27 febrúar 2026
/
Samið um stuðning við verkefni Glóar er varða fötluð börn og ungmenni
Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, og Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, undirrituðu í dag samning við Gló um stuðning við fötluð börn og ungmenni í sumar. Markmiðið er að draga úr félagslegri einangrun fatlaðra barna og ungmenna og styðja við fjölskyldur þeirra.
Mennta- og barnamálaráðuneytið ásamt félags- og húsnæðismálaráðuneytinu hafa stutt við verkefni Glóar er lúta að sumardvöl fatlaðra barna og ungmenna undanfarin ár. Verkefnin voru upphaflega styrkt í heimsfaraldri COVID-19 með góðum árangri. Stuðningurinn nemur 58 m.kr.
Um Gló
Gló vinnur að aukinni samfélagsþátttöku barna og ungmenna með fjölbreyttar áskoranir og stuðningsþarfir. Gló miðlar þekkingu, veitir snemmtæka íhlutun og endurhæfingarþjónustu á Gló Æfingastöð og býður upp á sumarbúðir og margvísleg tómstundatækifæri á vegum Reykjadals.