27 febrúar 2026
/
Frumvarpsdrög um rýmkun á fjárfestingarheimildum lífeyrissjóða í samráðsgátt
Drög að frumvarpi um breytingar á lagaákvæðum sem gilda um magntakmarkanir sem lífeyrissjóðum er gert að fylgja við fjárfestingar hafa verið birt í samráðsgátt. Frumvarpið tekur til breytinga á ákvæðum um fjárfestingarheimildir lífeyrissjóða með það að markmiði að bæta framkvæmd núgildandi reglna og styrkja umgjörð fjárfestinga sjóðanna.
Áform um fyrirhugaðar breytingar voru birt 9. febrúar sl. Efni frumvarpsdraganna er í samræmi við áformin að því frátöldu að horfið var frá því að leggja til boðaðar breytingar á ákvæðum sem varða tryggingastærðfræðinga.