19 febrúar 2026
/
Úrskurður nr. 96/2026
Hinn 19. febrúar 2026 er kveðinn upp svohljóðandi
úrskurður nr. 96/2026
í stjórnsýslumálum nr. KNU24100188 og KNU24100189
Kæra [...]
Kröfur, kærufrestir og kæruheimild
Hinn 29. október 2024 kærðu […], fd. […], (hér eftir A), og […], f.d. […], (hér eftir B), ríkisborgarar Kólumbíu, ákvarðanir Útlendingastofnunar, dags. 17. október 2024, um að synja þeim um alþjóðlega vernd á Íslandi ásamt því að synja þeim um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.
Samkvæmt 6. mgr. 8. gr. laga um útlendinga skal kærunefnd meta að nýju alla þætti kærumáls og getur ýmist staðfest ákvörðun, breytt henni eða hrundið að nokkru eða öllu leyti. Þá getur nefndin einnig vísað máli til meðferðar að nýju hjá þeirri stofnun sem tók hina kærðu ákvörðun. Við meðferð kæru þessarar fer fram endurskoðun á ákvörðun Útlendingastofnunar sem m.a. felur í sér sjálfstætt efnislegt mat á því hvort kærendur eigi rétt á veitingu alþjóðlegrar verndar á grundvelli 1. eða 2. mgr. 37. gr. laganna, hvort skilyrði séu fyrir veitingu dvalarleyfis á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 74. gr. laganna og hvort skilyrði fyrir brottvísun séu uppfyllt ef svo á við. Auk þess fer fram skoðun á því hvort formreglum laga um útlendinga og stjórnsýslulaga nr. 37/1993 hafi verið fullnægt. Kröfur í máli þessu eru í samræmi við framangreint.
Kæruheimild er í 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.
Málsatvik
Samkvæmt lögregluskýrslum lögðu kærendur fram umsóknir um alþjóðlega vernd hjá Lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu 26. ágúst 2024. Með kærendum í för var hálfsystir þeirra, sem sótti einnig um alþjóðlega vernd, og faðir þeirra sem er búsettur hér á landi. Í skýrslunni kemur fram að kærendur sæki um alþjóðlega vernd á Íslandi vegna þess að A eigi í vandræðum með tiltekin hóp í heimaríki sem hafi ráðist á hann. Einnig kemur fram að A hafi ákveðið að koma til Íslands vegna vandamáls í þorpinu hans og vegna þess að faðir þeirra hafi viljað fá systkinin til landsins. Þá vilji B vera með fjölskyldu sinni. Þá kemur fram að faðir kærenda hafi komið hingað til lands árið 2017.
Kærendur komu til viðtala hjá Útlendingastofnun 12. og 19. september 2024 ásamt löglærðum talsmanni sínum og greindu frá ástæðum flótta síns. Kváðust kærendur hafa verið búsett í borginni Tumaco í Nariño héraði í áður en þau yfirgáfu heimaríki. Þau væru ekki meðlimir að stjórnmálaflokki í heimaríki, hafi ekki verið virk í þágu tiltekins málstaðar þar í landi og tilheyri ekki sérstöku þjóðarbroti eða minnihlutahópi í heimaríki. Kærendur kváðust vera við góða andlega og líkamlega heilsu.
A greindi frá því að á heimasvæði kærenda væri mikið um glæpa- og skæruliða hópa (e. guerillas). A hafi spilað fótbolta m.a. með meðlimum slíkra hópa og einn hópurinn hafi viljað fá hann til liðs við sig. Kvað A ótilgreinda meðlimi hópsins hafa um mánaðarbil ítrekað reynt að fá sig til að ganga til liðs við hópinn en hann hafi ávallt neitað. Hinn 1. janúar 2024 hafi meðlimir hópsins skotið að A og vinum hans er þeir voru í áramótafögnuði. Skotin hafi hæft A í lærið og einn vin hans í magann. Aðspurður um heilsu sína og vinar hans í kjölfar árásarinnar kvað A vin sinn hafa jafnað sig og sjálfum líði honum vel andlega. Var A þá spurður hvort um hafi verið að ræða einn árásarmann og svaraði hann að hann hafi séð tvo menn en hafi þó ekki alveg getað séð það. Var A þá spurður hvernig hann hafi vitað að árásarmennirnir væru meðlimir skæruliðahóps og svaraði hann að það væri vitað hverjir þeir væru vegna þess að þeir væru vopnaðir. A greindi frá því að faðir hans hafi viljað að hann færi frá landinu strax eftir framangreint atvik en hann hafi ekki átt efni á því. A kvaðst ekki hafa leitað til lögreglunnar vegna atviksins 1. janúar 2024 því það hefði sett hann í frekari hættu vegna þess að þeir sem leiti aðstoðar lögreglunnar séu álitnir svikarar. Aðspurður um hvernig aðstæður hafi verið hjá A eftir framangreint atvik 1. janúar 2024 kvaðst A hafa verið að jafna sig heima hjá hér. Skæruliðahópurinn hafi látið A í friði en einnig að þar sem hann hafi farið lítið úr húsi eftir árásina viti hann ekki hvort hópurinn hefði látið sig í friði eða ekki hefði hann farið meira út úr húsi eftir árásina. Framangreindan hóp kvað A alltaf hafa verið staðsettan á heimasvæði hans og eftir því sem hann hafi vaxið úr grasi hafi hópurinn sóst eftir því að hann gengi til liðs við hópinn. Var A þá spurður hvort hann vissi ástæðu þess að meðlimir hópsins hafi sóst eftir honum og svaraði A að það væri vegna þess að hann væri hávaxinn og sterkur og hópurinn vilji fá slíka einstaklinga til liðs við sig. Aðspurður hvort það væru margir vopnaðir hópar á heimasvæði hans eða hvort það væri einn hópur sem stjórni svæðinu svaraði A að það væri bara þessi hópur en margir væru í hópnum. Hann þekki einungis þá meðlimi hópsins sem væru frá hans hverfi vegna þess að þeir haldi sig saman. Var A þá spurður um nafn hópsins og hvort hópurinn kalli sig öðru nafni en „Guerillas“og kvaðst hann ekki vita það.
Aðspurð um hvaða atvik hafi leitt til flótta B frá heimaríki greindi hún frá því að móðir kærenda hafi yfirgefið þau A þegar þau voru ung svo þau hafi alist upp hjá ömmu sinni sem hafi átt við heilsufarsvandamál að stríða. Mikið væri um vopnaða hópa, svokallaða „Guerillas“ hópa, á heimasvæði kærenda og bróðir hennar, A, hafi orðið fyrir árás slíks hóps. Kvaðst B sjálf ekki hafa verið á staðnum og hún hafi sjálf ekki orðið fyrir barðinu á slíkum hópum en ýmsir meðlimir slíkra hópa hafi áreitt hana með því að bjóða henni greiðslur fyrir samveru. Aðspurð um hvort hún hafi persónulega orðið fyrir einhverju öðru í heimaríki kvað hún svo ekki vera og að þau systkinin hafi einfaldlega komið til landsins í von um betri framtíð. Helsta ástæða flótta B væri því almennt ástand í heimaríki en hún vilji einnig geta veitt ömmu sinni betri umönnun. Þá hafi faðir kærenda viljað fá þau systkinin til Íslands.
Kærendur kváðust óttast um líf sín í heimaríki og að þau geti orðið fyrir ofbeldi. A kvaðst óttast um líf sitt í heimaríki vegna þess sem hann hafi orðið fyrir og vegna fjölda glæpa í heimaríki kærenda. B kvaðst óttast þá sem hafi áreitt hana, meðlimi vopnaðra hópa og að A gæti orðið fyrir einhverju snúi þau aftur til heimaríkis. Þá kvaðst B óttast að sér verði rænt eða hún myrt og þá væri mikið um ofbeldi í heimaríki. Kærendur kváðust ekki óttast yfirvöld í heimaríki og vísuðu til þess að þarlend yfirvöld væru gagnslaus. Aðspurð hvort kærendur teldu sig geta búið annars staðar í heimaríki og verið örugg kváðust þau geta það. A kvað aðstæður hins vegar vera hættulegri í heimaríki en á Íslandi.
Með ákvörðunum Útlendingastofnunar var kærendum synjað um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga. Kærendum var jafnframt brottvísað frá landinu og þeim ákvarðað endurkomubann til tveggja ára. Kærendur kærðu ákvarðanirnar til kærunefndar 29. október 2024 og kærunefnd bárust greinargerðir þeirra 11. nóvember 2024.
Faðir kærenda hefur ótímabundið dvalarleyfi á Íslandi en um umsókn hálfsystur kærenda er fjallað í úrskurði kærunefndar nr. 97/2026.
Greinargerð til kærunefndar
Nefndin hefur farið yfir greinargerðir kærenda og lagt mat á þau sjónarmið er þar koma fram. Verða aðeins reifuð hér helstu atriði greinargerðanna.
Í greinargerðum kærenda er vísað til greinargerða þeirra til Útlendingastofnunar, viðtala þeirra hjá stofnuninni og ákvarðana stofnunarinnar í málum þeirra hvað atvik mála þeirra varðar.
