19 febrúar 2026

/

Mál nr. 760/2025-Úrskurður

 

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 760/2025

Fimmtudaginn 19. febrúar 2026

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 25. nóvember 2025, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 18. nóvember 2025, um að fella niður rétt hans til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 28. nóvember 2024 og var umsóknin samþykkt 3. janúar 2025. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 18. nóvember 2025, var kæranda tilkynnt að bótaréttur hans væri felldur niður í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar þar sem hann hefði hafnað þátttöku í vinnumarkaðsúrræði.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 25. nóvember 2025. Með bréfi, dags. 27. nóvember 2025, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 26. janúar 2026 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 28. janúar 2026. Athugasemdir bárust frá kæranda 10. febrúar 2026.

II.  Sjónarmið kæranda

Í kæru til úrskurðarnefndar vísar kærandi til bréfs sem hann hafi sent Vinnumálastofnun 7. nóvember 2025. Í því komi fram að hann hafi verið boðaður á námskeið og mætt þann 20., 21. og 23. október. Þann 27. október hafi hann hins vegar vaknað með frosið bak (þursabit) og hafi ekki náð að koma sér af stað. Kærandi viðurkenni að hann hafi gert mistök með að tilkynna ekki forföll, hann hafi ætlað að gera grein fyrir því daginn eftir. Þann 28. október hafi kærandi lagt af stað að heiman en hafi ekki komist neitt vegna ófærðar. Að sögn kæranda hafi fólk verið hvatt til þess að huga að heimferð í hádeginu vegna ófærðar þann dag. Kærandi hafi farið að þeim ráðum. Kærandi vilji meina að hann hefði vissulega átt að tilkynna forföll þann 27. október, en forföll þann 28. október hafi verið vegna veðurs.

Þessu til viðbótar geri kærandi grein fyrir því að Vinnumálastofnun meti skýringar hans ekki gildar. Hann geti ekki sætt sig við tveggja mánaða niðurfellingu á atvinnuleysisbótum þar sem ekki hafi verið gætt að meðalhófsreglu og sanngirni. Kærandi ítreki að 28. október hafi verið ófært á höfuðborgarsvæðinu og öllum hafi verið kunnugt um það. Kærandi hafi verið á atvinnumarkaði í að minnsta kosti 35 ár og hafi ekki þurft að þiggja atvinnuleysisbætur fyrr en á árinu 2025.

Í athugasemdum kæranda er því mótmælt að mæting á námskeiðið hafi aðeins verið 60%. Að mati kæranda hafi mætingin verið 75 eða 80% þar sem 28. október 2025 ætti ekki að vera talinn með. Þann dag hafi verið ófært á höfuðborgarsvæðinu öllu. Kærandi hafi mætt þrjá daga af fjórum mögulegum dögum námskeiðsins sem geri 75% mætingu. Kærandi hafi reynt að mæta 28. október en setið fastur í umferðinni í tvo klukkutíma. Ef heiðarleg tilraun til mætingar teljist mæting sé hann kominn með 80% mætingu, þ.e. fjóra daga af fimm. Samkvæmt reglum Vinnumálastofnunar sé 80% mætingarskylda á námskeið áður en til viðurlaga komi. Að svipta atvinnuleitanda atvinnuleysisbótum í tvo mánuði vegna hugsunarleysis sé of langt gengið.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi sótt um greiðslu atvinnuleysistrygginga með umsókn, dags. 28. nóvember 2024. Með erindi, dags. 3. janúar 2025, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hans hefði verið samþykkt og að útreiknaður bótaréttur væri 100%.

Þann 16. október 2025 hafi kærandi verið boðaður á námskeið á vegum þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar sem haldið hafi verið dagana 20., 21., 23., 27. og 28. október 2025. Kærandi hafi verið upplýstur að um skyldumætingu væri að ræða og að öll forföll bæri að tilkynna án ástæðulausrar tafar á tilgreindri vefslóð. Kæranda hafi sömuleiðis verið tjáð að ótilkynnt forföll og forföll án gildrar ástæðu kynnu að leiða til þess að greiðslur atvinnuleysisbóta til hans yrðu stöðvaðar. Boðun hafi verið birt á „Mínum síðum“ atvinnuleitanda. Ásamt því hafi athygli verið vakin á nýjum samskiptum með tölvupósti á netfang kæranda og með smáskilaboðum í skráð símanúmer hans, X. Samkvæmt skráningu Vinnumálastofnunar hafi smáskilaboðin borist í símtæki kæranda þann 16. október 2025, klukkan 15:04. Kærandi hafi mætt í þrjú fyrstu skiptin en með fjarveru sinni 27. og 28. október 2025 hafi hann einvörðungu náð 60% mætingu á námskeiðið.

