23 febrúar 2026

/

FAO fundar um fiskveiðistjórnun í Reykjavík

{image.Description}

Undirnefnd COFI um fiskveiðistjórnun (Committee on Fisheries) kom saman til fyrsta staðfundar síns 23.–27. febrúar í Reykjavík. Fundinn sóttu sendinefndir frá 58 aðildarríkjum og 36 stofnunum og félagasamtökum sem flest vinna að því að efla alþjóðlegt samstarf um sjálfbæra nýtingu auðlinda hafsins og ábyrga eldisframleiðslu. Formaður nefndarinnar er Stefán Ásmundsson, sérlegur ráðgjafi um haftengd málefni og sjávarútveg í utanríkisráðuneytinu.


 

COFI er ein þriggja megin tækninefnda FAO og hefur starfað allar götur síðan 1965. Nefndin fjallar um hvað eina sem varðar samstarf ríkja á sviði sjávarútvegs, fiskveiða í ferskvatni og eldis. Hinar tækninefndir FAO starfa á sviði skógræktar (COFO) annars vegar og landbúnaðar (COAG) hins vegar.


 

Undirnefndin um fiskveiðistjórnun er ein þriggja undirnefnda COFI og sú yngsta, en fundurinn í Reykjavík var annar fundur undirnefndarinnar. Það, að stofnuð væri sérstök undirnefnd um fiskveiðistjórnun, endurspeglar það mat aðildarríkja FAO að samstarf ríkja um bætta fiskveiðistjórnun sé afar mikilvægt. Fiskveiðar eru lífsnauðsynlegar fyrir alþjóðlegt matvælaöryggi og næringu, lífsviðurværi hundraða milljóna manna um allan heim, þjóðarbúskap, viðskipti og heilbrigð vistkerfi. Langtíma sjálfbærni þeirra byggir þó á traustri, árangursríkri og vísindalegri stjórnun.


 

Í nýlegum rannsóknum FAO eru tekin saman viðameiri og traustari gögn en áður hafa verið tiltæk um ástand og nýtingu fiskstofna í heimshöfunum. Rannsóknirnar leiða í ljós að yfir þriðjungur sjávarstofna heims er enn ofveiddur, en að hlutfall heildarafla úr heimshöfunum sem veiddur er úr stofnum, sem ekki eru ofnýttir, hefur heldur aukist.


 

Á fundinum voru ræddar lykilstoðir fiskveiðistjórnunar, m.a. öflun vísindalegrar þekkingar og gagna, styrking gagnreyndrar stjórnunar, stjórnun sóknar og flotastærð, bætt eftirlit með fiskveiðum, aukið svæðisbundið samstarf, alþjóðlega samninga og félagslega þætti í fiskveiðistjórnun.


 

Skýrsla undirnefndarinnar verður lögð fyrir fund COFI sem haldinn verður í Róm í september næstkomandi.