04 mars 2026

/

Styrkir til þátttöku framhaldsskólanema í alþjóðlegum nemakeppnum í stærðfræði og raunvísindum

{image.Description}

Mennta- og barnamálaráðuneytið auglýsir til umsóknar styrki til þátttöku framhaldsskólanema í alþjóðlegum nemakeppnum í stærðfræði og raunvísindum, þ.e. eðlisfræði, efnafræði og líffræði, á árinu 2026.

Markmið styrkjanna er að fjölga nemendum í stærðfræði og raunvísindum. Heildarfjárhæð styrkja á árinu 2026 er allt að 18 m.kr. og eru styrkirnir veittir til að standa straum af ferðakostnaði vegna þátttöku í keppnunum.

Ef umsóknaraðili hefur áður fengið styrk þá þarf hann að hafa skilað greinargerð um hvernig styrknum var ráðstafað. Ekki eru veittir styrkir til verkefna sem hljóta styrki á fjárlögum eða falla undir aðra sjóði ráðuneytisins eða samninga sem gerðir hafa verið við ráðuneytið.

Umsóknir skulu sendar til mennta- og barnamálaráðuneytisins, á [email protected] í síðasta lagi 24. mars 2026.

Nánari upplýsingar veitir Fanney Hrafnsdóttir, fanney.hrafnsdottir hjá mrn.is.