06 febrúar 2026
/
Mál nr. 735/2025-Úrskurður
Úrskurðarnefnd velferðarmála
Mál nr. 735/2025
Föstudaginn 6. febrúar 2026
A
gegn
Vinnumálastofnun
Ú R S K U R Ð U R
Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.
Með kæru, dags. 11. nóvember 2025, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 20. ágúst 2025, um að fella niður rétt hans til atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði.
I. Málsatvik og málsmeðferð
Kærandi sótti um greiðslur atvinnuleysisbóta hjá Vinnumálastofnun 17. júlí 2025. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 20. ágúst 2025, var kæranda tilkynnt að umsókn hans hefði verið samþykkt en með vísan til starfsloka hjá fyrrum vinnuveitanda væri réttur til atvinnuleysisbóta hins vegar felldur niður í þrjá mánuði á grundvelli 1. mgr. 54. gr., sbr. 1. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.
Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 11. nóvember 2025. Með bréfi, dags. 12. nóvember 2025, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 12. janúar 2026 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 13. janúar 2026. Athugasemdir bárust ekki.
II. Sjónarmið kæranda
Í kæru til úrskurðarnefndar kemur fram að kærandi hafi sagt upp starfi sínu hjá fyrirtækinu B eftir að móðir hans hafi látist úr krabbameini. Eftir það hafi hann beðið í þrjá mánuði án launa og síðan hafi tveir mánuðir án bóta bæst við. Þetta hafi verið mjög erfitt fyrir kæranda þar sem hann beri ábyrgð á því að greiða fyrir húsnæði, bíl og annan kostnað. Kærandi hafi verið að leita að vinnu í ferðaþjónustugeiranum en hafi ekki fundið neina vegna þess hve fáir ferðamenn heimsæki Ísland. Hann hafi verið að íhuga að breyta starfsferli sínum frá ferðaþjónustu yfir í heilbrigðisþjónustu. Kærandi óski þess að ákvörðunin verði endurskoðuð í ljósi aðstæðna.
III. Sjónarmið Vinnumálastofnunar
Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi síðast sótt um atvinnuleysisbætur þann 17. júlí 2025. Í umsókn hafi kærandi tilgreint að hann hefði hætt störfum hjá fyrrverandi vinnuveitanda sínum, B, sökum álags og vegna þess að vinnan hafi verið of erfið. Þá hafi kærandi tekið fram að rígur hafi myndast milli starfsmanna.
Með erindi, dags. 12. ágúst 2025, hafi Vinnumálastofnun óskað eftir frekari skýringum kæranda vegna starfsloka hans. Skýringar kæranda hafi borist þann 13. ágúst 2025 þar sem meðal annars komi fram að vinnuumhverfið hafi ekki verið heppilegt og haft neikvæð áhrif á líðan hans. Á sama tíma hafi hann fengið fréttir af andláti móður sinnar sem hafi haft mikil áhrif á andlega heilsu hans og hafi kærandi farið til síns heimalands til að syrgja og styðja fjölskyldu sína. Þá hafi kærandi tekið fram að starfið feli í sér vinnu við matargeymslu í köldu umhverfi sem hafi byrjað að valda honum viðvarandi verkjum í liðum.
Með erindi, dags. 20. ágúst 2025, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hans um atvinnuleysisbætur hefði verið samþykkt og að útreiknaður bótaréttur væri 100%. Með vísan til starfsloka kæranda hafi réttur hans til atvinnuleysisbóta hins vegar verið felldur niður í þrjá mánuði. Ákvörðun þessi hafi verið tekin á grundvelli 1. mgr. 54. laga um atvinnuleysistryggingar, sbr. 1. mgr. 61. gr. laganna en kærandi hafi áður sætt biðtíma í september 2024 sökum þess að hann hefði hafnað þátttöku í vinnumarkaðsúrræði.
Þann 22. ágúst 2025 hafi kærandi óskað eftir endurskoðun á ákvörðun Vinnumálastofnunar. Með erindi, dags. 28. ágúst 2025, hafi Vinnumálastofnun staðfest ákvörðun sína þar sem það hafi ekki verið talin ástæða til að breyta niðurstöðu stofnunarinnar.