Kærendur byggja á því að ákvarðanir Útlendingastofnunar hafi brotið gegn 10. gr. stjórnsýslulaga og 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga. Í greinargerðum er mati Útlendingastofnunar á aðstæðum í Kólumbíu mótmælt. Vísa kærendur til þess að umfjöllun stofnunarinnar um heimafylki þeirra sé mjög takmörkuð og almenn og ekki sé vikið að aðstæðum í heimabæ þeirra þrátt fyrir að fjallað hafi verið um aðstæður í heimafylki þeirra með almennum hætti. Einnig er vísað til mats Útlendingastofnunar á trúverðugleika frásagna kærenda og því mati mótmælt. Kærendur byggja á því að þau hafi ástæðuríkan ótta við ofsóknir glæpahópa í heimaríki enda hafi A verið þolandi ofbeldisglæpa af hálfu vopnaðs glæpahóps. Kærendur standi því almennt frammi fyrir ógn vegna glæpa- og skæruliðahópa í heimaríki. Mótmæla kærendur þeirri ályktun Útlendingastofnunar að með vísan til trúverðugleikamats hafi þau ekki sýnt fram á að þau hafi orðið fyrir eða séu í sérstakri hættu á að verða fyrir ofsóknum í skilningi laga um útlendinga af hálfu vopnaðra glæpahópa í heimaríki. Mótmæla kærendur því einnig að stofnunin gangi út frá því að þeim standi til boða vernd og aðstoð yfirvalda. Þá mótmæla kærendur þeirri staðhæfingu stofnunarinnar að þeim hafi borið að leggja fram gögn sem staðfesti framburð þeirra. Kærendur telji sig þvert á móti hafa fært trúanleg rök fyrir framburði sínum þó sannanir skorti. Þá sé þeim ómögulegt að gera það. Um það vísa kærendur til sérsjónarmiða í flóttamannarétti, m.a. vægari sönnunarkrafna um atburði málsins og að vafaatriði beri að túlka kæranda í hag. Kærendur mótmæla þeirri niðurstöðu stofnunarinnar að þau eigi ekki á hættu ofsóknir verði þau send aftur til heimaríkis. Kærendur hafi ástæðuríkan ótta við ofsóknir í heimaríki og geti ekki fært sér í nyt vernd stjórnvalda gegn ágengi glæpahópa. Kærendur uppfylli því skilyrði 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.
Kærendur krefjast þess aðallega að þeim verði veitt alþjóðleg vernd sem flóttamenn hér á landi samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.
Verði ekki fallist á aðalkröfu krefjast kærendur þess til vara að þeim verði veitt viðbótarvernd hér á landi með vísan til 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.
Verði ekki fallist á framangreindar kröfur krefjast kærendur þess að þeim verði veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.
Kærendur krefjast þess einnig að brottvísun þeirra frá landinu og ákvarðanir um tveggja ára endurkomubann, sbr. 101. gr. laga um útlendinga, verði felldar úr gildi.
Reglur stjórnsýsluréttar og málsmeðferð samkvæmt lögum um útlendinga
Í greinargerðum kærenda eru færð rök fyrir því að ekki hafi verið farið að málsmeðferðarreglum við málsmeðferð og ákvarðanatöku Útlendingastofnunar. Kærendur gera m.a. athugasemd við að umfjöllun stofnunarinnar um heimafylki þeirra sé mjög takmörkuð og hvergi sé vikið að aðstæðum í heimabæ kærenda þótt stofnunin hafi fjallað um aðstæður í heimafylki kærenda með almennum hætti. Telja kærendur að málsmeðferð stofnunarinnar og hin kærða ákvörðun brjóti gegn grundvallarreglum stjórnsýsluréttarins, m.a. rannsóknarreglunni.
Fallist er á með kærendum að rökstuðningur Útlendingastofnunar í málum kærenda sé haldinn annmörkum að því leyti að af lestri hinna kærðu ákvarðana verði ekki séð að stofnunin hafi lagt mat á aðstæður kærenda í heimabæ þeirra, Tumaco í Nariño fylki og raunverulegan möguleika kærenda á aðstoð lögreglu þar. Bætt hefur verið úr framangreindum annmörkum við málsmeðferð á kærustigi og með vísan til niðurstöðu úrskurðar þessa er ljóst að þeir annmarkar höfðu ekki áhrif á efnislega niðurstöðu málsins. Er því ekki ástæða til að fella ákvarðanir Útlendingastofnunar úr gildi af þeim sökum.
Kærunefnd hefur að öðru leyti farið yfir málsmeðferð Útlendingastofnunar og hinar kærðu ákvarðanir sem eru í samræmi við málsmeðferðarreglur stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Er því ekki ástæða til þess að fella ákvarðanir Útlendingastofnunar úr gildi af þeim sökum.
Alþjóðleg vernd
Lagagrundvöllur
Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.
Í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, sem byggir á A-lið 1. gr. flóttamannasamningsins, segir:
Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 og bókun við samninginn frá 31. janúar 1967, sbr. einnig 38. gr. laga þessara.
Í 38. gr. laga um útlendinga eru sett fram viðmið um það hvað felist í hugtakinu ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr., á hvaða grundvelli ofsóknir geta byggst og hvaða aðilar geta verið valdir að þeim. Í 1. mgr. ákvæðisins segir:
Ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr. eru þær athafnir sem í eðli sínu eða vegna þess að þær eru endurteknar fela í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, einkum ófrávíkjanlegum grundvallarmannréttindum á borð við réttinn til lífs og bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, bann við þrældómi og þrælkun og bann við refsingum án laga. Sama á við um samsafn athafna, þ.m.t. ólögmæta mismunun, sem hafa eða geta haft sömu eða sambærileg áhrif á einstakling.
Í 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga er fjallað um í hverju ofsóknir geta falist. Þá eru þær ástæður sem ofsóknir þurfa að tengjast skilgreindar nánar í 3. mgr. 38. gr. laganna.
Í 4. mgr. 38. gr. kemur fram að þeir aðilar sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð séu:
a. ríkið,
b. hópar eða samtök sem stjórna ríkinu eða verulegum hluta landsvæðis þess,
c. aðrir aðilar, sem ekki fara með ríkisvald, ef sýnt er fram á að ríkið eða hópar eða samtök samkvæmt b-lið, þ.m.t. alþjóðastofnanir, geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð sem fellur undir 2. mgr. 37. gr., m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir.
Orðasambandið „ástæðuríkur ótti við að vera ofsóttur“ í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga inniheldur huglæga og hlutlæga þætti og þarf að taka tillit til hvors tveggja þegar mat er lagt á umsókn um alþjóðlega vernd. Mat á því hvort ótti umsækjanda sé ástæðuríkur getur verið byggt á persónulegri reynslu umsækjanda sem og á upplýsingum um ofsóknir sem aðrir í umhverfi hans eða þeir sem tilheyra sama hópi hafa orðið fyrir. Umsækjandi sem hefur sýnt fram á að hann hafi þegar orðið fyrir ofsóknum í heimaríki, sbr. 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga, eða beinum og marktækum hótunum um slíkar ofsóknir, yrði almennt talinn hafa sýnt fram á ástæðuríkan ótta við slíkar ofsóknir snúi hann aftur til heimaríkis nema talið verði að miklar líkur séu á því að slíkar ofsóknir yrðu ekki endurteknar, t.d. þar sem aðstæður í heimaríki hans hafi breyst. Þótt umsækjandi um alþjóðlega vernd skuli njóta vafa upp að ákveðnu marki verður umsækjandinn með rökstuddum hætti að leiða líkur að því að hans bíði ofsóknir í heimaríki. Frásögn umsækjanda og önnur gögn um einstaklingsbundnar aðstæður hans verða því almennt að fá stuðning í hlutlægum og áreiðanlegum upplýsingum um heimaríki umsækjanda, stjórnvöld, stjórnarfar og löggjöf þess. Þá er litið til sambærilegra upplýsinga um ástand, aðstöðu og verndarþörf þess hóps sem umsækjandi tilheyrir eða er talinn tilheyra.
Við mat á umsóknum um alþjóðlega vernd verða stjórnvöld því að leggja mat á auðkenni umsækjanda, landaupplýsingar um það heimaríki umsækjanda sem til meðferðar er og trúverðugleika frásagnar umsækjanda.
Við mat á trúverðugleika er höfð til hliðsjónar handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um málsmeðferð og viðmið við mat á umsókn um alþjóðlega vernd (Handbook and Guidelines on Procedures and Criteria for Determining Refugee Status, Genf 2019). Þá er tekið mið af skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og Flóttamannasjóðs Evrópusambandsins um trúverðugleikamat, eftir því sem við á (Beyond Proof: Credibility Assessment in EU Asylum Systems, Brussel 2013).
Samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga er útlendingur einnig flóttamaður ef, verði hann sendur aftur til heimaríkis síns, raunhæf ástæða er til að ætla að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu eða hann verði fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka. Sama gildir um ríkisfangslausan einstakling.
Við mat á því hvort aðstæður kæranda séu slíkar að þær eigi undir 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga hefur kærunefnd talið rétt að líta til 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Mannréttindadómstóll Evrópu hefur fjallað um það mat sem þarf að fara fram á því hvort kærandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir meðferð sem falli undir 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sem bannar pyndingar og ómannlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Hefur dómstóllinn sagt að 3. gr. sáttmálans geti átt við þegar hættan stafar frá einstaklingum eða hópi fólks sem ekki séu fulltrúar stjórnvalda. Kærandi verður þó að geta sýnt fram á að gildar ástæður séu til að ætla að um raunverulega hættu sé að ræða og að stjórnvöld í ríkinu séu ekki í stakk búin til að veita viðeigandi vernd. Ekki er nóg að aðeins sé um að ræða möguleika á illri meðferð og verður frásögn kæranda að fá stuðning í öðrum gögnum (sjá t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008 og H.L.R. gegn Frakklandi (mál nr. 24573/94) frá 29. apríl 1997).
