19 febrúar 2026

/

„Húsnæði fyrst“: Hyggst setja stefnu á landsvísu um málefni þeirra sem búa við heimilisleysi

{image.Description}
Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra.

Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, hyggst setja stefnu á landsvísu um málefni þeirra sem búa við heimilisleysi eða aðrar óviðunandi húsnæðisaðstæður. Stefnan mun fylgja hugmyndafræðinni um húsnæði fyrst (e. Housing first). Ráðherra tilkynnti þetta á opnum fundi um heimilisleysi sem Húsnæðis- og mannvirkjastofnun stóð fyrir í morgun.



„Húsnæðismál eru stærsta kjaramál hvers og eins. Heimilisleysi er stærsta fátæktargildran af þeim öllum. Það er þess vegna sem hugmyndafræðin um housing first boðar það að fyrst skuli tryggja fólki þak yfir höfuðið, svo skuli leysa önnur vandamál,“ sagði ráðherra í ávarpi sínu.


Fram kom að hann sæi mikil tækifæri til að vinna með samstilltari og skipulagðari hætti að málefnum heimilislausra. Reykjavíkurborg hefði þar verið leiðandi afl undanfarin ár en ríkisvaldið þyrfti jafnframt að stíga inn í með samræmdri stefnu á landsvísu og viðeigandi stuðningi. 


Ráðherra benti á að ríkisstjórnin hefði í lok október kynnt fyrsta aðgerðapakkann sinn á sviði húsnæðismála og að í framhaldinu yrðu kynntar frekari aðgerðir til að bæta húsnæðisöryggi fólks og auka stöðugleika á húsnæðismarkaði. Stefna á landsvísu um málefni þeirra sem búa við heimilisleysi eða aðrar óviðunandi húsnæðisaðstæður yrði ein þessara aðgerða. 


„Þar þurfa allir hlutaðeigandi að koma saman að verkefninu. Það er ekki nóg að tryggja viðunandi húsnæði heldur þarf samhliða að tryggja að öflug þjónusta sé til staðar fyrir þau sem þess þurfa, til að vinna að áframhaldandi bata, endurhæfingu og virkni,“ sagði Ragnar Þór og bætti við:


„En fyrsta skrefið, forsenda frekari bata, hlýtur alltaf að vera að eiga heimili með því húsnæðisöryggi og fyrirsjáanleika sem því fylgir.“