Ákvörðun Vinnumálastofnunar hafi verið kærð til úrskurðarnefndar velferðarmála þann 11. nóvember 2025. Í lok nóvember hafi kærandi haft samband við Vinnumálastofnun og óskað eftir því að vera afskráður frá og með 1. desember 2025 þar sem hann væri kominn með vinnu frá þeim tíma.
Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna.
Tilgangur laga um atvinnuleysistryggingar sé að tryggja þeim sem tryggðir séu og misst hafi fyrra starf sitt tímabundna fjárhagsaðstoð í þrengingum sínum. Lögin veiti þeim fjárhagslegt úrræði og beri að gera ríkar kröfur til þeirra sem segi upp störfum sínum að hafa til þess gildar ástæður samkvæmt lögunum, enda eigi almennt ekki að þiggja atvinnuleysisbætur í stað þess að gegna launuðu starfi.
Í 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar segi orðrétt:
,,Sá sem telst tryggður samkvæmt lögum þessum en hefur sagt starfi sínu lausu án gildra ástæðna skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá móttöku umsóknar um atvinnuleysisbætur, sbr. þó 4. mgr. Hið sama gildir um þann sem missir starf sitt af ástæðum sem hann sjálfur á sök á.“
Orðalagið ,,gildar ástæður“ hafi verið túlkað þröngt og fá tilvik hafi verið talin falla þar undir. Í athugasemdum við 1. mgr. 54. gr. í greinargerð með frumvarpi til laga um atvinnuleysistryggingar komi fram að með ákvæði þessu sé verið að undirstrika það markmið vinnumarkaðskerfisins að stuðla að virkri atvinnuþátttöku fólks. Í ljósi þess sé ekki gefinn kostur á að fólk segi upp starfi sínu til að fá greiddar atvinnuleysisbætur án þess að sérstakar ástæður liggi að baki uppsögninni í tilvikum þar sem annað starf sé ekki í boði. Þar sé jafnframt sérstaklega tekið fram að það sé erfiðleikum bundið að skilgreina nákvæmlega í lögum og reglugerðum hvaða ástæður, sem liggi að baki uppsögn, séu gildar, þar sem þær ástæður geti verið af margvíslegum toga. Þó sé í athugasemdum sérstaklega fjallað um tvenns konar tilvik þegar maki hins tryggða hafi hafið störf í öðrum landshluta og fjölskyldan hafi af þeim sökum þurft að flytja búferlum. Hins vegar séu það þau tilvik þegar uppsögn megi rekja til þess að atvinnuleitandi hafi sagt upp störfum af heilsufarsástæðum en sé að öðru leyti vinnufær. Í athugasemdum sé þó sérstaklega áréttað, að við þær aðstæður sé gert að skilyrði að vinnuveitandi hans hafi mátt vera kunnugt um þessar ástæður áður en launamaðurinn láti af störfum. Í ljósi þess að um matskennda ákvörðun sé að ræða sé Vinnumálastofnun falið að meta hvernig atvik og aðstæður þess máls er fyrir henni liggi falli að umræddri reglu. Vinnumálastofnun beri að líta til almennra reglna og málefnalegra sjónarmiða við ákvarðanir um hvort umsækjendur um atvinnuleysisbætur skuli sæta biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.
Fyrir liggi að kærandi hafi sagt starfi sínu lausu hjá B. Ágreiningurinn snúi að því hvort ástæður kæranda fyrir uppsögn í starfi teljist gildar í skilningi framangreinds ákvæðis 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Úrskurðarnefnd velferðarmála hafi í fyrri úrskurðum sínum talið að almennt beri að gera ríkar kröfur til atvinnuleitanda þegar metið sé hvort ástæður fyrir uppsögn séu gildar samkvæmt 1. mgr. 54. gr. laganna.
Þær skýringar sem kærandi hafi veitt Vinnumálastofnun á uppsögn sinni lúti einkum að álagi í starfi, vinna hafi verið of erfið, vinnuumhverfið hafi haft neikvæð áhrif á andlega og líkamlega líðan hans og að andlát móður hans hafi haft mikil áhrif á andlega heilsu hans. Ljóst sé að kærandi hafi ekki haft fast starf í hendi þegar hann hafi tekið þá ákvörðun að segja starfi sínu lausu.
Í tilvikum sem þessum hefur í framkvæmd verið gerð sú krafa til launamanna að þeir nýti sér öll tiltæk úrræði til úrbóta, svo sem með aðkomu yfirmanns á vinnustað, að leita til síns stéttarfélags og eftir atvikum vinnueftirlitsins eða heilbrigðisstarfsfólki áður en hann taki ákvörðun um að segja starfi sínu lausu. Að öðrum kosti verði ekki fallist á að atvinnuleitandi hafi sagt starfi sínu lausu af gildum ástæðum í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar. Í þeim tilfellum sem starfsmaður telji heilsu sinni ógnað af vinnuaðstöðu sinni sé enn fremur mikilvægt að staðfesting á heilsukvilla liggi fyrir áður en starfi sé sagt upp, svo gilt geti talist í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar. Í máli þessu liggi hvorki fyrir vottorð læknis um heilsubrest eða að kærandi hafi upplýst atvinnurekanda um áhyggjur sínar af vinnuumhverfi. Í áður nefndum athugasemdum við 1. mgr. 54. gr. í frumvarpi til laga um atvinnuleysistryggingar sé það talið heyra til gildra ástæðna fyrir uppsögn í starfi þegar umsækjandi um atvinnuleysisbætur hafi sagt starfi sínu lausu af heilsufarsástæðum en sé að öðru leyti vinnufær. Aftur á móti sé í slíkum tilvikum gert að skilyrði að vinnuveitanda hafi mátt vera kunnugt um slíkar aðstæður áður en launamaður láti af störfum. Af fyrirliggjandi gögnum í máli kæranda verði ekki ráðið að kærandi hafi greint yfirmanni sínum frá versnandi heilsu sinni eða andlegri vanlíðan eða að vinnuveitanda hafi verið kunnugt um þær aðstæður.
Með hliðsjón af framangreindum sjónarmiðum sé það mat Vinnumálastofnunar að skýringar kæranda vegna starfsloka hjá B geti ekki talist gildar í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar. Vinnumálastofnun telji því að kærandi skuli sæta biðtíma á grundvelli 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.
Kæranda hafi verið gert að sæta viðurlögum í tvo mánuði á grundvelli 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar þann 26. september 2024. Samkvæmt 1. mgr. 61. gr. laganna skuli sá sem sætt hafi viðurlögum samkvæmt 57. – 59. gr. eða biðtíma skv. 54. og 55. og eitthvert þeirra tilvika sem þar greini eigi sér stað að nýju á sama tímabili, eigi ekki að eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en að þremur mánuðum liðnum. Þegar kærandi hafi sótt um greiðslur atvinnuleysisbóta með umsókn, dags. 17. júlí 2025, hafi hann ekki áunnið sér rétt til nýs tímabils, sbr. 29. – 31. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Því hafi komið til ítrekunaráhrifa fyrri viðurlaga kæranda þegar hann hefði verið beittur biðtíma með ákvörðun stofnunarinnar, dags. 20. ágúst 2025, sbr. 1. mgr. 61. gr. laganna. Kærandi skuli því ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en að þremur mánuðum liðnum.
Með vísan til framangreinds sé það mat Vinnumálastofnunar að kærandi skuli sæta biðtíma í þrjá mánuði skv. 1. mgr. 54. gr. og 61. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.
IV. Niðurstaða
Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 54. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.
Ákvæði 1. mgr. 54. gr. laganna er svohljóðandi:
„Sá sem telst tryggður samkvæmt lögum þessum en hefur sagt starfi sínu lausu án gildra ástæðna skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá móttöku umsóknar um atvinnuleysisbætur, sbr. þó 4. mgr. Hið sama gildir um þann sem missir starf af ástæðum sem hann á sjálfur sök á.“
Óumdeilt er að kærandi sagði upp starfi sínu hjá B en ágreiningur málsins lýtur að því hvort ástæður hans fyrir uppsögninni hafi verið gildar í skilningi 1. mgr. 54. gr. laga nr. 54/2006. Í athugasemdum við 1. mgr. 54. gr. í frumvarpi til laga nr. 54/2006 kemur fram að með ákvæðinu sé undirstrikað það markmið vinnumarkaðskerfisins að stuðla að virkri atvinnuþátttöku fólks. Í því ljósi sé ekki gefinn kostur á að fólk segi upp starfi sínu til að fá greiddar atvinnuleysisbætur án þess að sérstakar ástæður liggi að baki uppsögninni í tilvikum þegar annað starf sé ekki í boði. Tekið er fram að það sé erfiðleikum bundið að takmarka þau tilvik sem geti talist til gildra ástæðna í lögum og reglugerðum þar sem ástæður þess að fólk segi störfum sínum lausum eða missi þau geti verið af margvíslegum toga. Því sé lagt til að lagareglan verði áfram matskennd og Vinnumálastofnun falið að meta atvik og aðstæður hverju sinni. Stofnuninni beri að líta til almennra reglna og málefnalegra sjónarmiða við ákvarðanir um hvort umsækjendur um atvinnuleysisbætur skuli sæta biðtíma eftir atvinnuleysisbótum. Jafnframt er bent á að um íþyngjandi ákvörðun sé að ræða. Í athugasemdunum er þó sérstaklega vísað til tvenns konar tilvika sem talin eru heyra til gildra ástæðna fyrir starfslokum. Annars vegar þau tilvik þegar maki hins tryggða hafi hafið störf í öðrum landshluta og fjölskyldan hafi af þeim sökum þurft að flytja búferlum. Hins vegar þau tilvik þegar uppsögn megi rekja til þess að atvinnuleitandi hafi sagt upp störfum af heilsufarsástæðum en sé að öðru leyti vinnufær.
Úrskurðarnefnd velferðarmála telur að ráða megi af framangreindu að almennt beri að gera nokkuð ríkar kröfur til atvinnuleitanda þegar metið er hvort ástæður fyrir uppsögn séu gildar samkvæmt 1. mgr. 54. gr. laga nr. 54/2006.
Kærandi hefur gefið nokkrar skýringar á því að hann hafi sagt upp starfi sínu hjá fyrirtækinu. Ein skýring er sú að móðir hans hafi látist úr krabbameini sem hafi reynst honum mjög erfitt. Kærandi hafi einnig upplifað vanlíðan í starfi, bæði líkamlega og andlega.
Að mati úrskurðarnefndar velferðarmála er málefnalegt að gera þá kröfu til launþega að þeir segi ekki upp starfi sínu nema við ýtrustu nauðsyn þegar annað starf er ekki í hendi, þegar kemur að því að meta hvort viðkomandi skuli sæta biðtíma eftir atvinnuleysisbótum. Ekki verður séð að slíkt eigi við í tilviki kæranda. Þá liggja ekki fyrir í málinu gögn um að kærandi hafi leitað eftir úrbótum vegna starfsaðstæðna. Hefur því að mati úrskurðarnefndar velferðarmála ekki verið sýnt fram á að um sé að ræða gildar ástæður fyrir uppsögn í skilningi 54. gr. laga nr. 54/2006.
Í 1. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um ítrekunaráhrif fyrri viðurlagaákvarðana. Ákvæðið sé svohljóðandi:
„Sá sem hefur sætt viðurlögum skv. 57. – 59. gr. eða biðtíma skv. 54. eða 55. gr. og eitthvert þeirra tilvika sem þar greinir á sér stað að nýju á sama tímabili skv. 29. gr. skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að þremur mánuðum liðnum frá þeim degi er ákvörðun Vinnumálastofnunar um ítrekunaráhrif liggur fyrir enda hafi hann fengið greiddar atvinnuleysisbætur skemur en samtals 24 mánuði á sama tímabili skv. 29. gr. Hafi hinn tryggði fengið greiddar atvinnuleysisbætur í samtals 24 mánuði eða lengur á sama tímabili skv. 29. gr. þegar atvik sem lýst er í 1. málsl. á sér stað skal hinn tryggði ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en hann uppfyllir skilyrði 31. gr.“
Samkvæmt gögnum málsins var bótaréttur kæranda felldur niður í tvo mánuði þann 26. september 2024, á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006. Þar sem um sama bótatímabil er að ræða, sbr. 29. gr. laganna, kom til ítrekunaráhrifa samkvæmt 1. mgr. 61. gr. laganna.
Með vísan til framangreinds er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði á grundvelli 1. mgr. 54. gr., sbr. 1. mgr. 61. laga nr. 54/2006, staðfest.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð
Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 20. ágúst 2025, um að fella niður rétt A, til atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði, er staðfest.
F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála
Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir