06 febrúar 2026

/

Mál nr. 658/2025-Beiðni um endurupptöku

 

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Beiðni um endurupptöku máls nr. 658/2025

Föstudaginn 6. febrúar 2026

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með erindi, dags. 8. janúar 2026, óskaði A, eftir endurupptöku úrskurðar úrskurðarnefndar velferðarmála í máli nr. 658/2025 þar sem ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 9. október 2025, um að fella niður rétt hans til greiðslu atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði og að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur var staðfest.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 9. október 2025, var kæranda tilkynnt að bótaréttur hans væri felldur niður í þrjá mánuði á grundvelli 1. mgr. 59. gr., sbr. 1. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar með vísan til þess að hann hefði látið hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um nauðsynlegar upplýsingar sem hefðu áhrif á rétt hans til atvinnuleysisbóta. Kæranda var jafnframt tilkynnt að hann hefði fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur að fjárhæð 733.003 kr., að meðtöldu álagi.

Kærandi lagði fram kæru hjá úrskurðarnefnd velferðarmála 9. október 2025 vegna þeirrar ákvörðunar. Að lokinni gagnaöflun úrskurðaði nefndin í málinu 8. janúar 2026. Með úrskurðinum staðfesti úrskurðarnefnd velferðarmála framangreinda ákvörðun Vinnumálastofnunar. Með erindi kæranda, dags. 8. janúar 2026, gerði hann athugasemd við fjárhæð endurkröfunnar.

II.  Sjónarmið kæranda

Í erindi kæranda til úrskurðarnefndar velferðarmála er gerð athugasemd við fjárhæð endurkröfu Vinnumálastofnunar. Kærandi viðurkenni að hafa gert mistök með því að þiggja viðbótar atvinnuleysisbætur í mars á sama tíma og hann hafi fengið greidd laun fyrir hálft starf frá vinnuveitanda sínum. Kærandi taki fulla ábyrgð á því að hafa ekki tilkynnt það til viðeigandi skrifstofu á þeim tíma. Hins vegar mótmæli kærandi eindregið þeirri upphæð sem nú sé krafist. Samkvæmt upplýsingum frá stofnuninni eigi kærandi að hafa fengið greiddar samtals 733.000 kr. Kærandi sé með skýr gögn úr bankayfirlitum sem sýni að hann hafi einungis fengið 310.000 kr. frá Atvinnuleysistryggingasjóði á umræddu tímabili. Kærandi sé reiðubúinn að leggja fram afrit af þessum bankayfirlitum sem sönnunargögn. Þrátt fyrir að hafa ítrekað haft samband við Vinnumálastofnun til að ræða þetta misræmi og óska eftir skýringum eða gögnum til stuðnings hærri upphæðinni hafi hann hvorki fengið svör né gögn frá stofnuninni. Þess í stað hafi kæranda verið ráðlagt að senda málið til nefndarinnar.

Kærandi óski því eftir því við nefndina að mál hans verði tekið til skoðunar og endurkrafan endurmetin í ljósi þeirra gagna sem hann geti lagt fram. Kærandi viðurkenni mistök sín vegna tvítekningar í mars en hann hafi ekki tekið á móti þeirri fjárhæð sem nú sé fullyrt að hann hafi fengið.

III.  Niðurstaða

Óskað er eftir endurupptöku á úrskurði úrskurðarnefndar velferðarmála, dags. 8. janúar 2026. Með úrskurðinum var ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 9. október 2025, um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði og að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur staðfest.

Í 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 er fjallað um skilyrði fyrir endurupptöku mála. Í 1. mgr. ákvæðisins kemur fram að eftir að stjórnvald hefur tekið ákvörðun og hún verið tilkynnt eigi aðili máls rétt á því að mál sé tekið til meðferðar á ný ef atvik máls eru á þann veg að eitt af eftirfarandi skilyrðum sem fram koma í 1. og 2. tölul. geti átt við:

  1. ákvörðun hefur byggst á ófullnægjandi eða röngum upplýsingum um málsatvik, eða
  2. íþyngjandi ákvörðun um boð eða bann hefur byggst á atvikum sem breyst hafaverulega frá því að ákvörðun var tekin.

Aðili máls kann einnig að eiga rétt á endurupptöku máls á grundvelli ólögfestra reglna stjórnsýsluréttar, til að mynda ef efnislegur annmarki er á ákvörðun stjórnvalds.

Beiðni um endurupptöku er byggð á því að fjárhæð endurkröfu Vinnumálastofnunar sé ekki rétt. Kærandi hafi einungis fengið greiddar 310.000 kr. úr Atvinnuleysistryggingasjóði í mars 2025. 

Úrskurðarnefnd velferðarmála hefur yfirfarið úrskurð nefndarinnar með tilliti til athugasemda kæranda. Að mati úrskurðarnendar velferðarmála verður ekki ráðið að niðurstaða nefndarinnar hafi byggst á ófullnægjandi eða röngum upplýsingum um málsatvik eða að íþyngjandi ákvörðun um boð eða bann hafi byggst á atvikum sem hafi breyst verulega frá því að ákvörðun var tekin, sbr. 1. mgr. 24. gr. laga nr. 37/1993. Í því samhengi skal bent á að endurkrafa Vinnumálastofnunar laut að tímabilinu febrúar til apríl 2025 en óumdeilt er að kærandi fékk greiddar atvinnuleysisbætur þá mánuði. Þá verður ekki séð að kærandi eigi rétt á endurupptöku málsins á grundvelli ólögfestra reglna stjórnsýsluréttar.

Með hliðsjón af framangreindu er beiðni kæranda um endurupptöku máls úrskurðarnefndar velferðarmála nr. 658/2025 synjað.

 


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Beiðni A, um endurupptöku máls nr. 658/2025 hjá úrskurðarnefnd velferðarmála, er synjað.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir