03 mars 2026
/
Húsnæði við hæfi: Rætt um sértæk búsetuúrræði á samráðsþingi um málefni fatlaðs fólks
Rætt var um sértæk húsnæðisúrræði fyrir fatlað fólk á árlegu samráðsþingi sem fram fór í dag. Þetta er fjórða þingið sem blásið er til í tengslum við landsáætlun um innleiðingu samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Yfirskrift þingins í ár var „Húsnæði við hæfi: Heimili sem styður sjálfstætt líf“.
„Umræðan er bæði tímabær og brýn og snertir einn af grundvallarþáttum mannréttinda: Réttinn til að eiga heimili og lifa sjálfstæðu lífi í samfélaginu, á eigin forsendum,“ sagði Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, í opnunarávarpi þingsins.
Ráðherra lagði áherslu á að rétturinn til að lifa sjálfstæðu lífi og án aðgreiningar í samfélaginu snerist um grundvallarspurningarnar „Hvar bý ég? Með hverjum bý ég? Hvaða stuðning fæ ég – og hvernig?“
„Oft er svarið við þessum spurningum ekki byggt á raunverulegu vali fólks, heldur á því framboði sem er á húsnæði og þjónustu hverju sinni. Verkefnið hér í dag er að skoða hvernig hægt er að breyta þessu,“ sagði hann enn fremur.
Árið er ... 2036
Þátttakendur á samráðsþinginu voru fatlað fólk, fulltrúar hagsmunasamtaka fatlaðs fólks, fulltrúar ríkis og sveitarfélagaog fulltrúar frá háskólasamfélaginu. Unnið var í hópum og leitað svara við eftirfarandi spurningum:
Hvernig getum við mætt margvíslegum þjónustuþörfum með sveigjanlegri og fjölbreyttari hætti?
Árið er 2036 og húsnæðisúrræði eru sjálfbær, sanngjörn og sveigjanleg – hvað þarf að breytast á leiðinni þangað?
Niðurstöðurnar úr hópavinnunni munu nýtast inn í vinnu starfshóps sem félags- og húsnæðismálaráðherra skipaðinýverið um sértæk húsnæðisúrræði fyrir fatlað fólk. Hópurinn skilar ráðherra tillögum í lok mánaðar.
Auk ráðherra fluttu erindi á þinginu þau Laufey Elísabet Löve, doktor í fötlunarfræðum og lektor við Menntavísindasvið HÍ og Arnar Haraldsson frá HLH ráðgjöf.
Samráðsþingið fór fram í dag og gekk afar vel.
Hópavinna á borðum.
Rætt um hvernig hægt sé að mæta margvíslegum þjónustuþörfum með sveigjanlegri og fjölbreyttari hætti.
Ráðherra flytur ávarp sitt.
Málin krufin til mergjar.
Sagt frá umræðum á hverju borði.