19 febrúar 2026

/

Mál n. 770/2025-Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 770/2025

Fimmtudaginn 19. febrúar 2026

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 27. nóvember 2025, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 27. nóvember 2025, um að setja greiðslur atvinnuleysisbóta til hans á bið.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um greiðslur atvinnuleysisbóta hjá Vinnumálastofnun 23. október 2025. Með bréfi Vinnumálastofnunar, dags. 27. nóvember 2025, var kæranda tilkynnt að umsókn hans hefði verið samþykkt en með vísan til þess að hann ætti ótekinn biðtíma frá fyrri umsókn yrðu bætur ekki greiddar fyrr en sá tími væri liðinn.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 27. nóvember 2025. Með bréfi, dagsettu sama dag, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 26. janúar 2026 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 28. janúar 2026. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Í kæru til úrskurðarnefndar kemur fram að kærandi sé í 50% starfshlutfalli og hafi þegið atvinnuleysisbætur til að bæta upp tekjumissi vegna skerts starfshlutfalls. Eftir að kærandi hafi fengið synjun frá Vinnumálastofnun hafi tekið við fimm mánaða biðtími en hann geti ekki staðið straum af útgjöldum sínum á því tímabili.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi verið skráður atvinnulaus hjá Vinnumálastofnun á árunum 2022 og 2023. Kærandi hafi einnig sótt um atvinnuleysisbætur í janúar 2025 en með ákvörðun stofnunarinnar, dags. 9. október 2025, hafi kæranda verið gert að sæta þriggja mánaða biðtíma eftir greiðslum atvinnuleysisbóta. Kærandi hafi áður sætt biðtíma í tvo mánuði.

Ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður bótarétt kæranda í þrjá mánuði hafi verið kærð til úrskurðarnefndar þann 9. október og úrskurðarnefnd velferðarmála hafi staðfest ákvörðun stofnunarinnar í máli nr. 658/2025 með úrskurði sínum þann 8. janúar 2026.

Kærandi hafi síðast sótt um greiðslu atvinnuleysistrygginga með umsókn, dags. 23. október 2025. Með erindi, dags. 27. nóvember 2025, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hans hefði verið samþykkt og að útreiknaður bótaréttur væri 100%. Kæranda hafi jafnframt verið tilkynnt að vegna fyrri ákvarðana stofnunarinnar um viðurlög ætti kærandi enn ótekinn fimm mánaða biðtíma við dagsetningu umsóknar.

Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna.

Mál þetta varði ákvörðun Vinnumálastofnunar frá 27. nóvember 2025 um að kærandi skuli sæta eftirstöðvum viðurlaga þegar hann hafi sótt aftur um greiðslu atvinnuleysisbóta þann 23. október 2025.

Í máli úrskurðarnefndar 658/2025 hafi úrskurðarnefndin staðfest ákvörðun stofnunarinnar frá [9.] október 2025 um þriggja mánaða bið vegna ótilkynntra tekna og opinnar launagreiðendaskrár á sama tíma og hann hafi þegið greiðslur atvinnuleysisbóta.

Í 1. mgr. 61. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé meðal annars kveðið á um að sá sem hafi sætt viðurlögum samkvæmt 57. til 59. gr. eða biðtíma samkvæmt 54. og 55. gr. og eitthvert þeirra tilvika sem þar greini eigi sér stað að nýju á sama tímabili samkvæmt 29. gr. skuli ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt VII. kafla fyrr en að þremur mánuðum liðnum. Ákvörðun um viðurlög á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar hafi því leitt til ítrekunaráhrifa fyrri viðurlaga hans samkvæmt 1. mgr. 61. gr. þar sem hann hafi ekki unnið sér inn réttindi til nýs bótatímabils samkvæmt 29. gr. laganna. Heildarviðurlagatími kæranda hafi því verið fimm mánuðir.

Í lögum um atvinnuleysistryggingar sé kveðið á um nokkur tilvik þar sem biðtími eða viðurlög samkvæmt lögunum falli niður eða frestist. Þannig sé meðal annars kveðið á um í 3. mgr. 58. gr. að taki hinn tryggði starfi sem ekki sé hluti af vinnumarkaðsaðgerðum meðan á viðurlagatíma samkvæmt 1. mgr. standi falli viðurlög niður eftir að hinn tryggði hafi starfað í að minnsta kosti hálfan mánuð áður en hann sæki aftur um atvinnuleysisbætur. Ekki sé sambærileg heimild í lögum um að fella niður biðtíma vegna starfa atvinnuleitanda í þeim tilfellum sem viðkomandi hafi þurft að sæta ítrekuðum viðurlögum. Í [5.] mgr. 61. gr. sé hins vegar kveðið á um að ítrekunaráhrif samkvæmt ákvæðinu falli niður þegar nýtt tímabil skv. 29. gr. hefjist, sbr. 30. eða 31. gr. laganna.

Kærandi hafi ekki unnið sér inn rétt til nýs bótatímabils þegar hann hafi sótt um atvinnuleysisbætur í október 2025, enda hafi þá ekki verið liðnir að minnsta kosti 24 mánuðir frá því að hann hafi síðast fengið samþykkta umsókn og sætt viðurlögum. Þegar kærandi hafi sótt um atvinnuleysisbætur hafi hann átt eftir að taka út fimm mánuði af útistandandi biðtíma sínum. Hann hafi því fyrst átt rétt á greiðslum atvinnuleysisbóta þegar sá biðtími hafi verið liðinn.

Með vísan til alls framangreinds sé það niðurstaða Vinnumálastofnunar að rétt hafi verið staðið að ákvörðun í máli kæranda og að eftirstöðvar biðtíma hans skuli halda áfram að líða frá síðasta umsóknardegi kæranda.

IV.  Niðurstaða

Kærð eru ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 27. nóvember 2025, um að setja greiðslur atvinnuleysisbóta til kæranda á bið.

Með ákvörðunum Vinnumálastofnunar frá 20. ágúst 2025 og 9. október 2025 var réttur kæranda til atvinnuleysisbóta felldur niður í annars vegar tvo og hins vegar þrjá mánuði á grundvelli 1. mgr. 59. gr., sbr. 1. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Kærandi sótti á ný um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 23. október 2025. Umsókn hans var samþykkt 27. nóvember 2025 en tekið var fram að bætur yrðu ekki greiddar fyrr en ótekinn biðtími frá fyrri umsókn væri liðinn.

Í 5. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 kemur fram að ítrekunaráhrif samkvæmt ákvæðinu falli niður þegar nýtt tímabil samkvæmt 29. gr. hefjist, sbr. 30. eða 31. gr. laganna. Í 29. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um að sá sem telst tryggður samkvæmt lögunum geti átt rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta samfellt í 30 mánuði frá þeim degi er Vinnumálastofnun tók við umsókn hans um atvinnuleysisbætur nema annað leiði af lögunum. Biðtími eftir greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt X. kafla telst hluti tímabilsins sem og sá tími er viðurlög samkvæmt XI. kafla standi yfir. Í 4. mgr. 29. gr. laganna kemur fram að tímabilið samkvæmt 1. mgr. haldi áfram að líða þegar hinn tryggði sækir að nýju um atvinnuleysisbætur til Vinnumálastofnunar eftir að hafa starfað í skemmri tíma en 24 mánuði á innlendum vinnumarkaði frá því að hann fékk síðast greiddar atvinnuleysisbætur. Þá segir í 31. gr. laga nr. 54/2006 að nýtt tímabil samkvæmt 29. gr. hefjist þegar hinn tryggði sæki að nýju um atvinnuleysisbætur til Vinnumálastofnunar eftir að hafa starfað samfellt á innlendum vinnumarkaði í að minnsta kosti 24 mánuði frá því að hann fékk síðast greiddar atvinnuleysisbætur.

Samkvæmt gögnum málsins hafði kærandi ekki, þegar umsókn hans barst Vinnumálastofnun þann 23. október 2025, starfað í 24 mánuði á innlendum vinnumarkaði frá því að hann fékk síðast greiddar atvinnuleysisbætur. Kærandi hafði því ekki áunnið sér rétt til nýs bótatímabils samkvæmt 31. gr. laga nr. 54/2006 og því hélt allur ótekinn biðtími vegna eldri viðurlaga samkvæmt ákvörðunum Vinnumálastofnunar, dags. 20. ágúst og 9. október 2025, áfram að líða þegar hann skráði sig atvinnulausan að nýju 23. október 2025.

Með vísan til framangreinds er hin kærða ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 27. nóvember 2025, staðfest.

 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 27. nóvember 2025, um að setja greiðslur atvinnuleysisbóta til A, á bið, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir