26 febrúar 2026
/
Réttindi barna skýrð frekar með breytingartillögum á frumvarpi til laga um brottfarastöð
Dómsmálaráðherra hefur sent allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis breytingartillögur við frumvarp sitt til laga um brottfararstöð sem nú er til umfjöllunar hjá nefndinni. Lagt er til að kveðið verði skýrt á um að fjölskyldur með börn verði vistaðar í húsnæði sem er eingöngu ætlað fjölskyldum með börn. Með því er tryggður algjör aðskilnaður þeirra frá einstaklingum sem vistaðir eru á brottfararstöð. Þá er áréttað að hver fjölskylda hafi sérstakar vistarverur sem tryggja friðhelgi einkalífs.
Við vinnslu frumvarpsins bárust umsagnir frá innlendum og alþjóðlegum aðilum, þar á meðal mannúðarsamtökum, Barna- og fjölskyldustofu og Mannréttindafulltrúa Evrópuráðsins. Í ljósi þeirra sjónarmiða sem þar komu fram telur ráðherra rétt að gera breytingar á frumvarpinu til að taka af allan vafa um fyrirkomulag vistunar fjölskyldna með börn og árétta sérstaklega réttindi barna á meðan vistun stendur.
„Öll Norðurlöndin reka brottfararstöðvar þar sem skýr lagarammi er til staðar. Við höfum horft til reynslu þessara ríkja við mótun frumvarpsins og með þessum breytingum mun enginn vafi leika á því að tekið verði fullt tillit til barna og að réttindi þeirra séu alltaf í forgrunni. Við verðum hins vegar að uppfylla alþjóðlegar skuldbindingar okkar, enda er Ísland eina Schengen-ríkið sem ekki á svona úrræði. Brottfararstöð er alltaf tímabundið úrræði og verður aðeins beitt þegar önnur vægari úrræði duga ekki til. Þangað þarf enginn að fara,“ segir Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra.
Samkvæmt frumvarpinu er einungis heimilt að vista börn ásamt fjölskyldum sínum í mjög skamman tíma, að jafnaði allt að þremur dögum og að hámarki níu dögum og almennt einungis þegar brottför úr landi liggur fyrir.
Allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis mun nú taka breytingartillögurnar til nánari skoðunar við áframhaldandi meðferð frumvarpsins.