19 febrúar 2026

/

Mál nr. 784/2025-Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 784/2025

Fimmtudaginn 19. febrúar 2026

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, móttekinni 2. desember 2025, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 20. október 2025, um að fella niður rétt hans til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 12. júní 2025 og var umsóknin samþykkt 18. júlí 2025. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 20. október 2025, var kæranda tilkynnt að réttur hans til atvinnuleysisbóta hefði verið felldur niður í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar með vísan til þess að hann hefði hafnað þátttöku í vinnumarkaðsúrræði.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 2. desember 2025. Með bréfi, dags. 3. desember 2025, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 26. janúar 2026 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 28. janúar 2026. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Í kæru til úrskurðarnefndar kemur fram að kærandi hafi unnið á Íslandi í nákvæmlega níu mánuði og telji sig eiga fullan rétt á mánaðarlegum greiðslum atvinnuleysisbóta. Kærandi hafi aðeins fengið þrjá mánuði en hafi svo fundið vinnu og verið ráðinn til reynslu. Hann hafi hins vegar aðeins unnið á þeim stað í nokkra daga þar sem hann hafi ekki verið hæfur í starfið. Kærandi hafi verið boðaður á fund hjá Vinnumálastofnun þann 1. október 2025 en hafi verið rekinn úr starfi 2. október 2025 án þess að hafa verið opinberlega skráður. Að sögn kæranda hafi skjölum og síma hans verið stolið úr bílnum hans. Hann hafi því ekki getað farið neitt en til sé lögregluskýrsla sem staðfesti atvikið. Kæranda hafi nýlega tekist að endurheimta ökuskírteinið sitt og þá farið í bankann til að setja upp rafræn skilríki til að endurheimta aðgang að island.is og Vinnumálastofnun. Kærandi geti ekki staðfest að hann sé að leita sér að vinnu en hann telji ástæður sínar nokkuð réttlætanlegar og óski því eftir að eiga aftur rétt á aðstoð.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi sótt um greiðslur atvinnuleysisbóta með umsókn, dags. 12. júní 2025. Með bréfi, dags. 18. júlí 2025, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hans hefði verið samþykkt og að útreiknaður bótaréttur væri 80%.

Þann 30. september 2025 hafi kærandi verið boðaður á upplýsingafund á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar, Grensásvegi 9, þann 1. október 2025, klukkan 13:00. Athygli hafi verið vakin á að ótilkynnt forföll og forföll án gildrar ástæðu gætu valdið stöðvun á greiðslum atvinnuleysistrygginga. Boðun þessi hafi verið send með smáskilaboðum í símanúmer kæranda og tölvupósti á skráð netfang í kerfi stofnunarinnar. Smáskilaboðin hafi borist í símtæki kæranda þann 30. september 2025, klukkan 11:19. Kærandi hafi hvorki mætt á boðaðan fund né tilkynnt um forföll.

Vinnumálastofnun hafi formlega óskað eftir skýringum frá kæranda á fjarveru á boðaðan fund með erindi, dags. 6. október 2025 og þann 8. október hafi skýringar borist frá kæranda. Þar hafi komið fram að kærandi hafi verið í „prufu (e. trial)“ hjá B dagana 1. til 3. október 2025. Kærandi hafi einnig sent inn launaseðil frá fyrirtækinu sem hafi verið útgefinn 30. september 2025 og átt við tímabilið 1. til 30. september 2025.

Með erindi stofnunarinnar, dags. 20. október 2025, hafi kæranda verið birt ákvörðun um tveggja mánaða biðtíma eftir greiðslum atvinnuleysisbóta til hans á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna.

Á meðal skilyrða greiðslu atvinnuleysisbóta sé að viðkomandi sé í virkri atvinnuleit, sbr. a. lið 1. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Samkvæmt [h. lið] 1. mgr. 14. gr. felist virk atvinnuleit meðal annars í því að hafa vilja og getu til að taka þátt í þeim vinnumarkaðsaðgerðum er standi til boða. Í 13. gr. laga um vinnumarkaðsúrræði nr. 55/2006 komi einnig fram skylda þess sem teljist tryggður samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar til að taka þátt í þeim vinnumarkaðsúrræðum sem Vinnumálastofnun ákveði. Ákvæði 13. gr. sé svohljóðandi:

„Atvinnuleitandi skal fylgja eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum skv. 11. gr. og gera það sem í hans valdi stendur til að bæta vinnufærni sína til þess að verða virkur þátttakandi á vinnumarkaði. Þar á meðal skal atvinnuleitandi ávallt mæta í viðtöl til ráðgjafa Vinnumálastofnunar skv. 14. gr. og taka þátt í þeim vinnumarkaðsúrræðum er standa honum til boða. Atvinnuleitandi skal jafnframt tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti án ástæðulausrar tafar.“

Þá sé í 1. mgr. 14. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir kveðið á um að ráðgjafar Vinnumálastofnunar skuli hafa eftirlit með því að atvinnuleitendur fylgi eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum. Ráðgjafar stofnunarinnar skulu boða atvinnuleitendur reglulega í viðtöl eftir þörfum hvers og eins atvinnuleitanda.

Á grundvelli 7. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar beri atvinnuleitendum að hafa reglulegt samband við Vinnumálastofnun eftir nánara fyrirkomulagi sem stofnunin ákveði. Í tilfelli kæranda hafi hann verið boðaður til viðtals hjá stofnuninni en samkvæmt 3. mgr. 13. gr. laganna sé Vinnumálastofnun heimilt að boða atvinnuleitendur til stofnunarinnar með sannanlegum hætti meðal annars til að kanna hvort breytingar hafi orðið á högum þeirra sem kunni að hafa áhrif á rétt þeirra til greiðslu atvinnuleysisbóta. Atvinnuleitendur skulu þá vera reiðubúnir að mæta til stofnunarinnar með mjög skömmum fyrirvara. Ákvæði 3. mgr. 13. gr. hafi verið bætt við lög um atvinnuleysistryggingar með 4. gr. laga nr. 134/2009, en í athugasemdum með 4. gr. segi að gert sé ráð fyrir að stofnunin geti boðað atvinnuleitanda með allt að sólarhringsfyrirvara á þá skrifstofu sína sem næst sé lögheimili viðkomandi.

Fyrir liggi að kærandi hafi ekki mætt á fund Vinnumálastofnunar þann 1. október 2025. Kærandi hafi fengið senda tilkynningu í tölvupósti, farsíma og á „Mínum síðum“ um boðun í umrætt viðtal. Á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar hafi kæranda því verið gert að sæta viðurlögum vegna þessa. Ákvæðið sé svohljóðandi:

„Sá sem hafnar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. Hið sama gildir þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma skv. 6. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr.“

Í 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar komi skýrt fram að hafni einstaklingur þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli hann sæta tveggja mánaða biðtíma eftir atvinnuleysisbótum. Hið sama gildi þegar hinn tryggði mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma. Í greinargerð með frumvarpi til laga um atvinnuleysistryggingar sé efni 58. gr. laganna nánar skýrt. Þar segi að Vinnumálastofnun annist skipulag vinnumarkaðsaðgerða og að litið sé svo á að þeim sem tryggðir séu innan atvinnuleysistryggingakerfisins sé skylt að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum. Þá sé jafnframt tekið fram í greinargerðinni að bregðist hinn tryggði þeirri skyldu leiði það til viðurlaga í formi biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.

Af framangreindum lagaákvæðum sé ljóst að heimildir Vinnumálastofnunar til að boða til sín atvinnuleitendur, og sömuleiðis skyldur atvinnuleitenda til að verða við slíkri boðun, séu ríkar. Þá sé það fortakslaust skilyrði svo unnt sé að aðstoða atvinnuleitendur við að fá starf við hæfi og gefa þeim kost á þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsaðgerðum að atvinnuleitendur sinni þeim boðunum sem þeim séu send. Í skilmálum sem umsækjendur samþykki þegar þeir sæki um greiðslur atvinnuleysistrygginga komi fram að umsækjendum sé skylt að mæta í viðtöl, fundi, námskeið og önnur úrræði sem Vinnumálastofnun boði til.

Skýringar kæranda á ástæðum þess að hann hafi ekki mætt til boðaðs viðtals hafi verið þær að hann hafi verið við vinnu hjá B á þessum tíma. Skýringar kæranda séu ekki studdar neinum gögnum en bent sé á að launaseðill frá viðkomandi fyrirtæki sé gefinn út daginn fyrir fundinn og eigi við um september 2025. Vinnumálastofnun hafi ekki borist gögn er staðfesti að kærandi hafi verið við vinnu hjá B þann 1. október 2025 og engar launagreiðslur séu til handa kæranda vegna októbermánaðar 2025 frá viðkomandi fyrirtæki samkvæmt gögnum frá Skattinum. Þá sé ljóst að kærandi hafi hvorki tilkynnt um vinnu sína til stofnunarinnar né um forföll á umræddan fund. Að mati Vinnumálastofnunar geti skýringar kæranda því ekki talist gildar í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar.

Í ljósi framangreinds og þeirrar ríku skyldu sem hvíli á atvinnuleitendum til þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum sé það mat Vinnumálastofnunar að kærandi hafi brugðist skyldum sínum samkvæmt 13. gr. laga um vinnumarkaðsúrræði, 7. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og 3. mgr. 13. gr. sömu laga. Með því að hafa ekki mætt til umrædds viðtals hafi kærandi hafnað þátttöku í vinnumarkaðsúrræði og beri honum því að sæta viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 58. gr.

Með vísan til alls framangreinds sé það niðurstaða Vinnumálastofnunar að kærandi skuli sæta viðurlögum í formi tveggja mánaða biðtíma eftir greiðslum atvinnuleysistrygginga á grundvelli 1. mgr. 58. gr.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 20. október 2025, um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Í 58. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um viðurlög við því ef þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað. Segir þar í 1. mgr. að sá sem hafni þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í að minnsta kosti fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur, skuli ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt VII. kafla laganna fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila. Hið sama gildi þegar hinn tryggði mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma samkvæmt 6. mgr. 9. gr., nú 7. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr. laganna.

Í athugasemdum greinargerðar með frumvarpi til laga nr. 134/2009, um breytingu á lögum nr. 54/2006, segir meðal annars um viðurlög við því að virða ekki boðun Vinnumálastofnunar:

„Í ljósi þess að mikilvægt er að Vinnumálastofnun geti haldið reglulegu sambandi við þá sem fá greiddar atvinnuleysisbætur, ekki síst til að geta fylgst með gangi atvinnuleitar og hvort stofnunin þurfi að koma að frekari stuðningi við viðkomandi, er lagt til að það kunni að varða viðurlögum á grundvelli laganna í þeim tilvikum er atvinnuleitendur virða ekki boðun stofnunarinnar skv. 1. gr. frumvarps þessa. Á þetta ekki síst við þegar fá störf eru í boði og auknar líkur eru á að atvinnuleitin dragist á langinn. Jafnframt er lagt til að sama gildi þegar atvinnuleitendur eru boðaðir til stofnunarinnar í því skyni að kanna hvort sá hinn sami uppfylli enn skilyrði laganna, sbr. 4. og 6. gr. frumvarps þessa. Er því gert ráð fyrir að sömu viðurlög komi til og eiga við þegar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað.“

Í 7. mgr. 9. gr. kemur fram að sá sem telst tryggður á grundvelli laganna skuli eftir að umsókn hans hafi verið samþykkt og á þeim tíma sem hann fái greiddar atvinnuleysisbætur eða sæti biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum hafa reglulegt samband við Vinnumálastofnun eftir nánara fyrirkomulagi sem stofnunin ákveði. Þegar Vinnumálastofnun upplýsi umsækjanda um að stofnunin hafi samþykkt umsókn um atvinnuleysisbætur skuli hún jafnframt upplýsa hlutaðeigandi um með hvaða hætti stofnunin muni koma upplýsingum eða öðrum boðum til hans meðan á atvinnuleit hans standi. Komi Vinnumálastofnun upplýsingum eða boðum til umsækjanda með þeim hætti sem stofnunin hafi tiltekið við hlutaðeigandi teljast upplýsingarnar eða boðin hafa borist með sannanlegum hætti.

Þá segir í 3. mgr. 13. gr. laga nr. 54/2006 að Vinnumálastofnun sé heimilt að boða þann tryggða til stofnunarinnar með sannanlegum hætti á þeim tíma sem hann fái greiddar atvinnuleysisbætur eða sæti biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum, meðal annars til að kanna hvort breytingar hafi orðið á högum hans sem kunni að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögunum. Hinn tryggði skuli þá vera reiðubúinn að mæta til stofnunarinnar með mjög skömmum fyrirvara.

Samkvæmt gögnum málsins var kærandi þann 30. september 2025 boðaður á upplýsingafund hjá Vinnumálastofnun sem haldinn var þann 1. október 2025, klukkan 13:00. Kæranda var greint frá því að um skyldumætingu væri að ræða og að forföll bæri að tilkynna án ástæðulausrar tafar á tilgreinda vefslóð. Jafnframt var athygli kæranda vakin á því að ótilkynnt forföll og forföll án gildra ástæðna gætu valdið stöðvun greiðslna eftir viðeigandi ákvæðum laganna. Þá var kærandi hvattur til að hafa samband ef eitthvað væri óljóst eða hann óskaði frekari upplýsinga.

Framangreind boðun var send kæranda með sannanlegum hætti, þ.e. með tilkynningu á „Mínar síður“, í skráð tölvupóstfang og farsíma. Í 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 kemur skýrt fram að sá sem hafni þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli sæta viðurlögum á grundvelli ákvæðisins og hið sama gildir þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma.

Fyrir liggur að kærandi hvorki mætti á boðaðan fund né boðaði forföll. Af hálfu kæranda hefur komið fram að hann hafi verið búinn að finna sér vinnu þegar hann var boðaður á fundinn en hafi verið rekinn daginn eftir að fundurinn átti að eiga sér stað, þ.e. 2. október 2025. Hann hafi ekki getað upplýst um forföll sín þar sem hann hafi þá verið búinn að tapa síma sínum og skilríkjum.

Að mati úrskurðarnefndar velferðarmála hefur kærandi ekki fært fram viðunandi skýringar sem réttlæta að hann hafi ekki mætt á boðaðan fund hjá Vinnumálastofnun.

Ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 er því staðfest.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 20. október 2025, um að fella niður rétt A, til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir