27 febrúar 2026

/

1339/2026. Úrskurður frá 27. febrúar 2026

Hinn 27. febrúar 2026 kvað úrskurðarnefnd um upplýsingamál upp svohljóðandi úrskurð nr. 1339/2026 í máli ÚNU 25110013.
 

Kæra, málsatvik og málsmeðferð

Með erindi, dags. 27. nóvember 2025, kærði Sameyki stéttarfélag í almannaþjónustu til úrskurðar­nefnd­ar um upplýsingamál ákvörðun Reykjavíkurborgar að synja beiðni kæranda um upplýsingar.
 
Með erindi, dags. 20. ágúst 2024, óskaði kærandi eftir upplýsingum frá Reykjavíkurborg m.a. um það hvort borgin hefði fellt niður áunnið og ótekið orlof hjá starfsmönnum borgarinnar sem störf­uðu eða hefðu starfað hjá borginni. Þeirri beiðni var hafnað með erindi, dags. 24. febrúar 2025. Kærandi vísaði þeirri ákvörðun borgarinnar til úrskurðarnefndar um upplýsingamál. Með úrskurði nr. 1282/2025 frá 16. júní 2025 var beiðni kæranda vísað til nýrrar meðferðar og afgreiðslu hjá Reykjavíkurborg á þeim grundvelli að borginni væri rétt að hafa samráð við kæranda um hvernig beiðnin yrði rétt skilin svo hægt væri að afmarka hana við fyrirliggjandi gögn í vörslu borgarinnar og taka afstöðu til réttar til aðgangs að þeim á grundvelli upplýsingalaga.
 
Í framhaldi af uppkvaðningu úrskurðarins hafði kærandi samband við Reykjavíkurborg með erindi, dags. 23. júní 2025, og óskaði eftir upplýsingum um næstu skref og hvernig kærandi skyldi bera sig að við afmörkun beiðninnar. Reykjavíkurborg brást við með erindi, dags. 27. júní 2025, þar sem fram kom hvernig borgin liti svo á að rétt væri að kærandi afmarkaði beiðni sína. Með erindi, dags. 9. júlí 2025, andmælti kærandi þeirri afmörkun sem borgin legði til grundvallar og fullyrti að leið­beiningar borgarinnar væru ekki í samræmi við úrskurð úrskurðarnefndarinnar. Í sama erindi setti kærandi fram beiðni til Reykjavíkurborgar, sem að sögn kæranda var afmörkuð með enn skýrari hætti en beiðnin frá 20. ágúst 2024, um sambærilegar upplýsingar og í því erindi en auk þess með viðbót sem fól í sér ósk um upplýsingar fyrir árið 2025.
 
Með erindi Reykjavíkurborgar, dags. 15. september 2025, var beiðni kæranda frá 9. júlí hafnað. Í erindinu var kæranda leiðbeint um kæruheimild til úrskurðarnefndar um upplýsingamál, sbr. 1. mgr. 20. gr. upplýsingalaga, nr. 140/2012, og kærufrest, sbr. 1. mgr. 22. gr. sömu laga.
 
Kæran var kynnt Reykjavíkurborg með erindi, dags. 28. nóvember 2025. Umsögn borgarinnar barst úrskurðarnefndinni 22. desember 2025. Umsögn borgarinnar var kynnt kæranda samdægurs og honum gefinn kostur á að koma á fram­færi frekari at­huga­semd­um. Þær bárust 5. janúar 2025. Óþarft er að rekja frekar það sem fram kemur í gögnum málsins, sbr. 31. gr. stjórnsýslulaga, nr. 37/1993. Úrskurðarnefndin hefur haft hliðsjón af öllum gögnum málsins við úrlausn þess.
 

Niðurstaða

Samkvæmt 1. mgr. 22. gr. upplýsingalaga, nr. 140/2012, skal mál samkvæmt 20. gr. laganna borið skriflega undir úrskurðarnefnd um upplýsingamál innan 30 daga frá því að þeim sem fór fram á aðgang að gögnunum var tilkynnt um ákvörðun stjórnvaldsins. Reykjavíkurborg synjaði beiðni kæranda með bréfi, dags. 15. september 2025, en kæra barst úrskurðarnefndinni hinn 27. nóvember sama ár. Hún barst því 43 dögum eftir að kærufrestur samkvæmt 1. mgr. 22. gr. upplýsingalaga rann út. Í svari Reykjavíkurborgar til kæranda var honum leiðbeint bæði um kæruheimild þá sem kveðið er á um í 1. mgr. 20. gr. upp­lýs­inga­laga og kærufrest samkvæmt 1. mgr. 22. gr. laganna.
 
Samkvæmt 1. tölul. 1. mgr. 28. gr. stjórn­sýslu­laga, nr. 37/1993, skal hins vegar vísa kæru frá ef hún berst að liðnum kærufresti, nema afsakanlegt verði talið að kæran hafi ekki borist fyrr eða veigamiklar ástæður mæli með því að kæran verði tekin til meðferðar. Eins og hér stendur á telur úrskurðarnefndin skilyrði ákvæðisins ekki uppfyllt. Að mati úrskurðar­nefnd­arinnar verður því ekki talið afsakanlegt að kæra hafi ekki borist fyrr. Úrskurðarnefndinni er því ekki annað fært en að vísa kærunni frá.
 

Úrskurðarorð

Kæru Sameykis stéttarfélags í almannaþjónustu, sem barst úrskurðarnefnd um upplýsingamál hinn 27. nóvember 2025, er vísað frá úrskurðarnefndinni.
 
 
 
 
Trausti Fannar Valsson, formaður
Hafsteinn Þór Hauksson
Sigríður Árnadóttir