26 febrúar 2026

/

Mál nr. 791/2025-Úrskurður

 

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 791/2025

Fimmtudaginn 26. febrúar 2026

A

gegn

Suðurnesjabæ

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur.

Með kæru, dags. 4. desember 2025, kærði Nicoleta Orbeanu, kt. 290983-5339, til úrskurðarnefndar velferðarmála afgreiðslu Suðurnesjabæjar á umsókn hennar um fjárhagsaðstoð.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Með umsókn, dags. 8. nóvember 2025, sótti kærandi um fjárhagsaðstoð hjá Suðurnesjabæ. Kærandi lagði fram kæru hjá úrskurðarnefnd velferðarmála 4. desember 2025 og vísaði til þess að umsókn hennar um fjárhagsaðstoð frá 8. nóvember 2025 hefði ekki verið afgreidd.

Með bréfi til velferðarsviðs Suðurnesjabæjar, dags. 4. desember 2025, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Suðurnesjabæjar vegna kærunnar ásamt gögnum málsins. Gögn bárust frá Suðurnesjabæ 18. desember 2025 og voru þau kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 22. desember 2025. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Í kæru til úrskurðarnefndar velferðarmála greinir kærandi frá því að þrátt fyrir að umsókn hennar hafi verið lögð inn með góðum fyrirvara hafi greiðsla ekki borist og sveitarfélagið ekki svarað fjölmörgum fyrirspurnum hennar. Að mati kæranda hafi sveitarfélagið brotið gegn skyldum sínum samkvæmt lögum nr. 40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga, þar á meðal 12. og 14. gr. laganna sem kveði á um skyldu sveitarfélaga til að veita aðstoð án óhæfilegs dráttar og svara erindum innan sanngjarns tíma.

Kærandi greinir frá því að hún hafi sótt um fjárhagsaðstoð frá Suðurnesjabæ fyrir desembermánuð. Þann 27. nóvember 2025 hafi hún sent bænum fyrirspurn um stöðu umsóknar. Kærandi hafi ítrekað fyrstu fyrirspurnina dagana 28. nóvember, 1. og 2. desember 2025. Þrátt fyrir fjölda fyrirspurna hafi Suðurnesjabær ekki svarað henni, ekki upplýst hana um stöðu umsóknar og ekki greitt fjárhagsaðstoðina sem kærandi telji sig eiga rétt á.

Vegna dráttarins hafi kærandi orðið fyrir verulegu tjóni og félagslegum erfiðleikum. Kærandi hafi ekki getað keypt nauðsynleg lyf, ekki getað keypt mat og þurft að reiða sig á aðstoð annarra. Hún hafi orðið fyrir sektum og dráttarvöxtum á reikningum. Kærandi greinir frá því að hún hafi ekki getað keypt jólagjafir fyrir fjölskyldu sína sem hafi haft mikil tilfinningaleg áhrif. Hún telji þetta vera alvarlega afleiðingu ólögmæts dráttar.

Að mati kæranda hafi Suðurnesjabær brotið gegn 12. gr. laga nr. 40/1991 um skyldu til að veita félagsþjónustu og tryggja lágmarksframfærslu. Suðurnesjabær hafi einnig brotið gegn 14. gr. sömu laga um skyldu til að afgreiða umsóknir og erindi án óhæfilegs dráttar. Þá hafi Suðurnesjabær brotið gegn 7. og 20. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 um að mál skuli afgreidd eins fljótt og kostur sé á og að aðila skuli veittar upplýsingar um stöðu máls. Þá telji kærandi aðgerðarleysi, skort á svörum og tafir á greiðslu vera stjórnvaldsbrot.

Kærandi fari fram á að nefndin kveði á um að Suðurnesjabær hafi brotið gegn lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga með því að tefja málið og svara ekki erindum hennar. Hún fari fram á að nefndin skipi sveitarfélaginu að greiða sér fjárhagsaðstoð fyrir desember án frekari tafa og meti hvort drátturinn hafi valdið henni bótaskyldu tjóni, sbr. meginreglur skaðabótaréttar um ábyrgð stjórnvalda. Hún fari einnig fram á að sveitarfélagið tryggi að sambærilegt aðgerðaleysi endurtaki sig ekki.

Kærandi óski þess að úrskurðarnefnd taki málið fyrir sem fyrst þar sem fjárhagsstaða hennar sé mjög erfið vegna ólögmætra tafa og samskiptaleysis Suðurnesjabæjar. Kærandi hafi gert allt sem í hennar valdi standi til að fá svör en engin svör fengið.

III.  Sjónarmið Suðurnesjabæjar

Í greinargerð Suðurnesjabæjar til úrskurðarnefndarinnar kemur fram að kærandi hafi fengið fjárhagsaðstoð til framfærslu hjá Suðurnesjabæ á tímabilinu júlí til desember 2025. Kæra umsækjanda lúti að afgreiðslu umsóknar fyrir nóvembermánuð. Umsókn kæranda um fjárhagsaðstoð hafi borist Suðurnesjabæ þann 8. nóvember 2025. Málavinnsla hafi hafist þann 19. nóvember 2025 þegar velferðarsvið hafi sett umsóknina í vinnslu í rafræna umsóknarkerfinu Veitu en þar inni geti kærandi fylgst með framgangi umsóknar sinnar.

Ákveðið hafi verið að vinna umsóknina áfram og hafa samband við kæranda til að afla frekari upplýsinga um stöðu hennar varðandi endurhæfingu. Fyrr á árinu hafi velferðarsvið verið í samskiptum við kæranda um mögulega endurhæfingu. Umsókn um endurhæfingu og greiðslur tengdar henni geti haft áhrif á rétt til fjárhagsaðstoðar og kæranda beri að upplýsa sveitarfélagið um stöðu slíkra mála.

Þann 28. nóvember 2025 hafi starfsmaður velferðarsviðs í tvígang reynt að ná sambandi við kæranda án árangurs. Fyrir hafi borist tölvupóstur frá kæranda þann 27. nóvember 2025 þar sem óskað hafi verið upplýsinga um stöðu umsóknarinnar. Í kjölfarið hafi borist frekari tölvupóstar dagana 28. nóvember, 1. og 2. desember 2025, þar sem kærandi hafi óskað eftir skýringum á því hvers vegna greiðsla hefði ekki borist vegna desembermánaðar, þrátt fyrir að umsókn lúti að greiðslu vegna nóvembermánaðar.

Í byrjun desember hafi sveitarfélagið aflað sér upplýsinga úr staðgreiðsluskrá í Veitu og hafi þar komið fram að kærandi hafi verið tekjulaus í nóvember 2025 og hafi ekki fengið greiddan endurhæfingarlífeyri frá Tryggingastofnun ríkisins. Að fengnum þessum upplýsingum hafi legið fyrir að unnt væri að taka efnislega afstöðu til umsóknarinnar, enda ljóst að kærandi hafi verið tekjulaus allan mánuðinn. Þann 5. desember 2025 hafi kærandi fengið greidda framfærslu að upphæð 171.637 kr., ásamt jólaaðstoð að upphæð 25.746 kr.

Kæra til úrskurðarnefndar velferðarmála hafi verið lögð fram af hálfu umsækjanda þann 4. desember 2025 og borist Suðurnesjabæ 5. desember 2025, eða nokkrum klukkustundum eftir að fjárhagsaðstoð hafi verið greidd út.

IV.  Niðurstaða

Kærandi lagði fram kæru þann 4. desember 2025 hjá úrskurðarnefnd velferðarmála á grundvelli 4. mgr. 9. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 vegna afgreiðslu Suðurnesjabæjar á umsókn hennar um fjárhagsaðstoð fyrir nóvembermánuð 2025. Samkvæmt ákvæðinu er heimilt að kæra til æðra stjórnvalds óhæfilegan drátt á afgreiðslu máls.

Fyrir liggur að eftir að kærandi lagði fram kæruna afgreiddi Suðurnesjabær mál hennar eða þann 5. desember 2025, þ.e. kærandi fékk þann dag greidda fjárhagsaðstoð fyrir þann mánuð sem ágreiningur laut að. Í ljósi þess að kærandi hefur þegar fengið greidda umbeðna fjárhagsaðstoð er það mat úrskurðarnefndarinnar að lögvarðir hagsmunir kæranda af efnislegri úrlausn málsins séu ekki lengur til staðar. Kærunni er því vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála.

 

 


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Kæru A, er vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir