27 febrúar 2026

/

Páll Winkel skipaður ráðuneytisstjóri í dómsmálaráðuneytinu

{image.Description}
Páll Winkel

Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra, hefur ákveðið að skipa Pál Winkel í embætti ráðuneytisstjóra dómsmálaráðuneytisins. Páll tekur við embættinu á næstu dögum.

Páll Winkel lauk cand.jur. prófi frá Háskóla Íslands árið 2000 og stjórnendanámi frá Leadership Management International árið 2014. Með háskólanámi og eftir útskrift á árunum 1995 til 2001 starfaði hann í afleysingum hjá lögreglu við embætti sýslumannsins í Kópavogi og síðar við embætti lögreglustjórans í Reykjavík. Páll starfaði sem lögfræðingur hjá Fangelsismálastofnun ríkisins frá 2001 til 2005, var framkvæmdastjóri Landssambands lögreglumanna frá árinu 2005 til 2007 og aðstoðarríkislögreglustjóri árið 2007.

Á árunum 2008 til 2024 gegndi hann embætti forstjóra Fangelsismálastofnunar ríkisins þar til hann fór í leyfi til að starfa sem sérfræðingur í háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytinu. Á árinu 2025 var hann settur framkvæmdastjóri Menntasjóðs námsmanna og sinnti því út árið en hefur frá áramótum gegnt starfi sérfræðings í félags- og húsnæðismálaráðuneytinu í verkefni um nýja Miðstöð um öryggisráðstafanir.

Páll býr yfir víðtækri reynslu af störfum innan stjórnsýslunnar og hefur jafnframt yfirgripsmikla þekkingu af rekstri og stjórnun opinberra stofnana. Hann hefur setið í fjölmörgum nefndum og tekið þátt í alþjóðlegu samstarfi.

Dómsmálaráðuneytið auglýsti embættið laust til umsóknar þann 25. nóvember sl. og bárust alls 6 umsóknir um embættið. Ráðherra skipaði þriggja manna nefnd til að meta hæfni umsækjenda um embættið, sbr. 19. gr. laga nr. 15/2011 um Stjórnarráð Íslands og fór hæfnisnefndin yfir umsóknir allra umsækjenda með tilliti til menntunar- og hæfniskrafna.