02 mars 2026
/
Mál nr. 16/2025 - Úrskurður
KÆRUNEFND HÚSAMÁLA
ÚRSKURÐUR
uppkveðinn 2. mars 2026
í máli nr. 16/2025
A
gegn
B
Kærunefndina skipa í þessu máli Auður Björg Jónsdóttir lögmaður, Þorvaldur Hauksson lögmaður og Eyþór Rafn Þórhallsson verkfræðingur.
Aðilar málsins eru:
Sóknaraðili: A
Varnaraðili: B
Krafa sóknaraðila er að viðurkennt verði að uppsögn varnaraðila á leigusamningi aðila sé ólögmæt.
Krafa varnaraðila er að kröfu sóknaraðila verði hafnað.
Niðurstaða
Ágreiningur var með aðilum um hvort rétt hafi verið staðið að uppsögn á leigusamningi aðila. Undir rekstri málsins hjá kærunefnd upplýsti sóknaraðili að samkomulag hefði náðst með aðilum hér um og leigutíma lokið 1. júlí 2025. Aðilar hafa því ekki lengur lögvarða hagsmuni af úrlausn kærunefndar um gildi uppsagnarinnar og málinu vísað frá með vísan til 85. gr. húsaleigulaga nr. 36/1994.
ÚRSKURÐARORÐ:
Kröfu sóknaraðila er vísað frá.
Reykjavík, 2. mars 2026
Auður Björg Jónsdóttir
Eyþór Rafn Þórhallsson Þorvaldur Hauksson