04 mars 2026

/

Farsælt norrænt kvikmyndamenningarsamstarf í París

{image.Description}
Í kjölfar velgengni norrænu kvikmyndahátíðarinnar Visions nordiques sem haldin var í fyrsta sinn í fyrra heldur samstarf norrænu menningarmiðstöðvanna, sendiráðanna og kvikmyndahússins Le Grand Action áfram í ár, í formi norræns kvikmyndaklúbbs, « Ciné-club nordique ».

Framlag Íslands verður kvikmyndin Eldarnir eftir Uglu Hauksdóttur, með Vigdísi Hrefnu Pálsdóttur, Pilou Asbæk og Jóhanni G. Jóhannssyni í aðalhlutverkum. Þetta verður forsýning kvikmyndarinnar í Frakklandi og eftir sýninguna í kvikmyndahúsinu Le Grand Action verða umræður með aðstandenda myndarinnar.

Dagskrá norræna kvikmyndaklúbbsins í París er eftirfarandi :

17.02.2026 / Solo Mamma
Leikstjóri: Janicke Askevold
Aðalhlutverk: Lisa Loven Kongsli og Herbert Nordrum
Noregur, 2025

24.03.2026 / Historjá – Stitches for Sápmi
Leikstjóri: Thomas Jackson
Aðalhlutverk: Britta Marakatt-Labba og John-Isak Labba
Svíþjóð, 2022

21.04.2026 / The Last Viking
Leikstjóri: Anders Thomas Jensen
Aðalhlutverk: Mads Mikkelsen og Nikolaj Lie Kaas
Danmörk, 2025

19.05.2026 / Tove
Leikstjóri: Zaida Bergroth
Aðalhlutverk: Alma Pöysti, Krista Kosonen og Shanti Roney
Finnland, 2020

16.06.2026 / The Fires (Eldarnir)
Leikstjóri: Ugla Hauksdóttir
Aðalhlutverk:Vigdís Hrefna Pálsdóttir, Pilou Asbæk og Jóhann G. Jóhannsson
Ísland, 2025

Hagnýtar upplýsingar

Sýningarnar fara fram í kvikmyndahúsinu Le Grand Action
5 Rue des Écoles, 75005 París

Allar sýningar hefjast kl. 20:00.
Miðasala Le Grand Action.