Auðkenni og ríkisfang
Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að til að sanna á sér deili hafi kærendur framvísað kólumbískum vegabréfum. Að því virtu hafi það verið mat Útlendingastofnunar að kærendur hafi sannað auðkenni sitt með fullnægjandi hætti. Ekki er ástæða til að hnekkja framangreindu mati Útlendingastofnunar og verður því lagt til grundvallar að kærendur séu kólumbískir ríkisborgarar.
Landaupplýsingar
Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Kólumbíu, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum:
- 2022 Country Reports on Human Rights Practices – Colombia (US Department of State, 20. mars 2023);
- 2023 Country Reports on Human Rights Practices - Colombia (US Department of State, 22. apríl 2024);
- 2024 Country Reports on Human Rights Practices: Colombia (US Department of State, 12. ágúst 2025)
- 3 Factors Driving Child Recruitment in the Colombian Conflict (InSight Crime, 20. nóvember 2023);
- ACLED Dashboard, skráð atvik í Kólumbíu frá 1. apríl 2023 – 28. október 2024;
- ACLED Explorer, skráð atvik í Kólumbíu frá 20. ágúst 2024 – 21. ágúst 2025 (https://acleddata.com/platform/explorer);
- Almost half of the human rights defenders killed last year were in Colombia (Guardian, 4. apríl 2023);
- Amnesty International Report 2021/22 – Colombia (Amnesty International, 29. mars 2022);
- Amnesty International Report 2022/23 – Colombia (Amnesty International, 27. mars 2023);
- Annual Report 2024 – Chapter IV.A: Human Rights Development in the Region (IACHR, 2025);
- Annual Report 2020 – Chapter IV.A: Human Rights Development in the Region (IACHR, 2021);
- Availability and accessibility of mental health services, particularly in Bogotá, Cartagena and Barranquilla; treatment of individuals with mental illness by society and by the authorities; state protection, including recourse and complaint mechanism (Immigration and Refugee Board of Canada, 11. ágúst 2021);
- BTI 2022 Country Report: Colombia (Bertelsmann Stiftung, 23. febrúar 2022);
- BTI 2024 Country Report: Colombia (Bertelsmann Stiftung, mars 2024);
- Colombia: Fact-Finding Mission Report. Conflict Dynamics in the Post- FARC- EP Period and State Protection (Immigration and Refugee Board of Canada, mars 2020);
- Colombia (skýrsla aðalframkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna til Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna (S/2021/312), 30. mars 2021);
- Colombia´s Armed Groups Battle for the Spoils of Peace (International Crisis Group, 19. október 2017);
- Colombia at a Stabilization Crossroads (Center for Strategic and International Studies (CSIS), 5. mars 2021);
- Colombia Complex crisis (ACAPS, 9. ágúst 2021);
- Colombia: Country Focus (EUAA, desember 2022);
- Colombia: Country Focus (EUAA, desember 2025);
- Colombia: Fact – Finding Mission Report; Conflict Dynamics in the Post- FARC-EP Period and
- State Protection (mars, 2020);
- Colombia´s illegal armed groups (maps) (Colombia Reports, 3. október 2021);
- Colombian activist killings hit record high in 2022: Ombudsman (Al Jazeera, 23. janúar 2023);
- Columbia and ELN rebels extend ceasefire by six months, agree to set up fund (Reuters, 6. febrúar 2024);
- Colombia: Urgent Updates October 2024 (WOLA, Advocacy for Human Rights in the Americas, 17. október 2024);
- Colombia. Social Institutions and Gender Index 2023 (Organization for Economic Co-operation and Development, 26. ágúst 2024);
- Colombia. Social Institutions and Gender Index 2019 (Organization for Economic Co-operation and Development, 7. desember 2018);
- Colombia struggles to keep social leaders safe (y News, 13. janúar 2021);
- Colombia Travel Advisory (US Department of State, Bureau of Consular Affairs, síðast uppfært 17. janúar 2025);
- Colombia Country Security Report (US Department of State, Bureau of Consular Affairs, síðast uppfært 24. febrúar 2025);
- Colombia/Venezuela: Border Area Abuses by Armed Groups: Killings, Disappearances, Child Recruitment, Forced Displacement (Human Rights Watch, 28. mars 2022);
- Conflict persists five years after peace deal (Norwegian Refugee Council, 23. nóvember 2021);
- Freedom in the World 2023 - Colombia (Freedom House, 2023);
- Freedom in the World 2024 – Colombia (Freedom House, 2024);
- Freedom in the World 2025 – Colombia (Freedom House, 2025);
- GameChangers 2023; Unintended Consequences for Colombia’s ‘Total Peace’ (Insight Crime, 29. desember 2023);
- Gender-based violence (GBV), particularly domestic and sexual violence; impact of COVID-19; state protection and support services available, including psychological services, particularly in Bogotá, Santiago de Cali and Medellín (2020- July 2022) (Immigration and Refugee Board of Canada, 3. ágúst 2022);
- Gustavo Petro and Francia Márquez: A new era For Colombia (BBC, 20. júní 2022);
- How peace efforts are making a difference (or not) in Colombia (The New Humanitarian, 15. febrúar 2023);
- International Protection Considerations with Regard to People Fleeing Colombia (UNHCR, ágúst 2023);
- ISSA Country profiles – Colombia (The International Social Security Association, 1. janúar 2023);
- Latin America and the Caribbean – September 2024 (Acled Data, 4. október 2024);
- Latin America and the Caribbean Overview: August 2024 (ACLED, 6. september 2024);
- Los Focos del Conflicto en Colombia. Informe Sobre Presencia de Grupos Armados (Indepaz, 4. október 2021);
- Left Undefended – Killings of Rights Defenders in Colombia´s Remote Communities (Human Rights Watch, 10. febrúar 2021);
- Mental Health ATLAS 2020. Member State Profile. Colombia (World Health Organization, 15. apríl 2020);
- National Liberation Army (ELN) (InSight Crime, 18. júní 2024);
- Protecting Colombia´s Most Vulnerable on the Road to Total Peace (International Crisis Group, 24. febrúar 2023);
- Public Statement by Chair of Working Group on Children and Armed Conflict (Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna, 9. september 2024);
- Report of the United Nations High Commissioner for Human Rights on the situation of human rights in Colombia (Office of the United Nations High Commissions for Human Rights, 12. júlí 2024);
- Report of the United Nations High Commissioner for Human Rights on the situation of human rights in Colombia (Office of the United Nations High Commissions for Human Rights, 14. febrúar 2024);
- Resolution 2573(2023) (Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna, 11. janúar 2023);
- Social Security Throughout the World, The Americas, 2019 – Colombia (Social Security Administration. Office of Retirement and Disability Policy. Office of Research, Evaluation and Statistics, mars 2020);
- The Situation of Women Social Leaders and Human Rights Defenders after the Peace Deal in Colombia (FOKUS, 9. febrúar 2021);
- The State of the World´s Human Rights; Columbia 2023 (Amnesty International, 24. apríl 2024);
- The State of the World’s Human Rights; Colombia 2024 (Amnesty International, 29. apríl 2025);
- The World Factbook: Colombia (CIA, síðast uppfært 6. ágúst 2025);
- UNHCR Eligibility Guidelines for Assessing the International Protection Needs of Asylum-Seekers from Colombia (UNHCR, september 2015);
- United Nations Verification Mission in Colombia: Report of the Secretary – General (United Nations, 24. mars 2023);
- Why Are Rights Activists Being Targeted in Colombia? (The Dialogue, 8. febrúar 2023);
- World Report 2023 – Colombia Events of 2022 (Human Rights Watch, 12. janúar 2023);
- World Report 2024 – Colombia Events of 2023 (Human Rights Watch, 11. janúar 2024);
- World Report 2025 – Colombia Events of 2024 (Human Rights Watch, 16. janúar 2025);
- World Report 2026 – Colombia Events of 2025 (Human Rights Watch, 4. febrúar 2026);
- Upplýsingar af vefsíðu Alþjóðabankans (https://datos.bancomundial.org/pais/colombia, skoðað 9. febrúar 2026);
- Upplýsingar af vefsíðu kólumbíska heilbrigðis- og félagsmálaráðuneytisins (https://www.minsalud.gov.co);
- Upplýsingar af vefsíðu Colombia Reports (colombiareports.com);
- Upplýsingar af vefsíðu Global Organized Crime Index (https://ocindex.net/country/colombia, síðast sótt 26. september 2024);
- Upplýsingar af vefsíðu International Citizens Insurance (Overview of Colombia Healthcare System International Insurance, síðast sótt 26. september 2024) og
- Upplýsingar af vefsíðu Refugees International (https://www.refugeesinternational.org).
Kólumbía er stjórnarskrárbundið lýðveldi með tæplega 50 milljónir íbúa. Í landinu aðhyllast um 92% íbúa kristna trú, þar af meirihlutinn rómversk-kaþólska trú. Hinn 5. nóvember 1945 gerðist Kólumbía aðili að Sameinuðu þjóðunum. Ríkið fullgilti alþjóðasamning um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi ásamt alþjóðasamningi um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi árið 1969. Ríkið fullgilti alþjóðasamning um afnám allrar mismununar gegn konum árið 1982 og samning Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri og vanvirðandi meðferð eða refsingu árið 1987.
Í framangreindum heimildum, m.a. skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2022 kemur fram að 20. júní 2022 hafi Gustavo Petro verið kjörinn forseti Kólumbíu. Petro sé fyrsti vinstrisinnaði forseti landsins og heimildir bendi til þess að hann hafi á yngri árum tilheyrt M-19 skæruliðahreyfingunni áður en hann hafi snúið sér að stjórnmálum. Í kosningabaráttunni hafi hann heitið því að berjast gegn spillingu og skipulagðri glæpastarfsemi í landinu auk þess að beita sér fyrir auknu jafnrétti. Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá árinu 2023 kemur fram að eftirlitsaðilar hafi talið kosningarnar frjálsar og þær friðsælustu í áratugi. Í skýrslu Freedom House frá 2023 kemur fram að forsetinn hafi valið Francia Márquez sem varaforseta. Hún sé umhverfisverndarsinni af Afró-kólumbískum uppruna og önnur konan til að gegna stöðu varaforseta.
Í skýrslum bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2023 og 2024 kemur fram að helstu vandamál á sviði mannréttinda í landinu séu m.a. handahófskennd morð, pyndingar og ill meðferð af hálfu öryggissveita ríkisins og vopnahópa, víðtæk spilling innan ríkisstofnana, nauðganir og misnotkun kvenna og barna af hálfu ólöglegra vopnaðra hópa í landinu auk ofbeldis gegn minnihlutahópum s.s á grundvelli uppruna, kynhneigðar og kynvitundar. Spilling sé umtalsverð á meðal stjórnmálamanna og innan lögreglu landsins. Í skýrslunni kemur fram að stjórnvöld hafi almennt gert ráðstafanir til að lögsækja og refsa embættismönnum fyrir mannréttindabrot þó sum mál taki langan tíma. Stjórnvöld hafi almennt beitt lögum sem leggi refsingu við opinberri spillingu. Þá hafi ríkisstjórnin innleitt umbætur hjá lögreglunni sem miði að því að auka ábyrgð og bæta mannréttindavernd og samskipti almennings og lögreglu. Þá hafi refsileysi innan öryggissveita landsins verið vandamál en stjórnvöld hafi á síðustu árum aukið þjálfun liðsmanna öryggissveita landsins hvað varðar mannréttindi ásamt því að rannsaka og sakfella í auknum mæli brot liðsmanna þeirra. Þá hafi dregið úr samstarfi á milli öryggissveita og ólöglegra vopnahópa. Ólöglegir vopnahópar beiti ofbeldi, svo sem fjárkúgunum, morðum, mannránum, pyndingum og sprengjuárásum og notist við barnahermenn. Lögregluyfirvöld rannsaki almennt þessi brot og sæki ábyrga til saka. Mannréttindasamtök hafi þó gagnrýnt að á sumum svæðum virðist glæpahópar fá að starfa því sem næst óáreittir. Lögregla sé fagmannlegri en í nágrannaríkjum Kólumbíu en skortur sé á fjármagni og mannafla. Enn fremur hafi lögreglan verið sökuð um að vinna með glæpamönnum og að vera ekki til staðar á strjálbýlli svæðum þar sem hættulegir hópar séu virkir.
Af framangreindum heimildum, m.a. skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2024, má ráða að glæpa- og morðtíðni sé há í Kólumbíu og að glæpahópar séu starfandi víðs vegar um landið og séu ráðandi á ákveðnum svæðum, einkum í héruðunum Cauca, Nariño, Catatumbo og Norte de Santander. Þeir stærstu og þekktustu hafi verið skæruliðahóparnir FARC-EP (e. Revolutionary Armed Forces of Colombia -People´s Army) og ELN (e. National Liberation Army). Þá séu einnig starfandi svokallaðir NAG (e. New Armed Groups) sem hafi sprottið út frá hersveitum sem áður hafi starfað í landinu. Fram kemur í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2023 að í kjölfar undirritunar friðarsamkomulags stjórnvalda við skæruliðahópinn FARC, hafi formlegri afvopnun hópsins lokið árið 2017 og það sama ár hafi fyrrum meðlimir myndað stjórnmálaflokk og tekið þátt í þingkosningum í mars árið 2018. Í skýrslunni kemur fram að her landsins hafi áætlað að meðlimir í afsprengihópum FARC væru nú fleiri en 5.200 talsins. Af fyrirliggjandi gögnum, þ. á m. skýrslu Indepaz frá 2021 og kortum Columbia Reports frá 2020, verður ráðið að afsprengihópar FARC hafi að mestu haldið til í suður-, suðvestur- og suðausturhluta Kólumbíu og við landamæri Venesúela. Hóparnir hafi verið virkir utan tilgreindra svæða, þá ýmist með leynilegum aðgerðum eða í gegnum bandalög með öðrum glæpahópum, en séu ekki með mikla viðveru eða sterk ítök í höfuðborg landsins, Bógóta eða í Cundinamarca héraði. Í skýrslu Freedom House frá 2025 kemur fram að sum landsvæði, einkum svæði sem séu rík af náttúruauðlindum og svæði þar sem flutningur fíkniefna eigi sér stað, séu óörugg. Meðlimir afsprengihópa skæruliðahópa, m.a. ELN og FARC, misnoti óbreytta borgara, sérstaklega á svæðum þar sem kókaín sé ræktað. Almenn sundrung og aukning átaka hafi leitt til þess að íbúar verst útsettu svæðanna hafi neyðst til að flýja heimili sín. Í febrúar 2024 greindi skrifstofa Sameinuðu þjóðanna um samhæfingu mannúðarmála (OCHA) frá því að um 63 þúsund manns hafi þurft að yfirgefa heimili sín og um 88 þúsund manns hafi verið innilokuð sökum hótana og vopnaðra átaka sem sé svipaður fjöldi og árið 2022.
Fram kemur í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins fyrir árið 2023 að um 6,7 milljónir íbúa í Kólumbíu séu vegalausir innanlands (e. internally displaced people), flestir vegna vopnaðra átaka í landinu. Samkvæmt lögum hafi 52 opinberar stofnanir í Kólumbíu það hlutverk að veita einstaklingum sem hafi þurft að flýja heimkynni sín aðstoð. Jafnframt séu fjöldi félaga og samtaka í samstarfi með stjórnvöldum og hafi tekið að sér að veita mannúðaraðstoð til þeirra sem hafi þurft að flytjast á brott frá heimasvæði sínu. Stjórnvöld hafi þó sætt gagnrýni fyrir seinar og ófullnægjandi aðgerðir. Þá hafi mannúðarsamtök aukið fræðslu og dreifingu hreinlætisvara, í tengslum við Covid-19 heimsfaraldurinn.
Í skýrslu frá bandaríska utanríkisráðuneytinu um glæpi og öryggi í Kólumbíu frá 31. janúar 2024 kemur m.a. fram að lögregluyfirvöld í Kólumbíu séu alla jafna öflug og fagleg. Þrátt fyrir framangreind vandamál hafi dregið verulega úr ofbeldi í landinu öllu á síðustu 20 árum. Megi rekja þessa fækkun ofbeldisglæpa einkum til friðarsamkomulagsins við FARC og vopnahlés og friðarviðræðna við ELN. Þó kemur fram m.a. í skýrslu Freedom House frá árinu 2023 að ofbeldi og glæpatíðni hafi tekið að rísa á ný frá árinu 2017. Megi meðal annars rekja hluta þess til að fyrrverandi skæruliðar hafi hafið glæpastarfsemi á ný vegna þess að þeir telji stjórnvöld ekki hafa staðið við sína hlið friðarsamningsins.
Í skýrslu EUAA frá desember 2025 kemur fram að á fyrri helmingi 2025 hafi ofbeldi vegna vopnaðra átaka aukist í Kólumbíu vegna baráttu glæpa- og vopnaðra hópa um landsvæði og yfirráð yfir ólöglegum hagkerfum. Um 1,45 milljónir íbúa hafi fundið fyrir áhrifum þess, n.t.t. fjórum sinnum fleiri en á sama tímabili árið 2024. Einnig væri aukning í fjöldaflótta (e. mass displacement), takmörkunum á ferðum borgara, morðum og dauðsföllum vegna ofbeldis. Þá hafi 84% þolenda vopnaðra átaka tilheyrt héruðunum Chocó, Cauca, Guavire og Norte de Santander. Náttúruhamfarir hafi haft áframhaldandi áhrif á svæði sem þegar hafi liðið fyrir átök, einkum héruðin Antioquia, Nariño, Arauca, og Amazonas og þannig gert ástandið verra. Öryggisástand og eðli átaka sé mjög mismunandi innan Kólumbíu. Heimildir bendi til þess að ólöglegir vopnaðir hópar hafi aukið viðveru sína í landinu, þar á meðal á afskekktum svæðum. Aukningin sé nátengd vilja þeirra hópa til að græða m.a. á fíkniefnasmygli og ólöglegri námuvinnslu. Á einhverjum svæðum hafi slíkir hópar stofnað til samstarfs sín á milli. Fjöldi vígamanna hafi aukist frá um 15 þúsund einstaklingum um mitt ár 2022 í tæplega 22 þúsund einstaklinga í júní 2025 og í nóvember 2025 hafi fjöldi vígamanna verið rúmlega 25 þúsund. Þau svæði sem helst hafi orðið fyrir áhrifum ofbeldis séu gjarnan þau svæði sem áður hafi verið stjórnað af FARC-EP og búi yfir umtalsverðum auðlindum sem deilt sé um, líkt og kókaínrækt eða ólöglegri námuvinnslu. Þar á meðal séu héruðin Antioquia, Norte de Santander, Bolívar, Cauca, La Guajira, Chocó, Nariño, Putumayo, Caquetá, Guaviare, Meta, Valle del Cauca, og Arauca. Samkvæmt upplýsingum sem EUAA hafi aflað frá ACLED hafi nærri 60% allra ofbeldistilvika á tímabilinu 1. janúar til 24. október 2025 átt sér stað í fimm héruðum Kólumbíu, n.t.t. í héruðunum Cauca, Antioquia, Norte de Santander, Nariño og Arauca. Heimildir EUAA hafi bent á skort á viðveru yfirvalda á ýmsum svæðum landsins, einkum við Kyrrahafsströndinni og utan þéttbýliskjarna þar, ekki síst vegna lélegra innviða, einkum lélegs vegakerfis, sem geri aðgengi að afskekktustu svæðunum erfiðara. Erfitt og nánast ómögulegt sé að tilkynna um tiltekna glæpi á einangruðum og afskekktum svæðum, s.s. svæðum þar sem íbúar séu undir eftirliti vopnaðra hópa og lögregla fari ekki inn á þau svæði. Í nóvember 2025 hafi varnarmálaráðherra Kólumbíu gefið til kynna að herinn og lögregluyfirvöld hafi aukið aðgerðir gegn glæpahópum um 20%.
