03 mars 2026

/

Leiðarvísir, verkfæri og reynsla sveitarfélaga af aðlögun að loftslagsbreytingum

{image.Description}

Lokið hefur verið við fyrstu formlegu aðlögunaraðgerð íslenskra stjórnvalda sem nefnist „Áhrif loftslagsbreytinga og sveitarfélög“.

Aðgerðin, sem jafnframt er aðgerð C.10 í núgildandi byggðaáætlun, byggði á þátttöku fimm sveitarfélaga víðsvegar af landinu sem tóku þátt í að þróa aðferðafræði til að móta aðlögunaraðgerðir í heimasveit, gera áhættuskimun og viðkvæmnimat og loks aðgerðaáætlun fyrir aðlögun sveitarfélagsins að loftslagsbreytingum. Afrakstur þeirrar vinnu er útgáfa fyrsta leiðarvísis fyrir sveitarfélög um mótun aðlögunaraðgerða.

Leiðarvísirinn á að nýtast öllum sveitarfélögum á Íslandi óháð stærð, staðsetningu og mannafla og voru þátttökusveitarfélögin valin með það fyrir augum að verkefnið myndi spanna sem fjölbreyttastan hóp íslenskra sveitarfélaga, m.t.t. stærðar, íbúafjölda, staðsetningar, lykilatvinnugreina og loftslagstengdra áskorana.

Sveitarfélögin sem þátt tóku í verkefninu eru Akureyrarbær, Sveitarfélagið Hornafjörður, Fjallabyggð, Reykhólahreppur og Reykjanesbær. Verkefnið var á ábyrgð umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytis, en framkvæmt af Byggðastofnun, Skipulagsstofnun og Veðurstofu Íslands. Í aðlögunaráætlun sem umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið gaf út í lok síðasta árs varðar aðgerð D.3.4 veginn fram á við þar sem aðgerð C.10 sleppir.

Leiðarvísirinn var kynntur á málþinginu Aðlögun sveitarfélaga að áhrifum loftslagsbreytinga sem haldið var í Hofi á Akureyri í síðasta mánuði.

Hagnýtar leiðbeiningar fyrir sveitarfélög og nýtt vefsvæði loftslagsþjónustu Veðurstofu Íslands