27 febrúar 2026

/

Strandsiglingar í alfaraleið – hvað þarf til? Skýrsla starfshóps um strandsiglingar

Starfshópur um strandsiglingar sem innviðaráðherra skipaði haustið 2025 skilaði skýrslu undir yfirskriftinni „Strandsiglingar í alfaraleið – hvað þarf til?“ í febrúar 2026. Í skýrslunni leggur starfshópurinn fram sjö tillögur um aðgerðir stjórnvalda sem væru til þess fallnar að styrkja forsendur fyrir strandsiglingar og vöruflutninga á sjó. Tillögur starfshópsins verða nú teknar til skoðunar í ráðuneytinu.

Það er mat starfshópsins að auknir strandflutningar muni auka öryggi á þjóðvegum landsins, draga úr kostnaði ríkisins við þjóðvegakerfið vegna þungaflutninga og styðja við aðgerðir í loftslagsmálum.