26 febrúar 2026

/

Úrskurður nr. 106/2026

Hinn 26. febrúar 2026 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 106/2026

í stjórnsýslumáli nr. KNU25100074

 

Kæra [...]

I.          Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 14. október 2025 kærði [...], fd. [...], ríkisborgari Víetnam (hér eftir kærandi), ákvörðun Lögreglustjórans á Suðurnesjum, dags. 12. október 2025, um frávísun frá Íslandi.

Kærandi krefst þess að hin kærða ákvörðun um frávísun á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga verði felld úr gildi.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

Lagagrundvöllur

Í máli þessu koma einkum til skoðunar ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016 ásamt síðari breytingum, reglugerð um útlendinga nr. 540/2017 ásamt síðari breytingum, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, ákvæði laga um landamæri nr. 136/2022, reglugerð um för yfir landamæri nr. 866/2017, reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins 2016/399 um för yfir landamæri (Schengen-landamærareglurnar), stjórnarskrá lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944, mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, auk annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

II.         Málsatvik og málsmeðferð

Með boðsbréfi, dags. 10. september 2025, var óskað eftir vegabréfsáritun fyrir kæranda til Íslands og Schengen-svæðisins fyrir tæplega þriggja mánaða dvöl frá 11. október 2025 til 5. janúar 2026 til að dvelja með kærustu sinni og hitta foreldra hennar hér á landi. Umsókn kæranda var lögð fram í Bandaríkjunum. Vegabréfsáritun kæranda var gefin út með ákvörðun utanríkisþjónustunnar, dags. 18. september 2025, og heimilaði kæranda margar komur (e. multiple-entry) og dvöl á Schengen-svæðinu á tímabilinu 11. október 2025 til 8. apríl 2026 í allt að 90 daga. Kærandi kom til Íslands 12. október 2025, með flugi frá Minneapolis, Bandaríkjunum. Með ákvörðunum Lögreglustjórans á Suðurnesjum, dags. sama dag, var kæranda vísað frá landinu á grundvelli c- og d-liða 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga. Í athugasemdum við ákvörðun um frávísun kemur fram að kærandi hafi ekki getað sýnt fram nægt fjármagn og tilgang ferðar sinnar.

Samkvæmt samantekt lögreglu, dags. 14. október 2025, hafi 12. október s.á. verið haft samband frá komusal landamæra varðandi kæranda sem kom frá Minneapolis í Bandaríkjunum. Kærandi hafi framvísað víetnömsku vegabréfi. Kærandi hafi verið óljós í svörum varðandi tilgang sinn til dvalar. Við uppflettingu vegabréfsáritunar kæranda í kerfum Útlendingastofnunar kom fram að umsókn hans hafi verið merkt með athugasemd um grun um að hann myndi setjast að ólöglega hér á landi vegna láglauna starf síns í Bandaríkjunum. Þá kom einnig fram í umsókn að hann væri sjálfstætt starfandi en með lág laun. Kærandi hafi ekki gefið upp launaseðla eða bankaupplýsingar en skilað inn skattframtali. Í boðsbréfi vegna umsóknar um vegabréfsáritun kom fram að ástæða dvalar væri að kærandi myndi hitta kærustu sína og foreldra hennar. Þá hafi heimilisfangi kærustu kæranda verið flett upp í kerfum lögreglu en þar hafi farið fram fíkniefnaframleiðsla og ellefu aðilar verið skráðir með sama heimilisfang. Kærandi greindi frá því við lögreglu að vera kominn til að hitta nafngreinda kærustu sína sem hann kvaðst hafa þekkt í meira en ár. Kærandi og kærasta hans hafi kynnst í nóvember árið 2024 og hist í febrúar árið 2025 í Bandaríkjunum. Kærandi kvaðst hafa kynnst henni í gegnum nánar tilgreint samskiptaforrit. Kærandi kvaðst hafa verið búsettur í Bandaríkjunum í þrjú ár og að þar í landi væru móðir hans og systir búsettar. Hann væri kominn hingað til lands til að hitta foreldra kærustu sinnar en hann væri ekki með neinar áætlanir í ferðinni og kvaðst ekki vita um nein staðarheiti hér á landi. Kærandi hafi framvísað rúmum 2.500 bandaríkjadölum í reiðufé og greiðslukorti en að engin innistæða væri á kortinu þar sem kærasta hans hafi beðið hann að taka alla upphæðina af kortinu út í reiðufé. Þar sem ljóst var kærandi gæti ekki gert grein fyrir hvað hann hygðist gera á Íslandi og væri ekki með nægt fjármagn til uppihalds fyrir ferð sína tók lögregla ákvörðun um frávísun frá landinu, sbr. c- og d-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga. Kærandi hafi svo farið með flugi til Minneapolis 12. október 2025.

Kærandi kærði ákvarðanir Lögreglustjórans á Suðurnesjum til kærunefndar útlendingamála 14. október 2025 og bárust gögn frá kæranda sama dag. Gögn frá lögreglu vegna málsins bárust 10. nóvember 2025. Vegna ákvörðunar um frávísun var kæranda skipaður talsmaður samkvæmt 3. mgr. 13. gr. laga um útlendinga. Greinargerð kæranda barst 12. febrúar 2026.

III.       Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda er vísað til fyrirliggjandi málsatvika og málsmeðferðar Lögreglustjórans á Suðurnesjum. Kærandi hafi komið hingað til lands til að hitta kærustu sína og foreldra hennar en hann og kærastan hafi hist tvisvar sinnum áður í Bandaríkjunum.

Kærandi byggir á því að málsmeðferðarreglum stjórnsýsluréttar hafi ekki verið fylgt við töku ákvörðunar hjá Lögreglustjóranum á Suðurnesjum og því sé ákvörðunin ógildanleg. Ekki hafi verið fullnægt reglum um andmælarétt, leiðbeiningarskyldu og rannsókn. Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hafi ekki kannað hverjar aðstæður kæranda væru við mat á frávísun. Kærandi telji að honum hafi ekki verið veittar leiðbeiningar um heimild til að fá rökstuðning með ákvörðuninni. Þá telur kærandi að gögn málsins beri ekki með sér með ótvíræðum hætti af hvaða ástæðum honum hafi verið synjuð koma til landsins. Því beri fella hina kærðu ákvörðun úr gildi á þeim grundvelli að hún hafi verið ólögmæt og því séu skilyrði c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga ekki uppfyllt. Kærandi gerir athugasemd við rökstuðning í samantekt lögreglu um að ellefu aðilar hafi verið með heimilisfang á dvalarstað kæranda. Kærandi vísar til leiguverðs, húsnæðisverðs og almennra aðstæðna á Íslandi og telur að ekki sé um að ræða haldbæra ástæðu fyrir frávísun í málinu. Jafnframt gerir kærandi athugasemd við umfjöllun í samantekt um að heimilisfangið hafi verið notað undir fíkniefnaframleiðslu. Ekki komi fram hvenær það brot hafi átt sér stað eða hvort sakfelling í málinu varði boðsaðila eða aðra sem tengist kæranda. Þá telur kærandi að engin sönnun sé fyrir því að hann ætli sér að setjast að hér á landi ólöglega en ekki sé rökstutt á hverju sá grunur sé reistur. Kærandi vísar til jafnræðisreglu og gerir athugasemd við frávísun á þessum grundvelli. Þá telur kærandi það ekki hafa þýðingu að hann hafi ekki getað greint frá staðarheitum á Íslandi. Kærandi vísar til uppruna síns og móðurmáls en að um sé að ræða fyrstu heimsókn hans til landsins. Kærandi telji frávísun á grundvelli framangreinds ekki vera í samræmi við ákvæði laga um útlendinga.

Kærandi telji að ógilda beri ákvörðun Lögreglustjórans á Suðurnesjum á þeim grundvelli að skráðar og óskráðar reglur stjórnsýsluréttarins hafi verið brotnar við töku ákvörðunar í máli hans, þ.m.t. málsmeðferðarreglur stjórnvalda um leiðbeiningarskyldu og andmælarétt auk þess sem reglur um efni rökstuðnings og skýrleikaregla stjórnsýsluréttar við töku stjórnvaldsákvarðana hafi ekki verið í samræmi við vandaða stjórnsýsluhætti.

IV.      Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Samkvæmt 1. mgr. 49. gr. laga um útlendinga er útlendingi sem þarf vegabréfsáritun til landgöngu óheimilt að dveljast hér á landi lengur en áritunin segir til um nema sérstakt leyfi komi til. Kærandi er ríkisborgari Víetnam og fékk útgefna vegabréfsáritun með ákvörðun utanríkisþjónustunnar, dags. 18. september 2025.

Ákvörðun Lögreglustjórans á Suðurnesjum um frávísun kæranda, dags. 12. október 2025, byggir á c- og d-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. reglugerð um för yfir landamæri nr. 866/2017. Samkvæmt 1. mgr. 106. gr. a laga um útlendinga tekur lögreglustjóri ákvörðun um frávísun við komu til landsins samkvæmt 1. mgr. 106. gr. laganna. Útlendingastofnun tekur ákvörðun um frávísun eftir komu til landsins og aðrar ákvarðanir samkvæmt XII. kafla laganna.

Samkvæmt c-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga er heimilt að frávísa útlendingi við komu til landsins þegar hann hefur ekki tilskilið leyfi til dvalar eða vinnu eða getur ekki leitt líkur að þeim tilgangi sem gefinn er upp fyrir dvölinni, sbr. c-lið ákvæðisins. Í greinargerð með frumvarpi því sem varð að gildandi lögum um útlendinga segir m.a. að ákvæði c-liðar mæli fyrir um að heimilt sé að vísa útlendingi frá landi ef hann geti ekki leitt líkur að þeim tilgangi sem gefinn sé upp fyrir dvölinni. Sé ákvæðið efnislega samhljóða c-lið 1. mgr. 5. gr. reglugerðar (EB) nr. 562/2006 um för fólks yfir landamæri. Þá er í greinargerðinni vísað til 5. gr. reglugerðar um för yfir landamæri nr. 866/2017.

Í 5. gr. reglugerðar nr. 866/2017 er mælt fyrir um skilyrði fyrir komu útlendinga til landsins sem hvorki eru EES- né EFTA borgarar. Kemur þar fram að útlendingur sem hvorki er EES- né EFTA-borgari, sem hyggst dvelja á Schengen-svæðinu, þ.m.t. Íslandi, í allt að 90 daga á 180 daga tímabili verði, auk þeirra skilyrða sem koma fram í 106. gr. laga um útlendinga, að uppfylla þau skilyrði sem fram koma í a-e-liðum ákvæðisins. Eru skilyrðin eftirfarandi: Að framvísa gildum, lögmætum og ófölsuðum ferðaskilríkjum eða öðru kennivottorði sem heimilar honum för yfir landamæri, sbr. viðauka 3. Ferðaskilríki skal vera gefið út á sl. 10 árum til þess að það teljist gilt og gildistími ferðaskilríkis vera í a.m.k. þrjá mánuði umfram brottfarardag, sbr. a-lið. Hafa gilda vegabréfsáritun sé hann ekki undanþeginn áritunarskyldu, nema hann hafi gilt dvalarleyfi eða gilda vegabréfsáritun til langs tíma, sbr. viðeigandi viðauka í reglugerð um vegabréfsáritanir, sbr. b-lið. Má ekki vera skráður í Schengen-upplýsingakerfið í þeim tilgangi að meina honum komu til landsins, sbr. c-lið. Má ekki vera talinn ógna þjóðaröryggi, allsherjarreglu, almannaheilsu eða alþjóðasamskiptum ríkisins eða annars Schengen-ríkis, sbr. d-lið. Loks þarf viðkomandi að geta fært rök fyrir tilgangi og skilyrðum fyrirhugaðrar dvalar, og hafa nægt fé sér til framfærslu, á meðan dvöl stendur og vegna ferðar til upprunalands eða gegnumferðar til þriðja lands, eða vera í aðstöðu til að útvega sér slíkt fé á lögmætan hátt, sbr. e-lið.

Til sönnunar á að framangreindum skilyrðum 5. gr. reglugerðarinnar fyrir komu sé fullnægt sé landamæraverði m.a. heimilt að krefja útlending samkvæmt 1. mgr. um eftirfarandi gögn vegna ferðalaga af persónulegum ástæðum: Gögn sem sýna fram á tryggt húsnæði, t.d. boðsbréf frá gestgjafa eða önnur gögn sem sýna fram á hvar viðkomandi hyggst búa, gögn sem staðfesta ferðaáætlun, staðfesting bókunar á skipulagðri ferð eða önnur gögn sem varpa ljósi á fyrirhugaða ferðaáætlun og gögn varðandi heimferð, s.s. farmiða.

Í samantekt lögreglu vegna frávísunar kæranda kemur fram skráning utanríkisþjónustunnar, í upplýsingakerfi um vegabréfsáritanir (VIS kerfi), um að grunur hafi verið að kærandi hygðist setjast hér að ólöglega þar sem hann væri sjálfstætt starfandi í láglauna starfi. Kærandi hafi hvorki getað greint frá staðarheitum né hafi hann neitt skipulagt þrátt fyrir þriggja mánaða dvöl hér á landi. Jafnframt hafi áformaður dvalarstaður kæranda verið vettvangur fíkniefnaframleiðslu í ótengdu sakamáli.  Kærunefnd gerir athugasemd við framangreindan rökstuðning í samantekt lögreglu. Ekki er að finna frekari umfjöllun um að hvaða leyti það hafi þýðingu fyrir mál kæranda hve margir hafi verið skráðir til heimilis í húsnæðinu sem hann hygðist dvelja í á tímabilinu auk þess sem ekki hafi verið nægilega rökstutt hvaða þýðingu það hefði að dvalarstaður kæranda hafi verið skráður sem vettvangur fíkniefnaframleiðslu, t.d. hvort tengdir aðilar hafi átt hlut að máli eða hvenær það atvik hafi átt sér stað. Voru skilyrði til frávísunar á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga því ekki uppfyllt.

Samkvæmt d-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga er m.a. heimilt að vísa útlendingi frá við komu til landsins eða allt að sjö sólarhringum frá komu ef hann getur ekki sýnt fram á að hann hafi eða eigi tryggð nægileg fjárráð til dvalar hér á landi og til heimferðar. Fram kemur í athugasemdum við ákvæðið að meta þurfi hverju sinni hvenær útlendingur teljist hafa nægileg fjárráð til framfærslu og til heimferðar. Þá yrði skilyrðum um nægileg fjárráð til heimferðar t.d. fullnægt með framvísun farmiða. Samkvæmt 2. mgr. 5. gr. reglugerðar um för yfir landamæri skal við mat á því hvort útlendingur teljist hafa nægileg fjárráð m.a. tekið mið af lengd og tilgangi dvalar. Mat á fjárráðum megi byggja á reiðufé, ferðatékkum og greiðslukortum sem útlendingur sé handhafi að.

 Í samantekt lögreglu kemur fram að kærandi hafi framvísaði rúmum 2.500 bandaríkjadölum í reiðufé. Kærandi hafði einnig greiðslukort meðferðis en hann hafi ekki verið með frekara fjármagn á því korti. Í 21. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir nr. 795/2022, kemur fram að sönnun fyrir því að einhver ábyrgist framfærslu umsækjanda og/eða gistingu hans í heimahúsi geti einnig talist sönnun á nægu framfærslufé við heildarmat á umsókn um vegabréfsáritun. Í boðsbréfi, dags. 10. september 2025, vegna heimsóknar kæranda hingað til lands, kemur fram að kærasta kæranda ætli að framfleyta og hýsa kæranda á meðan dvöl hans stendur hér á landi. Kæranda hafi verið veitt vegabréfsáritun á grundvelli þess að hann hafi ætlað að dvelja hjá kærustu sinni. Ljóst er að lögregla hafi ekki rannsakað nægilega boðsbréf kæranda hingað til lands en ekkert í samantekt lögreglu hnekkir mati utanríkisþjónustunnar.

Þegar litið er til gagna málsins, m.a. þess að ekkert bendi til þess að kærandi hafi áður komið við sögu hjá lögreglu, dvalið hér á landi með ólögmætum hætti eða stundað ólögmæta atvinnu, verður ekki talið að tilefni hafi verið til að gera strangari kröfur til framlagningar gagna eða trúverðugleika framburðar kæranda. Þá er ekkert í gögnum málsins sem bendir til þess að tilgangur dvalar kæranda hér á landi hafi verið annar en framburðurinn ber með sér. Áréttast í þessu sambandi að ákvörðun um frávísun er íþyngjandi stjórnvaldsákvörðun og ber að túlka vafa aðilanum í hag.

Að virtum gögnum málsins hefur kærandi lagt fram fullnægjandi gögn með vísan til 5. gr. reglugerðar um för yfir landamæri. Að framangreindu virtu hefur kærandi leitt nægar líkur að á þeim tilgangi sem hann hafi gefið upp fyrir dvöl sinni hér á landi. Þá hefur ekki verið sýnt fram á að kærandi hafi ekki nægilegt fjárráð til dvalar hér á landi. Eru skilyrði til frávísunar, sbr. c- og d-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, því ekki uppfyllt. Er hin kærða ákvörðun því felld úr gildi.

Í ljósi þess að kærandi hefur fengið meginkröfu sína uppfyllta er ekki tilefni til þess að fjalla um aðrar málsástæður hans í úrskurði þessum.Athugasemdir við störf lögreglu

Hin kærða ákvörðun fjallar um réttindi og skyldur kæranda í skilningi 2. mgr. 1. gr. stjórnsýslulaga. Í ákvörðuninni kemur fram að kæranda væri vísað frá landinu á þeim lagagrundvelli sem hér hefur verið fjallað um að framan. Að öðru leyti kom ekki fram í ákvörðuninni hvaða atvik er vörðuðu kæranda hefðu leitt til þeirrar niðurstöðu eða þau meginsjónarmið sem voru ráðandi við töku ákvörðunarinnar að undanskildum þeim athugasemdum sem koma fram í ákvörðuninni um að kærandi hafi ekki getað sýnt fram á nægileg fjárráð og því væri tilgangur dvalar óljós. Verður því að líta svo á að hinni kærðu ákvörðun hafi ekki fylgt rökstuðningur í skilningi 22. gr. stjórnsýslulaga. Bar því að leiðbeina kæranda um þá heimild sína samkvæmt 21. gr. stjórnsýslulaga að fá slíkan rökstuðning eftir á. Í hinni kærðu ákvörðun var ekki fyrir að finna slíkar leiðbeiningar. Að þessu leyti var hin kærða ákvörðun ekki í samræmi við 2. mgr. 20. gr. stjórnsýslulaga. Framangreindur annmarki hefur þó ekki áhrif á niðurstöðu málsins. Eins og atvikum málsins háttar er annmarkinn þó ekki slíkur að valdi ógildingu ákvörðunarinnar og hefur ekki áhrif á niðurstöðu málsins.

Samantekt

Að öllu framangreindu virtu er ákvörðun Lögreglustjórans á Suðurnesjum um að frávísa kæranda á grundvelli c- og d-liða 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, felld úr gildi.


 

Úrskurðarorð:

 

Ákvörðun Lögreglustjórans á Suðurnesjum er felld úr gildi.

The decision of the Police Commissioner of Suðurnes District is vacated.

 

 

 

Þorsteinn Gunnarsson                               Vera Dögg Guðmundsdóttir