Með erindi, dags. 4. nóvember 2025, hafi verið óskað eftir skriflegri afstöðu kæranda á ástæðum fjarveru hans. Áréttað hafi verið að ef kærandi hefði hafnað þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum án gildra ástæðna gæti hann þurft að sæta biðtíma eftir greiðslu atvinnuleysisbóta. Kæranda hafi verið veittur sjö virkra daga frestur til að koma að skýringum sínum. Eftirfarandi skýringar kæranda hafi borist Vinnumálastofnun þann 7. nóvember 2025:

„Þann 27. okt. vaknaði ég með frosið bak (þursabit) og hafði mig ekki af stað. Það voru mín mistök að tilkynna ekki forföll, ég játa það, en ég hugsaði sem svo að ég myndi gera grein fyrir því daginn eftir suður í Kópavogi.

Þann 28. okt. lagði ég af stað að heiman um hádegi, en komst lítið áfram vegna ófærðar. Í hádegisfréttum RUV kl:12:20 hvatti lögreglan fólk til þess að huga að heimferð og ég fór að þeirra ráðum; sem sagt það var ófært / illfært þennan dag.

Niðurstaða mín er þessi: ég hefði vissulega átt að tilkynna forföll þann 27. okt., en um forföll þann 28. okt., er það að segja að veðuröflin réðu för.“

Með erindi, dags. 18. nóvember 2025, hafi kæranda verið tilkynnt um ákvörðun Vinnumálastofnunar að fella niður greiðslur atvinnuleysisbóta til hans í tvo mánuði sökum þess að hann hefði ekki uppfyllt kröfur um mætingarskyldu á námskeið á tímabilinu 20. til 28. október 2025. Ákvörðun þessi hafi verið tekin á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna.

Eitt af almennum skilyrðum fyrir greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé að vera í virkri atvinnuleit, sbr. a. lið 1. mgr. 13. gr. Í 14. gr. laganna sé kveðið á um hvað felist í virkri atvinnuleit en samkvæmt [h. lið] 1. mgr. 14. gr. felist virk atvinnuleit meðal annars í því að hafa vilja og getu til að taka þátt í þeim vinnumarkaðsaðgerðum er standi til boða. Í 13. gr. laga nr. 55/2006 um vinnumarkaðsaðgerðir komi einnig fram skylda þess sem teljist tryggður samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar til að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum sem Vinnumálastofnun ákveði. Ákvæði 13. gr. sé svohljóðandi:

„Atvinnuleitandi skal fylgja eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum skv. 11. gr. og gera það sem í hans valdi stendur til að bæta vinnufærni sína til þess að verða virkur þátttakandi á vinnumarkaði. Þar á meðal skal atvinnuleitandi ávallt mæta í viðtöl til ráðgjafa Vinnumálastofnunar skv. 14. gr. og taka þátt í þeim vinnumarkaðsúrræðum er standa honum til boða. Atvinnuleitandi skal jafnframt tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti án ástæðulausrar tafar.“

Þá sé í 1. mgr. 14. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir kveðið á um að ráðgjafar Vinnumálastofnunar skuli hafa eftirlit með því að atvinnuleitendur fylgi eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum.

Af framangreindum lagaákvæðum sé ljóst að heimildir Vinnumálastofnunar til að boða til sín atvinnuleitendur, og sömuleiðis skyldur atvinnuleitenda til að verða við slíkri boðun, séu ríkar. Þá sé það fortakslaust skilyrði svo unnt sé að aðstoða atvinnuleitendur við að fá starf við hæfi og gefa þeim kost á þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsaðgerðum að atvinnuleitendur sinni þeim boðunum sem þeim séu send. Í skilmálum sem umsækjendur samþykki þegar þeir sæki um greiðslur atvinnuleysistrygginga komi fram að umsækjendum sé skylt að mæta í viðtöl, fundi, námskeið og önnur úrræði sem Vinnumálastofnun boði til.

Fyrir liggi að kærandi hafi ekki uppfyllt mætingarskyldu á námskeið sem haldið hafi verið dagana 20., 21., 23., 27. og 28. október 2025. Á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar hafi kæranda verið gert að sæta viðurlögum vegna þessa.

Í 1. mgr. 58. gr. segi:

„Sá sem hafnar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. Hið sama gildir þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma skv. 6. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr.“

Í 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar komi skýrt fram að hafni einstaklingur þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli hann sæta tveggja mánaða biðtíma eftir atvinnuleysisbótum. Hið sama gildi þegar hinn tryggði mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma. Í greinargerð með frumvarpi til laga um atvinnuleysistryggingar sé efni 58. gr. laganna nánar skýrt. Þar segi að Vinnumálastofnun annist skipulag vinnumarkaðsaðgerða og að litið sé svo á að þeim sem tryggðir séu innan atvinnuleysistryggingakerfisins sé skylt að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum. Þá sé jafnframt tekið fram í greinargerðinni að bregðist hinn tryggði þeirri skyldu leiði það til viðurlaga í formi biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.

Skýringar kæranda lúti að því að hann hafi þjáðst af bakverk þann 27. október 2025 og þá daginn eftir hafi hann ekki mætt vegna óveðurs á höfuðborgarsvæðinu. Kærandi hafi þó ekki tilkynnt að hann hefði verið ófær um að sinna vinnumarkaðsúrræðum vegna þessa.

Í ljósi þeirrar ríku skyldu sem hvíli á atvinnuleitendum til þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sé það mat Vinnumálastofnunar að kærandi hafi brugðist skyldum sínum samkvæmt 13. gr. laga um vinnumarkaðsúrræði, 7. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og 3. mgr. 13. gr. sömu laga. Engin tilkynning hafi borist Vinnumálastofnun um að kærandi kæmist ekki á boðað vinnumarkaðsúrræði. Þær skýringar sem kærandi hafi veitt á ástæðum þess að hann hafi ekki sinnt námskeiðinu geti að mati Vinnumálastofnunar talist gildar einar og sér en í því samhengi vísist þó til þess að skýrt hafi verið tekið fram í boðun að öll forföll skyldu tilkynnt og með hvaða hætti skyldi gera það. Engin forföll hafi verið boðuð af hálfu kæranda. Líkt og fyrr segi beri atvinnuleitanda að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunni að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti án ástæðulausrar tafar. Það sé því mat Vinnumálastofnunar að kærandi hafi ekki fært fram gildar ástæður fyrir fjarveru í boðað vinnumarkaðsúrræði í skilningi 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Í ljós þess að kærandi hafi ekki mætt á boðað vinnumarkaðsúrræði án gildra skýringa í skilningi 1. mgr. 58. gr., beri honum að sæta viðurlögum á grundvelli sama ákvæðis.

Með vísan til alls framangreinds sé það niðurstaða Vinnumálastofnunar að kærandi skuli sæta viðurlögum í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Í 58. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um viðurlög við því ef þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað. Segir þar í 1. mgr. að sá sem hafni þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í að minnsta kosti fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur, skuli ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt VII. kafla laganna fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila. Hið sama gildi þegar hinn tryggði mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma samkvæmt 6. mgr. 9. gr., nú 7. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr. laganna.

Í athugasemdum greinargerðar með frumvarpi til laga nr. 54/2006 segir meðal annars um 1. mgr. 58. gr. að ekki séu tilgreindar sérstakar vinnumarkaðsaðgerðir sem geti valdið því að hinn tryggði þurfi að sæta viðurlögum samkvæmt ákvæðinu heldur eigi það við um allar aðgerðir sem hinum tryggða sé boðið að taka þátt í til að auka líkur sínar á að fá vinnu við hæfi. Gert sé ráð fyrir að Vinnumálastofnun annist skipulag vinnumarkaðsaðgerða og að hinir tryggðu njóti faglegrar ráðgjafar sérfræðinga stofnunarinnar. Þannig megi ætla að þeim sem eru tryggðir innan atvinnuleysistryggingakerfisins verði boðin þátttaka í vinnumarkaðsúrræðum við hæfi en litið sé svo á að þeim sé skylt að taka þátt í slíkum úrræðum. Bregðist hinn tryggði þessum skyldum sínum leiði það til viðurlaga í formi biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.

Samkvæmt gögnum málsins var kærandi þann 16. október 2025 boðaður á námskeið á vegum Vinnumálastofnunar sem haldið var dagana 20., 21., 23., 27. og 28. október 2025. Kæranda var greint frá því að um skyldumætingu væri að ræða alla daga námskeiðsins og ef upp kæmu forföll bæri að tilkynna þau án ástæðulausrar tafar á „Mínum síðum“ kæranda. Jafnframt var athygli kæranda vakin á því að ótilkynnt forföll gætu valdið stöðvun greiðslna eftir viðeigandi ákvæðum laganna. Þá var kærandi hvattur til að hafa samband ef eitthvað væri óljóst eða hann óskaði frekari upplýsinga.

Fyrir liggur að kærandi mætti ekki á námskeiðið dagana 27. og 28. október 2025 og tilkynnti engin forföll. Af hálfu kæranda hefur komið fram að hann hafi þjáðst af bakverk þann 27. október 2025 og hafi ekki komist á námskeiðið vegna ófærðar þann 28. október 2025. 

Af gögnum málsins má ráða að kæranda hafi mátt vera fullljóst að honum bæri að uppfylla mætingarskyldu alla daga námskeiðsins og að nauðsynlegt væri að tilkynna forföll án ástæðulausrar tafar ef svo bæri undir. Að mati úrskurðarnefndar velferðarmála var kærandi ekki ófær um að tilkynna forföll dagana 27. og 28. október 2025. Að því virtu verður fallist á það með Vinnumálastofnun að kæranda beri að sæta viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006.

Ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 er því staðfest.

 


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 18. nóvember 2025, um að fella niður rétt A, til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir