðsmála 28. janúar 2026
í máli nr. 65/2025:
UHA Umhverfisþjónusta ehf.
gegn
Fjarðabyggð og
Kubbi ehf.

Lykilorð
Bindandi samningur. Kröfu um stöðvun samningsgerðar hafnað.

Útdráttur
Kærunefnd útboðsmála hafnaði kröfu kæranda um stöðvun samningsgerðar þar sem kominn var á bindandi samningur milli varnaraðila og Kubbs ehf., sbr. 1. mgr. 114. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup.

Með kæru móttekinni hjá kærunefnd útboðsmála 22. desember 2025 kærði UHA Umhverfisþjónusta ehf. (hér eftir „kærandi“) ákvörðun Fjarðabyggðar (hér eftir „varnaraðili“) um að velja tilboð Kubbs ehf. í útboði auðkenndu „Úrgangsþjónusta í Fjarðabyggð 2025-2029“.

Af kærunni verður ráðið að kærandi krefjist þess í fyrsta lagi að samningsgerð verði stöðvuð um stundarsakir þar til leyst hefur verið úr kæru. Sé kominn á samningur milli varnaraðila og Kubbs ehf. krefst kærandi þess í öðru lagi að samningurinn verið lýstur óvirkur. Í þriðja lagi krefst kærandi þess að kærunefnd útboðsmála láti uppi álit sitt á skaðabótaskyldu varnaraðila og loks í fjórða lagi að varnaraðili greiði kæranda kostnað við að hafa kæruna uppi.

Kærandi lagði fram frekari athugasemdir til kærunefndar útboðsmála 30. desember 2025. Kærunefnd útboðsmála sendi þær til varnaraðila og Kubbs ehf. þann 6. janúar 2026 og veitti aðilum frest til þess að tjá sig um þær, teldu þeir þörf á.

Varnaraðili krefst þess í greinargerð sinni 8. janúar 2026 að kröfum kæranda verði vísað frá kærunefnd útboðsmála en til vara að kröfum kæranda verði hafnað.

Kubbur ehf. krefst þess í greinargerð sinni 8. janúar 2026 að kröfum kæranda verði hafnað og að kæranda verði gert að greiða málskostnað í ríkissjóð.

Í þessum hluta málsins verður tekin afstaða til þeirrar kröfu kæranda að hið kærða innkaupaferli verði stöðvað um stundarsakir en úrlausn málsins bíður að öðru leyti endanlegs úrskurðar.

I

Hið kærða útboð var auglýst í ágúst 2025, en í grein 0.1.4 í útboðslýsingu kom fram að verkið fælist í söfnun úrgangs úr sorp- og endurvinnsluílátum við heimili, stofnanir og fyrirtæki í Fjarðabyggð, og við stofnanir í eigu sveitarfélagsins, bæði í þéttbýli og í dreifbýli, auk rekstri móttöku- og söfnunarstöðva sveitarfélagsins. Þá var tekið fram að verkið væri boðið út í tveimur verkhlutum. Í verkhluta 1 fælist söfnun og afsetning á blönduðum úrgangi, plasti, pappír og pappa, og matarleifum frá heimilum og stofnunum í eigu Fjarðabyggðar. Verkhlutinn næði einnig til söfnunar og afsetningar á blönduðum úrgangi og matarleifum frá öðrum stofnunum og fyrirtækjum í Fjarðabyggð sem væru með ílát frá sveitarfélaginu. Í verkhluta 2 fælist rekstur á söfnunar-, móttöku- og grenndarstöðvum sveitarfélagsins og flutningi og afsetningu þess úrgangs sem tekið væri við á stöðvum. Samkvæmt grein 0.1 var heimilt að bjóða í einn eða báða verkhluta, og væri tilboðsskrá stillt upp þannig að hægt væri að gera tilboð í verkhluta óháð öðrum en jafnframt væri hægt að gera tilboð í báða verkhluta háð því að báðir verkhlutar fengjust.

Tilboð voru opnuð 19. september 2025 og bárust fimm tilboð. Samkvæmt opnunarskýrslu nam tilboð kæranda í verkhluta 1 alls 542.712.677 krónum og í verkhluta 2 alls 902.598.320 krónum. Tilboð kæranda í heildarverkið, þ.e. háð því að tilboði félagsins yrði tekið í báða verkhluta, nam alls 1.258.861.717 krónum. Tilboð Kubbs ehf. í heildarverkið nam alls 1.197.677.757 krónum. Þann sama dag sendi kærandi umsjónarmanni hins kærða útboðs tölvupóst og benti á að tilboð hans væri rangt skráð í opnunarskýrslu útboðsins og væri ekki í samræmi við tilboðsblað, sem hefði fylgt með tilboði kæranda. Var þess óskað að tilboðsskrá kæranda yrði leiðrétt og raunveruleg tilboðsverð hans yrðu færð í tilboðsskrá.

Þann 30. september 2025 lagði kærandi fram kæru til kærunefndar útboðsmála, sbr. mál nr. 46/2025, og krafðist þess m.a. að lagt yrði fyrir varnaraðila að leiðrétta opnunarskýrsluna. Þann sama dag var bjóðendum tilkynnt um þá ákvörðun varnaraðila að tilboð Kubbs ehf. hefði verið valið í hinu kærða útboði. Kærunefnd útboðsmála hafnaði kröfu kæranda um stöðvun innkaupaferlis með ákvörðun 17. desember 2025. Kærandi lagði fram aðra kæru í málinu til kærunefndar útboðsmála 9. október 2025, vegna ákvörðunar varnaraðila að velja tilboð Kubbs ehf., sbr. mál nr. 48/2025 Með ákvörðun nefndarinnar 17. desember 2025 var aflétt sjálfkrafa stöðvun samningsgerðar, sem hefði komist á með kæru málsins.

Í kæru þessa máls byggir kærandi á því að ákvörðun um að velja tilboð Kubbs ehf. sé ólögmæt þar sem hún hafi verið tekin áður en frestur til þess hafi verið liðinn. Þá hafi ákvörðunin verið byggð á ólögmætri opnun tilboða þar sem tilboð kæranda hafi verið lægst. Að auki hafi ekki farið fram nýtt stöðumat á hæfni Kubbs ehf. eftir að húsleit hafi verið gerð hjá félaginu og forsvarsmenn þess handteknir. Kærandi byggir einnig á því að fyrrum starfsmaður varnaraðila sé nú yfirmaður hjá Kubbi ehf. og sá hafi nýtt sér upplýsingar sem hann hafi aflað sér í starfi sínu hjá varnaraðila, m.a. til að koma í veg fyrir samkeppni. Hann hafi m.a. tekið ófrjálsri hendi hugmynd og þróun hugbúnaðar sem hann hafi fengið styrk til að nota í sveitarfélaginu og hafi í aðdraganda útboðsins unnið með ólögmætum hætti með varnaraðila. Enn fremur byggir kærandi á því að í gildi sé samningur vegna hluta þess útboðs sem hafi farið fram árið 2020, en það verkefni hafi verið framlengt til ársins 2028. Óski kærandi þess að kærunefnd útboðsmála úrskurði um beiðni kæranda til stöðvunar samningsgerðar með vísan til þessa og hvort varnaraðila hafi verið heimilt að halda áfram með hið kærða útboð sökum þessa. Kærandi kveður jafnframt að kæran sé lögð fram innan kærufrests, en nýr kærufrestur hafi hafist 19. desember 2025 þegar kærandi hafi fengið upplýsingar um að kærunefnd útboðsmála hafi ekki fallist á kröfu um stöðvun innkaupaferlis í fyrra máli. Loks krefst kærandi óvirkni samnings, hafi hann verið gerður, með vísan til 111. og 115. gr., sbr. b. lið 2. mgr. 115. gr., laga nr. 120/2016.

Varnaraðili kveður að kæra málsins sé mjög óskýr en kröfurnar virðist að nokkru leyti vera röksemdir við sömu kröfuþætti og þegar séu til umfjöllunar vegna annarrar kæru kæranda fyrir kærunefnd útboðsmála, eða endurtekningar á sömu kröfugerð. Engin ný atvik hafi komið fram í málinu frá því að kærur kæranda hafi verið lagðar fram, nema að undirritaður hafi verið samningur. Aðrar kröfur eða málsástæður kæranda snerti ekki ákvarðanir sem teknar hafi verið á grundvelli laga nr. 120/2016 og varða að auki atriði þar sem kærufrestur sé liðinn. Þá varða sumar kröfur eða málsástæður atriði sem kærunefnd útboðsmála hafi þegar tekið ákvörðun um eða hafi til umfjöllunar í öðrum málum. Varnaraðili andmæli því að fyrrum starfsmanni sveitarfélagsins hafi verið afhent nokkur gögn vegna hugbúnaðarverkefnis, og jafnvel þótt svo hefði verið þá yrði ekki séð hvernig ójafnræði hafi skapast vegna útboðs í málaflokknum. Sjónarmið kæranda um kærufrest standist enga skoðun, enda verði ákvarðanir kærunefndar útboðsmála um að aflétta stöðvun samningsgerðar ekki skoðaðar sem ný atvik sem heimili aðra kæru um stöðvun samningsgerðar. Að auki geti upplýsingar um atvik, sem ekki tengist útboðsferlinu, leitt til nýs kærufrests.

Kubbur ehf. vísar til þess að kominn sé á bindandi samningur milli félagsins og varnaraðila, sem undirritaður hafi verið 30. desember 2025, sem ekki verði felldur úr gildi, sbr. 1. mgr. 114. gr. laga nr. 120/2016. Því beri að hafna kröfu kæranda um stöðvun samningsgerðar og hafna öðrum kröfum kæranda með endanlegum úrskurði. Þá vísar Kubbur ehf. til þess að skilyrði óvirkni samnings samkvæmt 115. gr. laga nr. 120/2016 séu ekki uppfyllt, enda hafi verið búið að aflétta sjálfkrafa stöðvun samningsgerðar þegar gengið hafi verið til samninga. Kubbur ehf. andmælir málatilbúnaði kæranda, sem sé rangur og órökstuddur. Engu hafi verið slegið föstu um meint samkeppnislagabrot og rannsókn sé enn í gangi. Engin heimild sé fyrir því að útiloka félagið frá þátttöku í innkaupaferli á grundvelli yfirstandandi rannsóknar.

Niðurstaða

Í 1. mgr. 114. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup kemur fram að eftir að bindandi samningur samkvæmt lögunum hefur komist á verði hann ekki felldur úr gildi eða honum breytt þótt ákvörðun kaupanda um framkvæmd útboðs eða gerð samnings hafi verið ólögmæt. Í málinu liggur fyrir að verksamningur var undirritaður milli varnaraðila og Kubbs ehf. 30. desember 2025. Hefur þannig komist á bindandi samningur samkvæmt 1. mgr. 114. gr. laga nr. 120/2016 og verður þegar af þeirri ástæðu að hafna kröfu kærenda um að samningsgerð verði stöðvuð um stundarsakir samkvæmt 1. mgr. 110. gr. laga nr. 120/2016.

Úr öðrum kröfum aðila verður leyst með úrskurði þegar þeir hafa skilað endanlegum sjónarmiðum sínum í málinu og lagt fram þau gögn sem þeir telja máli skipta.

Ákvörðunarorð

Hafnað er kröfu kröfu kæranda, UHA Umhverfisþjónustu ehf., um stöðvun á samningsgerð milli varnaraðila, Fjarðabyggðar, og Kubbs ehf. vegna útboðs auðkenndu „Úrgangsþjónusta í Fjarðabyggð 2026-2029“.


Reykjavík, 28. janúar 2026


Reimar Pétursson

Kristín Haraldsdóttir

Auður Finnbogadóttir