04 mars 2026
/
Beint streymi: Landssamráðsfundur um aðgerðir gegn ofbeldi og afleiðingum þess
Ríflega 450 manns sitja nú landssamráðsfund um aðgerðir gegn ofbeldi og afleiðingum þess sem haldinn er á Hilton. Hægt er að fylgjast með fundinum í beinu streymi. Landssamráðsfundurinn er haldinn að undirlagi Ragnars Þórs Ingólfssonar, félags- og húsnæðismálaráðherra en embætti ríkislögreglustjóra sér um skipulagningu og framkvæmd fundarins.
Markmið fundarins er að efla þverfaglegt samstarf og deila þekkingu um forvarnir og meðferð ofbeldismála. Sjónarhorn þolenda og leiðir til að fá gerendur til að breyta hegðun sinni til að draga úr ítrekuðum brotum verða í brennidepli.
„Ofbeldi er samfélagslegt mein sem krefst öflugrar samvinnu allra þeirra sem koma að málaflokknum. Landssamráðsfundurinn er einmitt mikilvægur liður í því og gefur okkur tækifæri til þess að hittast, fræðast, deila reynslu og ræða hvernig við eflum samstarfið og hvað hægt er að gera betur í að vinna gegn ofbeldi í samfélaginu og afleiðingum þess,“ segir Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra.
Dagskrá
Fundarstjóri: Guðmundur Ásgeirsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn við Mennta- og starfsþróunarsetur lögreglunnar
9:00-9:10 - Setning fundar, Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra
9:10-9:35 - „Líkamsmeiðingar, kynferðisofbeldi og manndráp: Hvernig eru ofbeldisbrot á Íslandi?“ Rannveig Þórisdóttir, sviðsstjóri þjónustusviðs ríkislögreglustjóri
9:40-9:55 - „Áföll og ofbeldi - og mögulegar afleiðingar.“ Sólveig Fríða Kjærnested, sérfræðingur í klínískri sálfræði á geðsviði Landspítalans
Viðmælandi: Þráinn Farestveit, framkvæmdastjóri Verndar fangahjálpar og varaformaður SÁÁ
09:55-10:10 - „Að brjóta ofbeldishringinn - meðferð foreldra sem beita ofbeldi.“ Paola Cardenas, teymisstjóri CPC-CBT, sálfræðingur og sérhæfður rannsakandi, Barnahús
10:10-10:30 - Kaffihlé (20 m)
10:35-11:00 - Pallborð: „Leiðin út - frá inngripi til endurhæfingar til að draga úr ítrekuðu ofbeldi.“
Eygló Harðardóttir stýrir umræðu:
-
Agnar Bragason, forstöðumaður Batahús karla
-
Sr. Hjalti Jón Sverrissson, fangaprestur Þjóðkirkjunnar
-
Guðmundur Ingi Þóroddsson, forstöðumaður Afstöðu
-
Matthías Matthíasson, geðheilsuteymi fanga
-
Karen Dröfn Hafþórsdóttir, sviðsstjóri meðferðarsviðs Fangelsismálastofnun
-
Sædís Jana Jónsdóttir, sérfræðingur hjá lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu
-
Þóra Kemp, skrifstofustjóri ráðgjafar hjá Kópavogsbæ
11:00-11:15 - „Nálgunarbann, brottvísun og ákvörðun um ákæru - verndarúrræði og framkvæmd í reynd”. Kristmundur Stefán Einarsson, lögreglustjórinn á Austurlandi
11:15- 11:30 - „Hvað er réttlæti í huga þolenda kynferðisbrota? “. Dr. Hildur Fjóla Antonsdóttir, lektor við lögreglufræði Háskólans á Akureyri
Viðmælandi: Guðný S. Bjarnadóttir, stjórnarformaður Vitundar
11:30-11:40 - „Taktu skrefið - hefur þú áhyggjur af kynferðislegri hegðun þinni?“ Anna Kristín Newton, sálfræðingur hjá Taktu skrefið
11:40-12:05 – Pallborð: „Hvaða breyttu birtingarmyndir ofbeldis eru þið að sjá á ykkar vettvangi?“
Magga Dóra Ragnarsdóttir stýrir umræðu:
-
Gunnlaug Thorlacius, yfirfélagsráðgjafi Landspítala
-
Jónas Hallgrímur Ottósson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglustjóranum á Vesturlandi
-
Linda Dröfn Gunnarsdóttir, framkvæmdastýra Samtaka um kvennaathvarf
-
Magnús Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands
-
Skúli Bragi Geirdal, sviðsstjóri Netvís/Fjölmiðlanefnd
-
Svala Jóhannesdóttir, stofnandi Matthildar, samtök um skaðaminnkun
-
Alma Ýr Ingólfsdóttir, formaður ÖBÍ réttindasamtaka
12:05–12:45 - Hádegishlé - Hlé á streymi – komum aftur kl. 14:45 að loknum vinnustofum með niðurstöður, lokapallborð og lokaorð.
---
12:45-14:20 - Vinnustofur
Þátttakendur velja vinnustofu eftir áhugasviði. Hver vinnustofa hefst á stuttum erindum og lýkur með umræðum og 3-4 umbótatillögum
Vinnustofa 1 – Þverfagleg þjónusta við þolendur ofbeldis
Vinnustofan er skipulögð af Öruggara Suðurlandi og þjónustumiðstöðvum fyrir þolendur ofbeldis
Fundarstjóri: Ellert Geir Ingvason, varðstjóri og samfélagslögga hjá lögreglustjóranum á Suðurlandi
-
Hvernig getur lögreglan eflt þverfaglega þjónustu við þolendur afbrota? Arndís Soffía Sigurðardóttir, settur lögreglustjóri á Suðurlandi og leiðtogi Öruggara Suðurlands
-
Þjónustumiðstöðvar við þolendur ofbeldis – staða þeirra og hlutverk lögreglu. Kristín Anna Hjálmarsdóttir, sjálfstætt starfandi kynjafræðingur og verkefnisstjóri INTERACT hjá RIKK
-
Hverjir leituðu til þolendamiðstöðva? - Niðurstöður þolendakönnunar lögreglunnar. Dylan Andres Herrera Chacon, sérfræðingur við gagnavísindadeild ríkislögreglustjóra
-
Kynning á starfsemi þolendamiðstöðvanna. Bjarmahlíð, Bjarkarhlíð, Sigurhæðir og Suðurhlíð
Umræður
Vinnustofa 2 – Heimilisofbeldi og landsbyggðin
Vinnustofan er skipulögð af Öruggara Norðurlandi vestra
Fundarstjóri: Ásdís Ýr Arnardóttir, sérfræðingur hjá lögreglustjóranum á Norðurlandi vestra og leiðtogi Öruggara Norðurlands vestra
-
“Augu þorpsins - félagslegt vald slúðurs, staðalímyndir og kynbundið ofbeldi drusluskömmunar.” Dr. Gréta Bergrún Jóhannesdóttir, sérfræðingur í byggðarannsóknum við Háskólann á Bifröst
-
Tilkynningar til barnaverndarþjónustu: Samanburður milli höfuðborgarsvæðis og landsbyggðar. Dr. Eva Dögg Sigurðardóttir, sérfræðingur í teymi tölulegra upplýsinga og rannsókna Barna- og fjölskyldustofa og lektor við félagsráðgjafardeild Háskóla Íslands
-
Heimilisofbeldi á landsbyggðinni – gögn lögreglu. Guðbjörg S. Bergsdóttir, deildastjóri gagnavísindadeildar ríkislögreglustjóra
-
Ráðgjöf til þolenda ofbeldis þar sem allir þekkja alla. Erla Hrönn Unnsteinsdóttir, framkvæmdastjóri Aflsins
Umræður
Vinnustofa 3 – Ofbeldi og eldra fólk
Vinnustofan er skipulögð afÖruggari Suðurnesjum
Fundarstjóri: María Pálsdóttir, lögreglufulltrúi hjá lögreglustjóranum á Suðurnesjum og leiðtogi Öruggari Suðurnesja
-
Heimilisofbeldi og eldra fólk. Daníel Reynisson, aðstoðarsaksóknari hjá lögreglustjóranum á Suðurnesjum
-
Heilsuvernd eldri borgara. Hildur Stefánsdóttir og Rósa Víkingsdóttir, hjúkrunarfræðingar hjá Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
-
Birtingarmynd ofbeldis gegn eldra fólki. Inga Dóra Jónsdóttir, teymisstýra Suðurhlíðar, miðstöð fyrir þolendur ofbeldis
-
Að hafa stjórn, fjármál og framtíðarskipulag. Ásdís Ármannsdóttir, sýslumaður á Suðurnesjum
-
Þjónusta við eldra fólk. Hilma Hólmfríður Sigurðardóttir og Margrét Arnbjörg Valsdóttir, teymisstjórar hjá Reykjanesbæ
-
Sjónarmið eldri borgara – Ágústa Gísladóttir frá félagi eldri borgara í Grindavík og Guðrún Eyjólfsdóttir frá öldungaráði Reykjanesbæjar
Umræður
Vinnustofa 4 – Drengir og karlar sem þolendur ofbeldis
Vinnustofan er skipulögð af ríkislögreglustjóra og EXIT, samráðsvettvangi um leið út úr afbrotum.
Fundarstjóri: Guðmundur Fylkisson, aðalvarðstjóri hjá lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu
-
„Alltaf elti skugginn.“ Sævar Þór Jónsson, lögfræðingur og rithöfundur
-
Að stíga fram í leit að réttlæti – Börnin í Bakkakoti. Snorri S. Vídal, lögmaður
-
Staða fatlaðra drengja og karla sem þolendur ofbeldis. Eiríkur Smith, réttindagæsla fatlaðs fólks hjá Mannréttindastofnun Íslands
-
Hvernig birtast áföll í meðferðarstarfi við vímuefnavanda? Elías Guðmundsson, forstöðumaður Krýsuvíkursamtakanna
Umræður
---
14:20–14:45 – Kaffihlé
14:45–15:05 – Kynning vinnustofa: Niðurstöður og tillögur
-
Fundarstjóri frá hverri vinnustofu kynnir helstu punkta frá umræðum
15:05 –15:35 - Pallborð: „Hvernig lítur framtíðin út í baráttunni gegn ofbeldi og afleiðingum þess? Hvaða skref viljum við taka í þeim efnum?“
Dr. María Rún Bjarnadóttir stýrir umræðu.
-
Grímur Grímsson, þingmaður og formaður starfshóps um mótun nýrrar löggæsluáætlunar
-
Margrét María Sigurðardóttir, forstöðumaður Mannréttindastofnun Íslands,
-
Salvör Nordal, umboðsmaður barna
-
Herdís Gunnarsdóttir, forstjóri Gæða- og eftirlitsstofnunar
-
Sigurður Örn Hilmarsson, varaþingmaður í allsherjar- og menntamálanefnd
-
Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir, þingmaður og formaður velferðarnefndar
15:35–15.50 - Samantekt og fundi slitið: Grímur Hergeirsson ríkislögreglustjóri
Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, flytur opnunarávarp landssamráðsfundarins.