19 febrúar 2026
/
Grundvallarbreytingar á lagaumgjörð rammaáætlunar
Frumvarp umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra um breytingu á lögum um verndar- og orkunýtingaráætlun og raforkulögum var samþykkt á Alþingi í dag.
Um er að ræða umfangsmestu breytingar sem gerðar hafa verið á lagaumgjörð rammaáætlunar frá upphafi.
Með lögunum er mælt fyrir um að mörkuð skuli stefna um orkuöflun til 25 ára. Stefnan mun taka til allrar orkuöflunar og auka fyrirsjáanleika í uppbyggingu orkukerfisins með skýrum og mælanlegum markmiðum og ber verkefnisstjórn rammaáætlunar að taka mið af þeirri stefnu við flokkun virkjunarhugmynda.
Þá er ferli rammaáætlunar gert að samfellu þannig að virkjunarhugmyndir komi til afgreiðslu hjá ráðherra og Alþingi um leið og faglegu mati er lokið í stað þess að rammaáætlun sé einungis afgreidd á fjögurra ára fresti.
Fastir tímafrestir fyrir alla sem koma að ferlinu eru bundnir í lög, samráðsferlum fækkað og frestur sveitarstjórna til ákvörðunar um landnotkun styttur.
Ráðherra fær enn fremur heimild til að veita undanþágu til matsskyldra rannsókna á virkjunarhugmyndum í biðflokki, að uppfylltum skilyrðum, svo þróa megi slíka kosti áfram. Jafnframt er felld brott sú regla að skortur á upplýsingum sé forsenda þess að virkjunarhugmynd rati í biðflokk.
Lögin skýra jafnframt og lagfæra heimildir til að afmarka verndarsvæði í samræmi við dóm Hæstaréttar frá 2024, sem dæmdi friðlýsingu tiltekins svæðis í verndarflokki áætlunarinnar ólögmæta þar sem svæðið hafði ekki verið afmarkað með formlega réttum hætti þegar verndarsvæðið var samþykkt á Alþingi.
Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra: „Í dag samþykkti Alþingi, með öllum greiddum atkvæðum, umfangsmestu breytingar sem gerðar hafa verið á lagaumgjörð rammaáætlunar frá upphafi. Framvegis verða orkuöflunarvilji og orkuöflunarmarkmið stjórnvalda grundvallarbreytur í ferli rammaáætlunar. Nýju rammalögin fela líka í sér fastákveðna tímafresti, færri og styttri samráðsferla, sveigjanlegri reglur um afmörkun verndarsvæða og heimildir til matsskyldra rannsókna vegna virkjunarhugmynda í biðflokk. Allt eru þetta mikilvæg skref í þágu aukinnar orkuöflunar og verðmætasköpunar.”