09 febrúar 2026
/
Drög að breytingum á lögum um ársreikninga í Samráðsgátt
Atvinnuvegaráðuneytið hefur lagt fram í Samráðsgátt frumvarpsdrög um breytingu á lögum um ársreikninga.
Frumvarpið er í samræmi við stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnar Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins um einföldun regluverks og skilvirkt rekstrarumhverfi fyrirtækja á Íslandi.
Með frumvarpinu er reynt að tryggja að flokkun félaga samkvæmt ársreikningalögum endurspegli raunverulegt efnahagslegt umfang þeirra. Lögð er til rýmkun á stærðarmörkum þeirra félaga sem geta nýtt sér einföld rafræn skil með því að vera skilgreind sem örfélög. Stór hluti íslenskra fyrirtækja falla undir fyrrgreind stærðarmörk.
Verði frumvarpið að lögum munu fleiri minni rekstraraðilar falla undir skilgreiningu laganna um örfélög og njóta þeirrar stöðu sem því fylgir. Með frumvarpinu er verið að koma til móts við ábendingar frá atvinnulífinu um að dreifa álagi á skilum ársreikninga yfir lengri tíma og létta álögur á minni félög. Til að auka skilvirkni og gagnsæi fyrir markaðinn er einnig gert ráð fyrir að upplýsingar um stærri félög berist fyrr.
Þær breytingar sem er að finna í frumvarpinu eru fjórþættar:
- Í fyrsta lagi er lögð til breyting á stærðarmörkum í lögunum. Stærðarmörk félaga í lögum um ársreikninga eru þau sömu innan EES og er með frumvarpinu verið að hækka þau um 25%. Þó eru örfélög hækkuð hlutfallslega meira þar sem fyrri mörk voru lægri en hæstu leyfileg mörk samkvæmt ársreikningatilskipun.
- Í öðru lagi er lögð til hækkun um 25% á endurskoðunarmörkum í lögunum. Talið er rétt að hækka endurskoðunarmörkin í samræmi við hækkun á stærðarmörkum félaga. Með þessari breytingu er meðal annars verið að bregðast við ábendingum sem fram hafa komið frá atvinnulífinu.
- Í þriðja lagi er innleiðing á tilskipun (ESB) nr. 2021/2101 vegna skyldu um að útbúa skýrslu með upplýsingum um tekjuskatt. Markmið tilskipunarinnar er almennt að auka gagnsæi og ábyrgð félaga. Tilskipunin tekur eingöngu til stórra fjölþjóðlegra félaga.
- Í fjórða lagi eru lagðar til breytingar vegna skila ársreikninga til opinberrar birtingar. Einnig er lagt til að stærri og kerfislega mikilvæg félög skili ársreikningi fyrr á árinu en að skilafrestur fyrir minni félög verði lengdur.
Óskað er eftir umsögnum, athugasemdum og ábendingum um frumvarpsdrögin á Samráðsgátt fyrir 16. febrúar nk.