26 febrúar 2026
/
Rýmkun á viðmiðunarmörkum vegna mengaðs jarðvegs
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra hefur undirritað reglugerð um mengaðan jarðveg, þar sem m.a. viðmiðunarmörk fyrir vanadíum, kóbalt og kopar í óröskuðum íslenskum jarðvegi eru hækkuð.
Um er að ræða afrakstur vinnu sem ráðherra setti af stað til að liðka fyrir íbúðauppbyggingu án þess að ganga gegn markmiðum um heilnæm lífsskilyrði.
Með aukinni reynslu af framkvæmd reglugerðar og notkun viðmiðunargilda í viðauka hennar vaknaði grunur um að bakgrunnsgildi nokkurra þungmálma í íslenskum jarðvegi gætu verið enn hærri en upplýsingar lágu fyrir um þegar reglugerðin var sett árið 2020. Á það fyrst og fremst við um framangreind efni. Niðurstöður þeirra sýnataka á óröskuðum jarðvegi sem hafa verið framkvæmdar staðfesta þann grun og voru umsagnir sem bárust við reglugerðarbreytinguna í Samráðsgátt stjórnvalda samhljóma um að hækka skyldi framangreind viðmiðunarmörk.
Áfram verður fylgst með þeirri þróun sem er að eiga sér stað varðandi mengaðan jarðveg og viðmiðunarmörk sem og þeim rannsóknum sem eiga sér stað á íslenskum jarðvegi.
Reglugerð um (1.) breytingu á reglugerð nr. 1400/2020 um mengaðan jarðveg