19 febrúar 2026
/
Úthlutun úr Íþróttasjóði 2026
Mennta- og barnamálaráðherra hefur samþykkt tillögu Íþróttanefndar um úthlutun styrkja úr Íþróttasjóði fyrir árið 2026. Úthlutað er til 76 verkefna fyrir alls 32 milljónir króna.
Nefndinni bárust alls 134 umsóknir að upphæð rúmlega 313 m.kr. um styrki úr Íþróttasjóði fyrir árið 2026.
Alls bárust 78 umsóknir um styrki til að bæta aðstöðu til íþróttaiðkunar að upphæð um 215 m.kr. Styrkumsóknir um fræðslu- og útbreiðsluverkefni voru 50 að upphæð 86 m.kr. og umsóknir vegna íþróttarannsókna voru 8 að upphæð 12 m.kr.
Nánari upplýsingar um úthlutunina eru veittar á vef Rannís sem annast umsýslu sjóðsins fyrir mennta- og barnamálaráðuneytið.