Í frétt á vef fréttamiðilsins Al Jazeera frá 4. október 2022 kemur fram að kólumbísk yfirvöld og ELN hafi komist að samkomulagi um að hefja friðarviðræður á ný eftir að þeim hafi verið slitið 2018. Þá kemur fram í skýrslu Freedom House frá árinu 2023 að forseti landsins hafi lagt til nýjan friðarsamning við andófsmenn FARC í ágúst 2022, sem hafi verið tilefni gagnrýni frá þeim aðilum er komu að samningaviðræðum vegna friðarsamningsins árið 2016. Forsetinn hafi hafið samningaviðræður við ELN í desember 2022 og hafi það verið fyrstu viðræðurnar við samtökin síðan árið 2019. Í sama mánuði hafi ríkisstjórnin tilkynnt um sex mánaða vopnahlé við ELN, FARC andófsmenn og þrjá aðra glæpahópa. Þá hafi ELN samþykkt vopnahlé til sex mánaða sem hafi byrjað 9. ágúst 2023. Vopnahléið hafi bætt öryggi íbúa þeirra svæða þar sem ítök hópanna séu hvað mest tímabundin. Samkvæmt fréttum á veraldarvefnum hafi vopnahléinu átt að ljúka 29. janúar 2024. Hinn 23. janúar 2024 hafi sjötta umræða friðarviðræðna hafist í Havana á Kúbu og vonast hafi verið til þess að ná samkomulagi um að framlengja vopnahléið auk annarra atriða sem stuðla eigi að friði í Kólumbíu. Í yfirlýsingu frá ELN, dags. 20. febrúar 2024, sögðu samtökin forseta Kólumbíu ekki hafa staðið við gefin loforð og því væru sjöttu viðræðurnar „frystar“ þangað til að loforðin yrðu efnd. Hafi þetta sett friðarviðræðurnar í uppnám og óvíst hafi verið með framhaldið. Í nýlegum fréttaheimildum kemur fram að í febrúar 2024 hafi kólumbísk yfirvöld og ELN tilkynnt um framlengingu vopnahlés til sex mánaða frá 6. febrúar 2024. Í skýrslu Freedom House frá árinu 2025 kemur fram að ríkisstjórn Petro hafi haldið áfram vinnu sinni við áætlun sína um algjöran frið (e. Total Peace) með ýmsum aðgerðum. Dregið hafi verulega úr skærum á milli vopnahópa og öryggissveita ríkisins árið 2024. Í skýrslu nefndar Ameríkuríkja um mannréttindi (e. Inter-American Commission on Human rights) fyrir árið 2024 kemur fram að stjórnvöld hafi ráðist í ýmsar aðgerðir til þess að styrkja lýðræðið og efla öryggi borgaranna. Liður í því hafi verið að víkka aðgerðir innan áætlunarinnar um algjöran frið og ná fleiri hópum að samningaborðinu. Ýmsar áskoranir hafi þó dregið úr árangri þessara aðgerða. Til að mynda hafi síðustu viðræðum við ELN lokið á þá leið að ekki hafi náðst nema að takmörkuðu leyti að semja um áframhaldandi vopnahlé sem hafi leitt til aukins ofbeldis á ákveðnum svæðum. Árangur hafi þó náðst í viðræðum við önnur glæpasamtök í landinu og dregið hafi úr glæpa- og morðtíðni á þeim svæðum, s.s. í Medellín, Valle de Aburrá, Quibdó og Buenaventura.
Samkvæmt upplýsingum af síðu InSight Crime um ELN hafi þau upphaflega verið stofnuð á sjöunda áratugnum sem þjóðernishreyfing undir áhrifum frá kúbversku byltingunni og séu samtökin síðasti stóri uppreisnarhópurinn í Kólumbíu. Samtökin séu með starfsemi bæði í Kólumbíu og Venesúela og hafi stundað mannrán, fjárkúganir, ólöglega námuvinnslu og fíkniefnaviðskipti. Hin síðari ár hafi hópurinn eflst og stækkað yfirráðasvæði sín m.a. inn fyrir landamæri Venesúela. Þrátt fyrir að friðarviðræður við kólumbísk stjórnvöld hafi mjakast áfram séu innri klofningur og andstaða við afvopnun innan samtakanna gríðarleg áskorun. ELN hafi aukið starfsemi sína á svæðum þar sem kólumbísk stjórnvöld séu veikari fyrir auk þess að vinna í samstarfi við venesúelsk stjórnvöld innan landamæra Venesúela. Þá hafi samtökin starfsemi víða í Kólumbíu en séu öflugust í fylkjunum Chocó, Norte de Santander og Arauca.
Samkvæmt upplýsingum af heimasíðu sannleiks- og sáttanefndar (e. UN Verification Mission) í Kólumbíu hafi Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna framlengt umboð verkefnis til 31. október 2023 varðandi framfylgni samningsins um uppbyggingu á dreifbýlli svæðum og málefni þjóðernishópa. Nefndinni hafi verið gert að fylgjast með og hafa eftirlit með framfylgd ríkisstjórnar og samningsaðila FARC á friðarsamkomulaginu, þ.m.t. pólitíska, efnahagslega og félagslega enduraðlögun FARC meðlima og innleiðingu persónulegra og sameiginlegra öryggistrygginga ásamt því að halda utan um yfirgripsmiklar áætlanir um öryggis- og verndarráðstafanir fyrir samfélög og stofnanir á svæðunum. Í skýrslu aðalframkvæmdastjóra frá 24. mars 2023 komi fram að kólumbíska ríkisstjórnin og FARC hafi samþykkt að framlengja umboð Framkvæmdastjórnar til að fylgja eftir og hafa eftirlit með framfylgd friðarsamkomulagsins til fjögurra ára.
Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2024 kemur fram að fjöldi kólumbískra og alþjóðlegra mannréttindahópa starfi án takmarkana stjórnvalda, rannsaki og birti niðurstöður um mannréttindamál. Þá séu embættismenn yfirleitt samvinnuþýðir og reiðubúnir að hlusta á áhyggjur staðbundinna mannréttindasamtaka. Nokkur frjáls félagasamtök hafi fengið hótanir en ríkisstjórnin fordæmi hótanirnar og skori á dómsmálaráðherra að rannsaka þau. Í sumum tilvikum hafi aðgerðarsinnum þótt viðbrögð stjórnvalda hæg og lítil. Þá kemur fram að þótt löggjöf í landinu veiti frjálsum félagasamtökum og mannréttindabaráttufólki vernd þá sé traust til slíkrar verndar takmarkað og á síðustu árum hafi hundruð meðlima mannréttindasamtaka, fjölmiðlafólks, leiðtoga frumbyggja og annarra aðgerðarsinna staðið frammi fyrir margvíslegu ofbeldi, líflátshótunum og verið myrtir, einkum af uppreisnarmönnum eða meðlimum glæpasamtaka. Stjórnvöld hafi ekki gripið til fullnægjandi ráðstafana til að vernda þau, refsileysi sé útbreitt og ákærur og sakfellingar eigi sér sjaldnast stað.
Í skýrslu kanadíska innflytjenda- og flóttamannaráðsins (e. Immigration and Refugee Board of Canada) kemur fram að skrifstofa umboðsmanns (s. Defensoría del Pueblo), sem sett hafi verið á fót árið 1991, sinni margvíslegu hlutverki til að stuðla að bættri mannréttindavernd í Kólumbíu. Skrifstofan beri ábyrgð á að sinna eftirliti og aðhaldi með stjórnvöldum, taki við kvörtunum frá einstaklingum, hópum og lögaðilum og beiti sér fyrir aukinni vernd og fræðslu um mannréttindi. Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2023 og 2024 kemur fram að undirfjármögnun takmarki getu skrifstofunnar til að fylgjast með misnotkun á áhrifaríkan hátt. Umboðsmaðurinn, sem og meðlimir svæðisskrifstofu umboðsmanns, fái hótanir frá vopnuðum hópum í gegnum ýmsa miðla. Skrifstofa umboðsmanns gefi reglulega út viðvaranir fyrir svæði sem hún telji hættuleg en ríkisstjórnin bregðist hægt við tilmælum og viðvörunum. Þá veiti ríkisstofnunin National Protection Unit einstaklingum vernd sem telji sig þurfa á vernd að halda, m.a. þolendum mannréttindabrota og vopnaðra átaka. Eðli verndarinnar fari eftir áhættumati sem stofnunin framkvæmi fyrir hvern og einn einstakling. Verndin sem stofnunin veiti sé þó ekki alltaf fullnægjandi eða í samræmi við þá hættu sem viðkomandi sé í.
Samkvæmt stjórnarskrá Kólumbíu eiga ríkisborgarar rétt á grunnheilbrigðisþjónustu og félagslegri aðstoð í landinu. Samkvæmt vef Alþjóðabankans var atvinnuleysi í Kólumbíu 9,6% árið 2024 en hafði verið 10,5% árið 2022. Ráðuneyti heilbrigðis- og félagslegrar verndar (s. Ministerio de Salud y de Protección Social) ber ábyrgð á að hafa eftirlit með og samræma þjónustu á starfssviði sínu á landsvísu. Samkvæmt lögum um heilbrigðisþjónustu frá 2015 (s. La Ley Estatutaria de Salud 1751 de 2015) telst heilbrigði til grundvallar mannréttinda og bann er lagt við því að synja sjúklingum um nauðsynlega heilbrigðisþjónustu á grundvelli efnahagslegrar stöðu. Samkvæmt heimildum hefur heilbrigðiskerfið í Kólumbíu verið með þeim bestu í heiminum og samkvæmt skýrslu Alþjóða heilbrigðismálastofnunarinnar (World Health Organization, WHO) frá árinu 2000 var Kólumbía þá í 22. sæti yfir skilvirkustu heilbrigðiskerfi í heimi. Heilbrigðisþjónusta í Kólumbíu sé almennt ekki kostnaðarsöm og aðgengi ríkisborgara að heilbrigðisþjónustu almennt gott. Í Kólumbíu sé opinbert sjúkratryggingarkerfi (s. Entidades Promotoras de Salud (EPS)). Umrætt sjúkratryggingakerfi sé í boði fyrir alla íbúa Kólumbíu með litlum tilkostnaði. EPS sjúkratryggingakerfið sé með þriggja þrepa greiðslukerfi sem nái yfir greiðsluþátttöku EPS vegna rannsóknarstofuprófa, myndgreininga, sérfræðiheimsókna og lyfja. Þá kemur fram í skýrslum Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar og innflytjenda- og flóttamannanefndar Kanada að sérstök löggjöf um geðheilbrigðismál í Kólumbíu hafi verið í gildi frá árinu 2013 og sérstök aðgerðaráætlun um geðheilbrigðismál frá árinu 2018. Samkvæmt þeirri löggjöf sé ríkisborgurum Kólumbíu tryggt aðgengi að geðheilbrigðisþjónustu og þurfi meirihluti fólks sem sæki þjónustu hjá geðheilbrigðissérfræðingum ekki að greiða fyrir slíka þjónustu. Biðtími geti verið langur en aðgengi að geðheilbrigðisþjónustu og lyfjum sé betra í þéttbýli heldur en í dreifbýli.
Af samantekt gagna um þvingaða nýliðun barna í glæpa- og skæruliðahópa í Kólumbíu m.a. vefsíðum InSight Crime og Sameinuðu þjóðanna má ráða að þrátt fyrir friðarumleitanir kólumbískra stjórnvalda við stærstu vopnahópa landsins FARC og ELN þá sé mikilvægt að efla varnir gegn nýliðun barna. Frá árinu 1962 hafi tæplega 17 þúsund börn verið þvinguð til þess að ganga til liðs við vopnaða hópa í landinu. Einkum sé um að ræða börn á aldrinum 12 til 17 ára, börn af frumbyggjaættum og afrískum uppruna auk barna flóttamanna og innflytjenda. Hafi flest þeirra verið þvinguð til að ganga til liðs við ELN og FARC. Þau svæði sem nýliðun hafi verið mest séu svæði þar sem ítök glæpahópa eru mikil, s.s. í Antioquia, Cauca, Chocó, Nariño og Valle del Cauca og almennt ástand því oft á tíðum bágt. Nýliðun barna hafi náð ákveðnu hámarki snemma á 20. áratugnum og frá þeim tíma hafi dregið úr henni en þó hafi komið upp ár þar sem toppar í nýliðun hafi verið skráðir. Helstu þættir sem ýti undir slíka nýliðun séu einkum tengd tilvikum þegar glæpahópar séu að efla starfsemi eða hafi misst mannskap vegna átaka eða aðgerða stjórnvalda, vegna aukinnar samkeppni á milli glæpahópa og vegna átaka um yfirráð yfir ákveðnum svæðum. Þá séu vísbendingar uppi um það að yfirstandandi friðarviðræður ýti undir þvingaða nýliðun þar sem ELN vilji efla starfsemi sína sigli friðarviðræðurnar í strand.
Niðurstaða um réttarstöðu flóttamanns samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga
Kærendur byggja umsóknir sínar um alþjóðlega vernd á því að þau séu í hættu í heimaríki vegna ótilgreinds glæpahóps. Kærendur óttist um líf sín í heimaríki vegna slíkra hópa og geti ekki treyst á vernd yfirvalda.
Mat á trúverðugleika frásagnar kærenda er byggt á endurritum af viðtölum þeirra hjá Útlendingastofnun, öðrum gögnum málsins og upplýsingum um heimaríki þeirra.
Í viðtali greindu kærendur frá því að þau hafi alla tíð búið í borginni Tumaco í Nariño héraði í Kólumbíu. A greindi frá því að hafa verið í veislu 1. janúar 2024 þegar meðlimir ótilgreinds skæruliðahóps (e. Guerillas) hafi skotið að A og vini hans. Hafi mennirnir skotið A vegna þess að hann hafi ekki viljað ganga til liðs við hópinn þrátt fyrir ítrekaðar beiðnir hópsins. A var spurður að því hvernig hann vissi að gerendurnir hefðu verið meðlimir skæruliðahóps. A svaraði að það væri vegna þess að þeir hefðu verið vopnaðir. A vísaði einnig til þess að hafa spilað fótbolta með meðlimum í glæpahópum og hafi einn af þeim glæpahópi viljað fá hann til liðs við sig. Þá greindi A frá því að mennirnir hafi búið á sama svæði og hann. Aðspurður hvort hópurinn kalli sig eitthvað annað en „Guerillas“ kvaðst A ekki vita það. A kvaðst ekki hafa leitað til lögreglu vegna atviksins þar sem þeir sem leiti til lögreglunnar séu álitnir svikarar. Aðspurður hvað hefði gerst eftir atvikið svaraði A því að hann hefði haldið sig heima til að jafna sig. B greindi frá því að ástæða flótta frá heimaríki væri sú að vopnaður hópur hafi ráðist á A og í kjölfarið hafi faðir þeirra viljað fá þau til Íslands. B kvaðst sjálf ekki hafa verið áreitt af hópnum en einhverjir meðlimir slíkra hópa hefðu boðið henni greiðslu fyrir að vera með þeim.
Fram kemur í greinargerðum kærenda til Útlendingastofnunar að A hafi þurft að undirgangast skurðaðgerð á spítala í [...] vegna skotárásarinnar og að hann hafi gefið skýrslu um atvikið í borginni Popayán í Cauca héraði í Kólumbíu. Í greinargerð A til Útlendingastofnunar kemur auk þess fram að ekki liggi fyrir heilsufarsgögn frá kólumbíska spítalanum og þá hafi A ekki komist í tíma hjá íslenskum læknum. Því gæti A ekki skilað íslenskum heilsufarsgögnum innan greinargerðarfrests.
Við meðferð málsins hjá Útlendingastofnun lögðu kærendur m.a. fram afrit af skráningarformi í skráningarkerfi fyrir fórnarlömb í heimaríki kærenda (Unidad para las Víctimas). Fram kemur að skráningin sé lögð fram í Popayán borg í Cauca héraði þann 11. janúar 2024 en af forminu verður ekkert ráðið um tilkynnanda þess og ástæður að baki skráningarinnar, svo sem atburðarrás og meinta gerendur. Hefur gagnið því takmarkað sönnunargildi fyrir mál kærenda en framlagning þess bendir til þess að leitað hafi verið til yfirvalda í heimaríki. Kærendur lögðu einnig fram ódagsetta yfirlýsingu frá föður þeirra en um er að ræða einhliða yfirlýsingu föður kærenda sem hefur af þeim sökum takmarkað sönnunargildi fyrir málatilbúnað þeirra.
Í ljósi heimilda um heimaríki kærenda og stöðu glæpahópa þar í landi telur kærunefnd ekki ástæðu til að draga í efa að ótilgreindir meðlimir glæpahóps hafi skotið A 1. janúar 2024 og þá er ekki ástæða til að draga í efa að A hafi leitað til læknis vegna þess og að hann hafi skráð sig í skráningarkerfi fyrir fórnarlömb 11. janúar 2024. Hins vegar verður ekki lagt til grundvallar að A sé sérstakt skotmark hins ótilgreinda glæpahóps eða annarra glæpahópa í heimaríki kærenda af þeim ástæðum sem hann hefur greint frá eða af öðrum ástæðum. Við það mat lítur kærunefnd m.a. til þess að af framburði A verður ekki annað ráðið en að beiðnir hópsins um að hann gengi til liðs við þá hafi einungis staðið yfir í mánuð. Þá hafi meðlimir hópsins ekki haft frekari afskipti af A í kjölfar árásarinnar þrátt fyrir að búa, samkvæmt framburði A, á heimasvæði kærenda og jafnvel spila fótbolta með A. Ber framangreint með sér að hefði hópurinn haft augastað á A hefði hópurinn getað komist í samband við A, óháð því hvort A hefði haldið sig inni við líkt og hann greindi frá að hafa gert eða farið út úr húsi. Að framangreindu virtu er það niðurstaða kærunefndar að það atvik sem A hefur greint frá hafi ekki eða geti náð því alvarleikastigi að teljast ofsóknir í skilningi 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga.
Líkt og að framan greindi kvaðst B hafa orðið fyrir áreiti ótilgreindra einstaklinga sem að hennar sögn væru meðlimir glæpa- eða skæruliðahópa í heimaborg kærenda. Hafi áreitið falist í því að þeir hafi viljað samveru með henni gegn greiðslu. Með vísan til þeirra heimilda sem kærunefnd hefur skoðað um aðstæður í Kólumbíu telur kærunefnd ekki ástæðu til að draga frásögn hennar í efa. Áreiti það sem B greindi frá virðast þó hafa verið einangruð og óskyld atvik sem ekki hafi beinst að persónu B og hafi ekki haft frekari afleiðingar fyrir hana. Með vísan til framangreinds er það niðurstaða kærunefndar að gögn málsins beri ekki með sér að framangreind atvik hafi eða geti náð því alvarleikastigi að teljast ofsóknir í skilningi 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga.
Í þeim gögnum sem kærunefnd hefur skoðað, m.a. skýrslur frá bandaríska utanríkisráðuneytinu um glæpi og öryggi í Kólumbíu frá 12. apríl 2021 og um stöðu mannréttinda frá árinu 2024, kemur fram að lögregluyfirvöld í Kólumbíu séu alla jafna öflug og fagleg. Þá hafi ýmis lög verið sett í því skyni að bæta réttarstöðu þolenda afbrota. Skýrslur og önnur gögn sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður í Kólumbíu bera m.a. með sér að ítök glæpahópa séu á sumum svæðum sterk og löggæsla veik, einkum á afskekktum svæðum og þar sem innviði skorti. Þrátt fyrir að gögn um aðstæður í Kólumbíu bendi til þess að glæpahópar séu áhrifamiklir á sumum svæðum í Kólumbíu, er það mat kærunefndar að gögn um aðstæður í Kólumbíu sýni fram á að á öðrum svæðum geti kólumbísk yfirvöld almennt verndað grundvallarmannréttindi ríkisborgara sinna og veitt borgurum sínum vernd gegn ofbeldi og glæpum, m.a. með því að ákæra eða refsa fyrir þær athafnir sem feli í sér ofsóknir, sbr. c-lið 4. mgr. 38. gr. laga um útlendinga. Jafnframt er ljóst að dregið hafi úr glæpum í landinu frá því að friðarsamkomulagi við FARC var komið á og núverandi forseti Kólumbíu hefur gert ýmsar úrbætur varðandi réttindavernd borgara. Framangreindar heimildir bera jafnframt með sér að viðvera lögreglunnar og hersins sé mikil í Tumaco borg þótt viðvera framangreindra aðila sé minni og jafnvel engin á afskekktari svæðum sveitarfélagsins. Af heimildum verður ekki ráðið að í borginni Tumaco séu ítök og áhrif glæpa- og skæruliðahópa slík að ómögulegt sé fyrir kærendur að leita aðstoðar yfirvalda. Verður því lagt til grundvallar að þar til bær yfirvöld í heimaríki kærenda hafi getu og vilja til að veita kærendum vernd, m.a. með því að ákæra eða refsa fyrir þær athafnir sem feli í sér ofsóknir. Þá hafa kærendur lagt fram gögn sem gefa til kynna að A hafi leitað til yfirvalda í heimaríki. Geta kærendur samkvæmt framangreindu leitað aðstoðar yfirvalda í heimaríki telji þau þörf á því
Kærendur hafa greint frá erfiðum efnahagslegum aðstæðum sínum. Efnahagslegar aðstæður teljast almennt ekki til ofsókna í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga og ekkert i gögnum málsins bendir til þess að annað eigi við í máli kærenda.
Þegar frásagnir kærenda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum þeirra í heimaríki, teljast kærendur ekki hafi sýnt fram á með rökstuddum hætti að þau eigi á hættu ofsóknir í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Sama á við þegar litið er til samsafns athafna. Kærendur uppfylla því ekki skilyrði fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamenn hér á landi, sbr. 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.
Niðurstaða um viðbótarvernd samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga
Kærendur byggja á því að þau eigi rétt á viðbótarvernd samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.
Með vísan til umfjöllunar undir 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga um aðstæður kærenda er ljóst að þau atvik sem kærendur hafa lýst ná ekki því marki að teljast ómannúðleg eða vanvirðandi meðferð í skilningi 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Þá er ekkert í gögnum málsins eða framburði kærenda sem gefur tilefni til að ætla að einstaklingsbundnar aðstæður þeirra leiði til þess að þau eigi á hættu að sæta ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu snúi kærendur til baka.
Kærendur hafa vísað til þess að þau séu í hættu í heimaríki vegna glæpa- og skæruliða hópa. Þau gögn sem kærunefnd hefur kynnt sér benda til þess að ástandið í Kólumbíu sé víða ótryggt, sumum svæðum sé að mestu leyti stjórnað af glæpa- og skæruliðahópum og að íbúar landsins kunni að eiga á hættu að vera beittir ofbeldi af hálfu slíkra hópa. Löggæsluyfirvöld hafa átt erfitt með að komast inn á svæði þar sem glæpahópar hafa völd og átök eigi sér stað. Að jafnaði hafi kólumbísk stjórnvöld og öryggissveitir þeirra góða stjórn á öðrum svæðum og séu þau svæði nokkuð friðsæl og örugg. Þá séu lögregluyfirvöld að öllu jöfnu öflug og fagleg í landinu. Kærendur kváðust hafa verið búsett í Tumaco í Nariño héraði áður en þau yfirgáfu heimaríki. Líkt og áður greinir eru vopnahópar öflugir á ákveðnum svæðum í heimahéraði kærenda en heimildir benda þó ekki til þess að aðstæður á heimasvæði þeirra séu slíkar að hver sem þar sé staddur eigi á hættu að verða fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka.
Þegar frásögn kærenda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kærenda í heimaríki, er það niðurstaða kærunefndar að einstaklingsbundnar aðstæður kærenda séu ekki þannig að þær falli undir ákvæði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærendur uppfyllir því ekki skilyrði fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamaður hér á landi, sbr. 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.
Alþjóðleg vernd á grundvelli 40. gr. laga um útlendinga
Þar sem kærendur eru ekki flóttamenn samkvæmt 37. gr. laga um útlendinga eiga kærendur ekki rétt á alþjóðlegri vernd hér á landi, sbr. 40. gr. laga um útlendinga.
Dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða
Lagagrundvöllur
Samkvæmt 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem staddur er hér á landi dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, þrátt fyrir að skilyrði 37. gr. séu ekki uppfyllt, ef útlendingur getur sýnt fram á ríka þörf fyrir vernd, t.d. af heilbrigðisástæðum eða vegna erfiðra félagslegra aðstæðna viðkomandi eða erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki eða í landi sem honum yrði vísað til. Kærunefnd telur, með vísan til orðalags ákvæðisins um „ríka þörf fyrir vernd“ auk lögskýringargagna sem fylgdu greininni, að dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verði ekki veitt nema aðstæður, bæði almennar og sérstakar m.t.t. heilsufars og félagslegra þátta, auk atvika sem þar er vísað til, nái ákveðnu alvarleikastigi þegar málið er virt í heild.
Í athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að ákvæði 1. mgr. 74. gr. vísi m.a. til erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki og væri þar oft um að ræða viðvarandi mannréttindabrot í ríkinu og þá aðstöðu að yfirvöld veiti þegnum sínum ekki vernd gegn ofbeldisbrotum eða glæpum. Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga kemur m.a. fram að með erfiðum almennum aðstæðum sé vísað til alvarlegra aðstæðna í heimaríki sem ekki séu staðbundin, svo sem vegna langvarandi stríðsátaka. Þá kemur fram að erfiðar almennar aðstæður taki að jafnaði ekki til neyðar af efnahagslegum rótum eða náttúruhamfara, svo sem fátæktar, hungursneyðar eða húsnæðisskorts. Eigi það m.a. við þegar í heimaríki viðkomandi ríki óðaverðbólga, atvinnuleysi í ríkinu sé mikið eða lágmarkslaun dugi ekki fyrir framfærslu.
Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 með síðari breytingum og athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að með ríkri þörf á vernd af heilbrigðisástæðum sé m.a. miðað við að um skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm sé að ræða og meðferð við honum væri aðgengileg hér á landi en ekki í heimaríki viðkomandi. Í þessu sambandi kemur jafnframt fram að meðferð teljist ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur er hér átt við þau tilvik þar sem meðferð sé til í heimaríkinu en viðkomandi eigi ekki rétt á henni. Þá kunna að falla undir 1. mgr. 74. gr. mjög alvarlegir sjúkdómar sem ekki teljast lífshættulegir, svo sem ef sýnt þykir að þeir muni valda alvarlegu óbætanlegu heilsutjóni. Ef um langvarandi sjúkdóm sé að ræða væru ríkari verndarsjónarmið fyrir hendi ef sjúkdómur væri á lokastigi. Jafnframt væri rétt að líta til þess hvort meðferð hafi hafist hér á landi og ekki væri læknisfræðilega forsvaranlegt að rjúfa meðferð, sem og til atriða sem varði félagslegar aðstæður útlendings og horfur hans.
Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga og athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga er jafnframt fjallað um erfiðar félagslegar aðstæður. Þar kemur fram að átt sé við að útlendingur hafi þörf á vernd vegna félagslegra aðstæðna í heimaríki og eru þar nefnd sem dæmi aðstæður kvenna sem hafa sætt kynferðislegu ofbeldi, sem leitt getur til erfiðrar stöðu þeirra í heimaríki, eða aðstæður kvenna sem ekki fella sig við kynhlutverk sem er hefðbundið í heimaríki þeirra og eiga á hættu útskúfun eða ofbeldi við heimkomu. Verndarþörf þjóðfélagshópa að öðru leyti myndi fara eftir aðstæðum í hverju máli.
Samkvæmt 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem sótt hefur um alþjóðlega vernd hér á landi og ekki fengið niðurstöðu í máli sínu á stjórnsýslustigi innan 18 mánaða eftir að hann lagði inn umsókn sína dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða að uppfylltum skilyrðum 2. og 3. mgr. ákvæðisins. Ef um barn er að ræða skal miða við 16 mánuði.
Niðurstaða um 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga
Með vísan til fyrri umfjöllunar um aðstæður kæranda og aðstæður í heimaríki er það niðurstaða kærunefndar að almennar aðstæður sem bíði kærenda í heimaríki nái ekki því alvarleikastigi sem 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga kveði á um.
Í viðtölum hjá Útlendingastofnun greindu kærendur frá því að þau væru við góða andlega og líkamlega heilsu. Af framburði kærenda verður ekki ráðið að þau glími við skyndilega, lífshættulega eða mjög alvarlega sjúkdóma sem fyrirséð er að muni valda þeim alvarlegu óbætanlegu heilsutjóni. Að framangreindu virtu verður ekki talið að kærendur þarfnist meðferðar sem sé svo sérhæfð að þau geti einungis hlotið hana hérlendis eða að rof á henni yrði til tjóns fyrir þau verði þeim gert að snúa aftur til heimaríkis. Hafa kærendur því ekki sýnt fram á að þau hafi þörf á vernd af heilbrigðisástæðum, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.
Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi A frá því að hafa ekki haft mikið á milli handanna í heimaríki. Hann hafi starfað hjá frænda sínum sem reki fiskvinnslu og gæti starfað þar ef hann færi aftur til heimaríkis. Aðspurður hvort A gæti framfleytt sjálfum sér og fjölskyldu sinni í heimaríki svaraði hann þó að það gæti hann ekki gert. Þá hafi faðir hans komið til Íslands og vilji að A spili fótbolta á Íslandi. Kvaðst A halda tengslum við ömmu sína og frænku í heimaríki. B greindi frá því að hún hafi ekki haft atvinnu í heimaríki en hafi séð um ömmu sína. B hafi verið á framfærslu föður síns og ömmu sinnar, sem hafi fengið fjárhagslegan stuðning frá börnum ömmunnar. B hafi lokið förðunarnámi í heimaríki og kvaðst geta starfað við það snúi hún aftur til heimaríkis.
Kærendur hafa greint frá því að eiga bakland í heimaríki og af gögnum málsins verður talið að þau hafi getað framfleytt sér í heimaríki. Kærendur eru ung að árum og hefur ekkert komið fram sem bendir til annars en að þau sé heilsuhraust og vinnufær. Það er því niðurstaða kærunefndar að félagslegar aðstæður kærenda við komu til heimaríkis séu ekki slíkar að þær geti talist erfiðar í skilningi 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.
Þegar frásögn kærenda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kærenda í heimaríki, er það niðurstaða kærunefndar að kærendur hafi ekki sýnt fram á aðstæður sem ná því alvarleikastigi að þau hafi ríka þörf fyrir vernd líkt og kveðið er á um í 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Það er því niðurstaða kærunefndar að aðstæður í heimaríki séu ekki með þeim hætti að veita beri kærendum dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.
Niðurstaða um 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga
Kærendur sóttu um alþjóðlega vernd hér á landi 26. ágúst 2024 og á ákvæði 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga því ekki við.
Bann við endursendingu samkvæmt 42. gr. laga um útlendinga
Lagagrundvöllur
Samkvæmt 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er ekki heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan einstakling til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Samkvæmt 2. mgr. sömu greinar er einnig óheimilt að senda útlending til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr.
Niðurstaða um bann við endursendingu
Með vísan til umfjöllunar að framan um heimaríki kæranda er það niðurstaða kærunefndar að þær aðstæður sem ákvæðið tekur til eigi ekki við í máli kæranda. Stendur ákvæði 42. gr. laga um útlendinga því ekki í vegi fyrir endursendingu kæranda þangað.
Brottvísun og endurkomubann
Lagagrundvöllur
Í 3. mgr. 43. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 kemur fram að verði umsækjanda um alþjóðlega vernd ekki veitt dvalarleyfi skuli Útlendingastofnun taka ákvörðun um frávísun eða brottvísun eftir ákvæðum laga um útlendinga og að útlendingur sem sótt hafi um alþjóðlega vernd teljist hafa áform um að dveljast á landinu lengur en 90 daga. Samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga skal vísa útlendingi úr landi sem dvelst ólöglega í landinu eða þegar tekin hefur verið ákvörðun sem bindur enda á heimild útlendings til dvalar í landinu svo framarlega sem ákvæði 102. gr. laganna eigi ekki við. Í 102. gr. laganna er kveðið á um vernd og takmarkanir við ákvörðun um brottvísun. Samkvæmt 3. mgr. 102. gr. laganna skal brottvísun ekki ákveðin ef hún, með hliðsjón af atvikum, alvarleika brots og tengslum útlendings við landið, felur í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart útlendingi eða nánustu aðstandendum hans. Sérstaklega skal taka tillit til þess ef um barn eða nánasta aðstandanda barns er að ræða og skal það sem barni er fyrir bestu haft að leiðarljósi við ákvörðun. Við mat á því hvort brottvísun feli í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart kæranda verður að hafa ákvæði 71. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. nr. 33/1944 og 8. gr. mannréttindasáttmála Evrópu um friðhelgi einkalífs og fjölskyldu til hliðsjónar. Þegar útlendingur á hagsmuna að gæta í skilningi 8. gr. sáttmálans verður ákvörðun um brottvísun að vera í samræmi við það sem lög mæla fyrir um og nauðsyn ber til í lýðræðislegu þjóðfélagi, sbr. 2. mgr. 8. gr. sáttmálans.
Samkvæmt 1. mgr. 101. gr. laganna felst í endanlegri ákvörðun um brottvísun skylda útlendings til þess að yfirgefa Schengen-svæðið nema viðkomandi hafi heimild til dvalar í öðru ríki sem er þátttakandi í Schengen-samstarfinu. Með lögum um landamæri nr. 136/2022 voru gerðar breytingar á 98. gr. laga um útlendinga sem leiða til þess að brottvísun og endurkomubann er nú beitt þar sem áður var beitt frávísun en veita skal frest til sjálfviljugrar heimfarar, sbr. 104. gr. laga um útlendinga. Sá sem sætir slíkri ákvörðun getur komist hjá endurkomubanni með því að yfirgefa landið sjálfviljugur innan frestsins, sbr. 3. mgr. 101. gr. laga um útlendinga.
Niðurstaða um brottvísun og endurkomubann
Eins og að framan greinir hefur umsóknum kærenda um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verið synjað. Hafa þau því ekki frekari heimild til dvalar hér á landi. Af framangreindu leiðir að með hinni kærðu ákvörðun var réttilega bundinn endir á heimild kærenda til dvalar hér á landi og ber því samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga að vísa þeim úr landi nema 102. gr. laganna standi því í vegi. Það athugast að kæra til kærunefndar útlendingamála frestaði réttaráhrifum hinna kærðu ákvarðana.
Kærendum var í viðtali hjá Útlendingastofnun leiðbeint um að til skoðunar væri að brottvísa þeim frá Íslandi og ákvarða kærendum endurkomubann hingað til lands. Var kærendum gefið færi á að koma að andmælum hvað það varðar. Kærendur kváðu föður sinn vera búsettan á Íslandi. Þau hafi ekki önnur tengsl við Ísland eða Schengen-svæðið og telji brottvísun og endurkomubann vera ósanngjarnar ráðstafanir gagnvart sér.
Með vísan til framangreindrar umfjöllunar og af þeim svörum sem kærendur gáfu um tengsl sín við Ísland og önnur Schengen-ríki verður ekki séð að brottvísun kærenda og endurkomubann verði talin ósanngjörn ráðstöfun í garð þeirra eða nánustu aðstandenda þeirra, sbr. 3. mgr. 102. gr. laga um útlendinga. Þá horfir kærunefnd jafnframt til þess að kærendur geta komist hjá endurkomubanni og afleiðingum þess yfirgefi þau Ísland innan þess frest sem þeim er gefinn. Geta kærendur þá nýtt sér heimild sína til að koma aftur til aðildarríkja Schengen-samstarfsins, m.a. til að rækta fjölskyldutengsl sín, á grundvelli vegabréfsáritunarfrelsis sem ríkisborgarar Kólumbíu njóta.
Með ákvörðunum Útlendingastofnunar var kærendum veittur 15 daga frestur til að yfirgefa landið með sjálfviljugri heimför og þannig fá endurkomubannið fellt niður.
Með vísan til 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga teljast 15 dagar hæfilegur frestur í tilviki kærenda til að yfirgefa landið. Endurkomubann kærenda fellur niður yfirgefi þau landið innan framangreinds frests.
Athugasemdir, samantekt og leiðbeiningar
Með vísan til alls þess sem að framan er rakið og forsendna hinna kærðu ákvarðana eru þær staðfestar.
Athygli kærenda er vakin á því að samkvæmt 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum eftir birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir því að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ákvörðunarinnar ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.
Úrskurðarorð:
Ákvarðanir Útlendingastofnunar eru staðfestar. Endurkomubann kærenda verða felld úr gildi fari þau frá Íslandi innan 15 daga.
The decisions of the Directorate of Immigration are affirmed. If the appellants leave Iceland voluntarily within 15 days, the re-entry ban will be revoked.
Þorsteinn Gunnarsson
Vera Dögg Guðmundsdóttir