09 febrúar 2026
/
Sýslumannsembættin hljóta heiðursverðlaun fyrir framúrskarandi framlag til upplýsingatækni
Sýslumannsembættin hlutu heiðursverðlaun UT-verðlauna Ský árið 2026 fyrir framúrskarandi framlag til upplýsingatækni en verðlaunin voru afhent föstudaginn 6. febrúar við hátíðlega athöfn á UTmessunni.
Í rökstuðningi og umsögn dómnefndar kemur fram að sýslumenn hafi á undanförnum árum ráðist í markvissa og metnaðarfulla stafræna umbreytingu á þjónustu sinni og séu nú leiðandi í rafrænni opinberri þjónustu. Hundruð nýrra rafrænna ferla og lausna hafa umbreytt stjórnsýslunni, einfaldað samskipti og fært þjónustuna nær almenningi.
„Árlega nýtir um helmingur landsmanna sér þjónustu sýslumanna, enda eru viðfangsefni þeirra fjölþætt. Sýslumenn fóru fyrstir opinberra stofnana inn á vef Ísland.is með skýra framtíðarsýn að leiðarljósi: að auka möguleika viðskiptavina á rafrænni þjónustu og sjálfsafgreiðslu, hvar og hvenær sem er,“ segir í umsögn dómnefndar.
Sjálfvirknivæðing og aukið framboð rafrænnar þjónustu
Eftirfarandi þjónustur eru nú rafrænar að hluta eða öllu leyti: þinglýsingar og vottorð, andlátstilkynningar og skipti dánarbúa, vegabréf og nafnskírteini, ökuskírteini og tengd mál, sakavottorð og sektir og fjölskyldumál. Þá hefur málastofnun og skráning verið sjálfvirknivædd og allar þjónustuleiðir verið færðar á vef Ísland.is.
Á sama tíma og íbúum landsins hefur fjölgað um 40 þúsund og málafjöldi margfaldast hefur fjöldi stöðugilda hjá embættunum staðið í stað. Umbreytingin hefur verið leidd af starfsfólki embættanna sjálfra í samstarfi við dómsmálaráðuneytið og hefur skilað bæði aukinni skilvirkni og betri þjónustu.
„Stafræn umbreyting sýslumanna sýnir með skýrum hætti að þegar opinber stjórnsýsla nýtir tæknina markvisst er hægt að auka þjónustustig, bæta aðgengi og tryggja betri nýtingu fjármuna. Þetta er raunverulegur samfélagslegur ávinningur,“ segir Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra.