06 febrúar 2026
/
Mál nr. 748/2025-Úrskurður
Úrskurðarnefnd velferðarmála
Mál nr. 748/2025
Föstudaginn 6. febrúar 2026
A
gegn
Vinnumálastofnun
Ú R S K U R Ð U R
Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.
Með kæru, dags. 19. nóvember 2025, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 20. október 2025, um að fella niður rétt hans til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði.
I. Málsatvik og málsmeðferð
Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 3. apríl 2025 og var umsóknin samþykkt 30. maí 2025. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 20. október 2025, var kæranda tilkynnt að réttur hans til atvinnuleysisbóta hefði verið felldur niður í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar með vísan til þess að hann hefði hafnað þátttöku í vinnumarkaðsúrræði.
Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 19. nóvember 2025. Með bréfi, dags. 20. nóvember 2025, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 12. janúar 2026 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 13. janúar 2026. Athugasemdir bárust ekki.
II. Sjónarmið kæranda
Í kæru til úrskurðarnefndar kemur fram að þann 30. september hafi kærandi fengið smáskilaboð með boð á fund sem færi fram þann 1. október og skyldumæting væri á. Kærandi hafi því miður ekki séð skilaboðin og hafi þess vegna misst af fundinum. Kærandi hafi verið að verja deginum með fjölskyldu sinni og hafi ekki gert sér grein fyrir mistökum sínum fyrr en eftir á.
Þann 6. október hafi kærandi skrifað tölvupóst þar sem hann hafi óskað eftir nýju fundarboði. Kærandi harmi það að hafa misst af fundinum og að hafa ekki tekið eftir skilaboðunum í tæka tíð. Kærandi lýsi því yfir að hann beri fulla ábyrgð á atvikinu og að hann muni vera meira vakandi fyrir skilaboðum af þessu tagi í framtíðinni.
Vegna viðurlaganna fái kærandi einungis greiddan helminginn af lágmarksframfærslu frá Reykjavíkurborg, um 95.000 kr. Kærandi haldi því fram að sú upphæð sé ekki nægjanleg til að standa undir grunnþörfum hans og að leigusali hans verði sífellt óánægðari vegna tafa á greiðslum. Kærandi sé í virkri atvinnuleit en það séu ekki mörg laus störf á hans sviði um þessar mundir. Engu að síður geri hann allt sem í hans valdi standi til að tryggja sér starf.
Með hliðsjón af þessum aðstæðum óski kærandi þess að ákvörðunin verði endurskoðuð og viðurlögin felld niður svo að atvinnuleysisbætur verði aftur greiddar að fullu til hans.
III. Sjónarmið Vinnumálastofnunar
Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi sótt um greiðslur atvinnuleysisbóta með umsókn, dags. 3. apríl 2025. Með erindi, dags. 30. maí 2025, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hans hefði verið samþykkt og að útreiknaður bótaréttur væri 48%.
Þann 30. september 2025 hafi kærandi verið boðaður á upplýsingafund hjá Vinnumálastofnun þann 1. október 2025, klukkan 13:00. Athygli kæranda hafi verið vakin á að ótilkynnt forföll og forföll án gildrar ástæðu kynnu að leiða til þess að greiðslur atvinnuleysisbóta til hans yrðu stöðvaðar. Boðunin hafi verið send með smáskilaboðum í símanúmer kæranda og tölvupósti á skráð netfang í kerfi stofnunarinnar. Samkvæmt skráningu Vinnumálastofnunar hafi smáskilaboðin borist í símtæki kæranda þann 30. september 2025, klukkan 11:19. Kærandi hafi hvorki mætt né boðað forföll.
Með erindi, dags. 6. október 2025, hafi Vinnumálastofnun óskað eftir skýringum á fjarveru kæranda á boðaðan fund þann 1. október 2025. Þann 10. október 2025 hafi skýringar borist frá kæranda. Þar komi fram að kærandi hafi ekki séð tilkynningu stofnunarinnar.
Með erindi, dags. 20. október 2025, hafi kæranda verið birt ákvörðun um tveggja mánaða biðtíma eftir greiðslum atvinnuleysisbóta til hans á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Ákvörðun Vinnumálastofnunar hafi verið kærð til úrskurðarnefndar velferðarmála þann 19. nóvember 2025.
Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna.
Á meðal skilyrði greiðslu atvinnuleysisbóta er að viðkomandi sé í virkri atvinnuleit, sbr. a. lið 1. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Samkvæmt [h.] lið 1. mgr. 14. gr. felist virk atvinnuleit meðal annars í að hafa vilja og getu til að taka þátt í þeim vinnumarkaðsaðgerðum er standi til boða. Í 13. gr. laga um vinnumarkaðsúrræði nr. 55/2006 komi einnig fram skylda þess sem teljist tryggður samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar til að taka þátt í þeim vinnumarkaðsúrræðum sem Vinnumálastofnun ákveði.
Ákvæði 13. gr. sé svohljóðandi:
„Atvinnuleitandi skal fylgja eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum skv. 11. gr. og gera það sem í hans valdi stendur til að bæta vinnufærni sína til þess að verða virkur þátttakandi á vinnumarkaði. Þar á meðal skal atvinnuleitandi ávallt mæta í viðtöl til ráðgjafa Vinnumálastofnunar skv. 14. gr. og taka þátt í þeim vinnumarkaðsúrræðum er standa honum til boða. Atvinnuleitandi skal jafnframt tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti án ástæðulausrar tafar.“
Þá sé í 1. mgr. 14. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir kveðið á um að ráðgjafar Vinnumálastofnunar skuli hafa eftirlit með því að atvinnuleitendur fylgi eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum. Ráðgjafar stofnunarinnar boði atvinnuleitendur reglulega í viðtöl eftir þörfum hvers og eins atvinnuleitanda.
Á grundvelli 7. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar beri atvinnuleitendum að hafa reglulegt samband við Vinnumálastofnun eftir nánara fyrirkomulagi sem stofnunin ákveði. Í tilfelli kæranda hafi hann verið boðaður á kynningarfund hjá stofnuninni en samkvæmt 3. mgr. 13. gr. laganna sé Vinnumálastofnun heimilt að boða atvinnuleitendur til stofnunarinnar með sannanlegum hætti, meðal annars til að kanna hvort breytingar hafi orðið á högum þeirra sem kunni að hafa áhrif á rétt þeirra til greiðslu atvinnuleysisbóta. Atvinnuleitendur skuli þá vera reiðubúnir að mæta til stofnunarinnar með mjög skömmum fyrirvara. Ákvæði 3. mgr. 13. gr. hafi verið bætt við lög um atvinnuleysistryggingar með 4. gr. laga nr. 134/2009 en í athugasemdum með 4. gr. segi að gert sé ráð fyrir að stofnunin geti boðað atvinnuleitanda með allt að sólarhringsfyrirvara á skrifstofu sína sem næst sé lögheimili viðkomandi.
Fyrir liggi að kærandi hafi ekki mætt á fund þann 1. október 2025. Kærandi hafi fengið senda tilkynningu í tölvupósti, í farsíma og á „Mínum síðum“ um boðun á fund. Á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar hafi kæranda því verið gert að sæta viðurlögum vegna þessa. Ákvæðið sé svohljóðandi:
„Sá sem hafnar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. Hið sama gildir þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma skv. 6. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr.“
Í 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar komi skýrt fram að hafni einstaklingur þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli hann sæta tveggja mánaða biðtíma eftir atvinnuleysisbótum. Hið sama gildi þegar hinn tryggði mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma. Í greinargerð með frumvarpi til laga um atvinnuleysistryggingar sé efni 58. gr. laganna nánar skýrt. Þar segi að Vinnumálastofnun annist skipulag vinnumarkaðsaðgerða og að litið sé svo á að þeim sem tryggðir séu innan atvinnuleysistryggingakerfisins sé skylt að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum. Þá sé jafnframt tekið fram í greinargerðinni að bregðist hinn tryggði þeirri skyldu leiði það til viðurlaga í formi biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.
Af framangreindum lagaákvæðum sé ljóst að heimildir Vinnumálastofnunar til að boða til sín atvinnuleitendur og sömuleiðis skyldur atvinnuleitenda til að verða við slíkri boðun séu ríkar. Þá sé það fortakslaust skilyrði svo unnt sé að aðstoða atvinnuleitendur við að fá starf við hæfi og gefa þeim kost á þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsaðgerðum að atvinnuleitendur sinni þeim boðunum sem þeim séu send. Í skilmálum sem umsækjendur samþykki þegar þeir sæki um greiðslur atvinnuleysistrygginga komi fram að umsækjendum sé skylt að mæta í viðtöl, fundi, námskeið og önnur úrræði sem Vinnumálastofnun boði til.
Skýringar sem kærandi hafi veitt fyrir fjarveru á fund Vinnumálastofnunar séu þær að hann hafi ekki orðið var við boðun stofnunarinnar á umræddan fund. Framangreindar skýringar kæranda geti ekki talist gildar í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar. Í því samhengi bendi Vinnumálastofnun á að boð á fund hafi verið sent bæði með tölvupósti á skráð netfang og með smáskilaboðum á skráð símanúmer kæranda. Kærandi hafi í upphafi umsóknar verið upplýstur með fullnægjandi hætti um hvernig honum yrði send mikilvæg skilaboð og tilkynningar. Boðunin hafi borist kæranda með sannanlegum hætti, sbr. loka málslið 7. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Auk þess hafi sérstaklega verið tekið fram að tilkynningar um forföll skyldu berast án tafar.
Í ljósi framangreinds og þeirrar ríku skyldu sem hvíli á atvinnuleitendum til þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum sé það mat Vinnumálastofnunar að kærandi hafi brugðist skyldum sínum samkvæmt 13. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir, 7. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og 3. mgr. 13. gr. sömu laga. Með því að hafa ekki mætt til umrædds fundar hafi kærandi hafnað þátttöku í vinnumarkaðsúrræði og því beri honum að sæta viðurlögum í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006.
IV. Niðurstaða
Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 20. október 2025, um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.
Í 58. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um viðurlög við því ef þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað. Segir þar í 1. mgr. að sá sem hafni þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í að minnsta kosti fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur, skuli ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt VII. kafla laganna fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila. Hið sama gildi þegar hinn tryggði mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma samkvæmt 6. mgr. 9. gr., nú 7. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr. laganna.
Í athugasemdum greinargerðar með frumvarpi til laga nr. 134/2009, um breytingu á lögum nr. 54/2006, segir meðal annars um viðurlög við því að virða ekki boðun Vinnumálastofnunar:
„Í ljósi þess að mikilvægt er að Vinnumálastofnun geti haldið reglulegu sambandi við þá sem fá greiddar atvinnuleysisbætur, ekki síst til að geta fylgst með gangi atvinnuleitar og hvort stofnunin þurfi að koma að frekari stuðningi við viðkomandi, er lagt til að það kunni að varða viðurlögum á grundvelli laganna í þeim tilvikum er atvinnuleitendur virða ekki boðun stofnunarinnar skv. 1. gr. frumvarps þessa. Á þetta ekki síst við þegar fá störf eru í boði og auknar líkur eru á að atvinnuleitin dragist á langinn. Jafnframt er lagt til að sama gildi þegar atvinnuleitendur eru boðaðir til stofnunarinnar í því skyni að kanna hvort sá hinn sami uppfylli enn skilyrði laganna, sbr. 4. og 6. gr. frumvarps þessa. Er því gert ráð fyrir að sömu viðurlög komi til og eiga við þegar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað.“
Í 7. mgr. 9. gr. kemur fram að sá sem telst tryggður á grundvelli laganna skuli eftir að umsókn hans hafi verið samþykkt og á þeim tíma sem hann fái greiddar atvinnuleysisbætur eða sæti biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum hafa reglulegt samband við Vinnumálastofnun eftir nánara fyrirkomulagi sem stofnunin ákveði. Þegar Vinnumálastofnun upplýsi umsækjanda um að stofnunin hafi samþykkt umsókn um atvinnuleysisbætur skuli hún jafnframt upplýsa hlutaðeigandi um með hvaða hætti stofnunin muni koma upplýsingum eða öðrum boðum til hans meðan á atvinnuleit hans standi. Komi Vinnumálastofnun upplýsingum eða boðum til umsækjanda með þeim hætti sem stofnunin hafi tiltekið við hlutaðeigandi teljast upplýsingarnar eða boðin hafa borist með sannanlegum hætti.
Þá segir í 3. mgr. 13. gr. laga nr. 54/2006 að Vinnumálastofnun sé heimilt að boða þann tryggða til stofnunarinnar með sannanlegum hætti á þeim tíma sem hann fái greiddar atvinnuleysisbætur eða sæti biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum, meðal annars til að kanna hvort breytingar hafi orðið á högum hans sem kunni að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögunum. Hinn tryggði skuli þá vera reiðubúinn að mæta til stofnunarinnar með mjög skömmum fyrirvara.
Samkvæmt gögnum málsins var kærandi þann 30. september 2025 boðaður á kynningarfund hjá Vinnumálastofnun sem haldinn var þann 1. október 2025, klukkan 13:00. Kæranda var greint frá því að um skyldumætingu væri að ræða og að forföll bæri að tilkynna án ástæðulausrar tafar á tilgreinda vefslóð. Jafnframt var athygli kæranda vakin á því að ótilkynnt forföll og forföll án gildra ástæðna gætu valdið stöðvun greiðslna eftir viðeigandi ákvæðum laganna. Fyrir liggur að kærandi hvorki mætti á boðaðan fund né boðaði forföll. Af hálfu kæranda hefur komið fram að honum hafi yfirsést boðunin og því ekki getað mætt.
Framangreind boðun var send kæranda með sannanlegum hætti, þ.e. með tilkynningu á „Mínar síður“, í skráð tölvupóstfang og farsíma. Í 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 kemur skýrt fram að sá sem hafni þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli sæta viðurlögum á grundvelli ákvæðisins og hið sama gildir þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma. Að mati úrskurðarnefndar velferðarmála hefur kærandi ekki fært fram viðunandi skýringar sem réttlæta að hann hafi ekki mætt á boðaðan fund hjá Vinnumálastofnun.
Ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 er því staðfest.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð
Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 20. október 2025, um að fella niður rétt A, til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði, er staðfest.
F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála
Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir