02 mars 2026

/

Mál nr. 112/2025 - Úrskurður

KÆRUNEFND HÚSAMÁLA

ÚRSKURÐUR

uppkveðinn 2. mars 2026

í máli nr. 112/2025

 

A

gegn

B

 

Kærunefndina skipa í þessu máli Auður Björg Jónsdóttir lögmaður, Þorvaldur Hauksson lögmaður og Eyþór Rafn Þórhallsson verkfræðingur. 

Aðilar málsins eru:

Sóknaraðili: A

Varnaraðili: B

Krafa sóknaraðila er að viðurkennt verði að varnaraðila beri að endurgreiða leigu að fjárhæð 96.969 kr. sem hún greiddi vegna júlí 2025, en til vara að varnaraðila beri að endurgreiða 90.713 kr. vegna tímabilsins 3.-31. júlí.

Varnaraðili krefst þess að kröfu sóknaraðila verði hafnað.

Eftirtalin gögn voru lögð fyrir kærunefnd:

Kæra sóknaraðila, móttekin 19. ágúst 2025.

Greinargerð varnaraðila, dags. 9. september 2025.

I. Helstu málsatvik og ágreiningsefni

Aðilar gerðu munnlegan leigusamning um miðbik árs 2024 um leigu sóknaraðila á herbergi varnaraðila að C. Ágreiningur er um kröfu sóknaraðila um endurgreiðslu á leigu vegna júlí 2025 á grundvelli þess að varnaraðili hafi rift leigusamkomulagi þeirra með ólögmætum hætti.

II. Sjónarmið sóknaraðila

Sóknaraðili kveðst ávallt hafa innt leigugreiðslu af hendi fyrsta hvers mánaðar. Það hafi hún jafnframt gert 1. júlí 2025 þegar hún hafi millifært 96.969 kr. inn á reikning varnaraðila fyrir leigu fyrir þann mánuð. Ágreiningur hafi komið upp á milli aðila 3. þess mánaðar og varnaraðili krafist þess að sóknaraðili yfirgæfi hið leigða tafarlaust og hafi hann vísað henni á dyr. Kalla hafi þurft lögreglu á vettvang til að aðstoða sóknaraðila við að fá muni sína afhenta. Fyrir liggi lögregluskýrsla þar sem aðstæðum og atvikum sé nánar lýst. Þrátt fyrir að varnaraðili hafi rift leigusamkomulagi aðila með ólögmætum hætti og vísað sóknaraðila á dyr hafi hann ekki orðið við beiðni sóknaraðila um endurgreiðslu á þegar greiddri leigu vegna júlímánaðar.

III. Sjónarmið varnaraðila

Varnaraðili gerir athugasemdir við að sóknaraðili hafi lagt kæruna fram.

IV. Niðurstaða           

Samkvæmt gögnum málsins greiddi sóknaraðili 96.969 kr. í leigu vegna júlí inn á reikning varnaraðila. Kveður hún ágreining hafa komið upp aðila á milli með þeim afleiðingum að varnaraðili hafi með ólögmætum rift leigusamningi þeirra og krafist þess að hún yfirgæfi hið leigða þegar í stað. Varnaraðili hefur ekki mótmælt þessu. Þá liggur fyrir lögregluskýrsla þar sem fram kemur að sóknaraðili fékk aðstoð lögreglu við að sækja muni sína úr hinu leigða 3. júlí 2025. Kærunefnd telur því rétt að leggja til grundvallar málatilbúnað sóknaraðila um að varnaraðili hafi með ólögmætum hætti rift leigusamningi aðila 3. júlí og þann dag féllu þar með réttindi og skyldur beggja aðila niður, sbr. 3. mgr. 61. gr. húsaleigulaga nr. 36/1994. Ber varnaraðila þegar af þeirri ástæðu að endurgreiða sóknaraðila þá leigu sem hún hafði innt af hendi vegna tímabilsins 3.-31. júlí 2025 að fjárhæð 90.713 kr.

Í 7. mgr. 85. gr. húsaleigulaga er kveðið á um að úrskurðir kærunefndar húsamála séu bindandi gagnvart málsaðilum og sæti ekki kæru til æðra stjórnvalds. Málsaðilum sé heimilt að bera úrskurði nefndarinnar undir dómstóla innan átta vikna frá því að úrskurður sé kveðinn upp og frestast þá réttaráhrif hans uns dómur fellur. Samkvæmt 9. mgr. 85. gr. laganna eru úrskurðir kærunefndar aðfararhæfir án undangengins dóms.

 

ÚRSKURÐARORÐ:

Varnaraðila ber að endurgreiða sóknaraðila 90.713 kr.

 

Reykjavík, 2. mars 2026

 

 

Auður Björg Jónsdóttir

 

 

Þorvaldur Hauksson                                 Eyþór Rafn Þórhallsson