05 mars 2026

/

Ísland í heiðurssæti á kvikmyndahátíð í Vannes í Frakklandi

{image.Description}
Kvikmyndahátíðin Rencontres du cinéma européen er að þessu sinni helguð Íslandi
Yfir 20 íslenskar kvikmyndir verða sýndar á kvikmyndahátíðinni Rencontres du cinéma européen sem fram fer í Vannes í Frakklandi dagana 25.-29. mars 2026. Hátíðin er haldin í 24. sinn og sendiráðið í París hefur í þetta sinn komið að undirbúningi hátíðarinnar með aðstandendum.

Kvikmyndirnar sem valdar hafa verið til sýningar á hátíðinni spanna nokkuð langt tímabil í íslenskri kvikmyndasögu, en kvikmyndin Útlaginn (1981) eftir Ágúst Guðmundsson er sú elsta og Ástin sem eftir er (2025) eftir Hlyn Pálmason sú nýjasta. Friðrik Þór Stefánsson kvikmyndaleikstjóri og Halldóra Geirharðsdóttir leikkona munu taka þátt í umræðum í kjölfar nokkurra kvikmyndasýninga.

Önnur menningardagskrá tengd Íslandi er fjölbreytt og má þar nefna tónleika með Lúpínu, kvikmyndatónleika og málþing um Ísland svo fátt eitt sé nefnt.

Dagskrá kvikmyndahátíðarinnar má finna hér.