04 mars 2026

/

Afhending trúnaðarbréfs

{image.Description}

 Guðmundur Árnason, sendiherra Íslands gagnvart Ítalíu og fastafulltrúi Íslands gagnvart stofnunum Sameinuðu Þjóðanna í Róm, afhenti Sergio Mattarella, forseta Ítalíu, trúnaðarbréf þann 19. febrúar í Quirinale höllinni, embættisbústað forseta Ítalíu. 

Við það tilefni ræddu Mattarella forseti og sendiherra m.a. diplómatísk samskipti ríkjanna, en 80 ár eru liðin í ár síðan fyrsti sendiherra Ítalíu gagnvart Íslandi var skipaður, Enn fremur var rætt um samstarf ríkjanna á alþjóðavettvangi - bæði löndin eru meðal stofnríkja NATO-, horfur á alþjóðavettvangi og öryggismál í Evrópu og málefni norðurslóða bar einnig á góma. Þá var rætt um samstarf ríkjanna í menningarmálum og miðlun menningararfsins, þar með talið ítalskar þýðingar Íslendingasagna. 

Mattarella forseti hefur setið síðan 2015 og var endurkjörinn forseti til 7 ára árið 2022. 

Ísland hefur starfrækt fastanefnd gagnvart stofnunum Sameinuðu Þjóðanna - FAO, WFP og IFAD - í Róm frá árinu 1999, með stuttum hléum. Þá var jafnframt sendiskrifstofa sem fór með tvíhliða samskipti við Ítalíu á árunum 2005-2009.