06 mars 2026

/

Mál nr. 695/2025-Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 695/2025

Föstudaginn 6. mars 2026

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 27. október 2025, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 23. október 2025, um að fella niður rétt hans til atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði og að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um greiðslur atvinnuleysisbóta hjá Vinnumálastofnun 9. mars 2024 og var umsóknin samþykkt 11. apríl 2024. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 23. október 2025, var kæranda tilkynnt að réttur hans til atvinnuleysisbóta hefði verið felldur niður í þrjá mánuði á grundvelli 1. mgr. 59. gr., sbr. 1. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar með vísan til þess að hann hefði ekki tilkynnt stofnuninni um skráningu á launagreiðendaskrá. Kæranda var jafnframt tilkynnt að hann hefði fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur að fjárhæð 1.918.274 kr., að meðtöldu 15% álagi, sem yrðu innheimtar samkvæmt 2. mgr. 39. gr. laga nr. 54/2006.

Mál kæranda var tekið fyrir að nýju hjá Vinnumálastofnun í kjölfar kæru til úrskurðarnefndar velferðarmála. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 22. janúar 2026, var fjárhæð ofgreiddra atvinnuleysisbóta lækkuð í 1.159.085 kr., að meðtöldu 15% álagi, en að öðru leyti var fyrri ákvörðun staðfest með þeim rökum að sú ákvörðun hefði að geyma efnislega rétta niðurstöðu.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 27. október 2025. Með bréfi, dags. 30. október 2025, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 22. janúar 2026 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 27. janúar 2026. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Í kæru til úrskurðarnefndar kemur fram að kærandi hafi verið í skuld við Vinnumálastofnun vegna tímabilsins 18. mars 2024 til 30. september 2025 og að ákvörðun hafi verið tekin vegna þess. Kærandi sé nú þegar að greiða þá skuld óháð því hvort hann sé sammála þeirri ákvörðun eða ekki.

Að mati kæranda sé ákvörðun Vinnumálastofnunar sem tekin hafi verið þann 23. október 2025 ósanngjörn og byggð á ágiskunum en ekki raunverulegum tölum. Kærandi segi að lögunum hafi ekki verið fylgt þegar honum hafi verið gefið að sök að hafa haft tekjur frá október 2024 til febrúar 2025. Vinnumálastofnun hafi einfaldlega uppgötvað að launaskráin hans væri enn opin hjá íslenskum skattayfirvöldum og tekið ákvörðun um að neyða hann til að endurgreiða allar atvinnuleysisbætur sem hann hafi fengið á því tímabili.

Kærandi staðfesti með fylgigögnum kærunnar að hann hafi ekki fengið neinar tekjur eða laun frá neinni annarri opinberri stofnun eða einkafyrirtæki á tímabilinu október 2024 til febrúar 2025.

Kærandi vilji einnig taka fram að hann hafi ekki átt rétt á atvinnuleysisbótum í febrúar 2025 þar sem hann hafi unnið tímabundið hjá B og verið formlega ráðinn til C þann 20. febrúar 2025. Kærandi viðurkenni þetta opinberlega og sé tilbúinn að endurgreiða eingöngu bætur fyrir febrúarmánuð til Vinnumálastofnunar, upphæðina 210.000 kr. Ástæðan fyrir þessu hafi verið stjórnsýsluleg mistök hans og tímaleg skörun, ekkert annað.

Kærandi óski þess að unnið verði samkvæmt anda laganna, ekki aðeins samkvæmt bókstaf þeirra. Kærandi ítreki að ákvörðunin sem hafi verið tekin gegn honum hafi verið óréttmæt og ósanngjörn og byggð á ágiskunum sem hafi orðið til vegna misskilnings vegna fyrri skuldar.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi sótt um greiðslu atvinnuleysistrygginga með umsókn, dags. 9. mars 2024. Með erindi, dags. 11. apríl 2024, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hans hefði verið samþykkt og að útreiknaður bótaréttur væri 89%.

Þann 13. janúar 2025 hafi kæranda verið tilkynnt að þar sem hann hafi ekki uppfyllt skilyrði um greiðslur atvinnuleysisbóta á sama tíma og greiðslur sjúkradagpeninga stóðu hafi hann fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur að fjárhæð 1.538.770 kr. Því bæri honum að endurgreiða þá upphæð og verið boðað að skuld yrði skuldajafnað við síðar tilkomnar greiðslur þar til krafa væri að fullu greidd. Álag hafi ekki verið lagt á skuld kæranda.

Þann 3. apríl 2025 hafi úrskurðarnefnd velferðarmála kveðið upp úrskurð í máli kæranda nr. 25/2025. Með úrskurðinum hafi nefndin staðfest ákvörðun stofnunarinnar, dags. 13. janúar 2025, um innheimtu ofgreiddra atvinnuleysisbóta, samtals 1.538.770 kr., á tímabilinu 15. mars til 30. júní 2024 vegna greiðslna frá sjúkrasjóði D.

Í kjölfar reglulegs eftirlits Vinnumálastofnunar í september 2025 hafi komið í ljós að kærandi hafi verið með opna launagreiðendaskrá og verið með óútskýrðar tekjur úr eigin rekstri í febrúar 2025. Þá hafi kærandi einnig reynst vera með ótilkynntar tekjur frá C í febrúar 2025. Kærandi hafi hvorki tilkynnt stofnuninni um tilfallandi vinnu hjá C né um verktakavinnu á umræddu tímabili.

Með erindi, dags. 16. september 2025, hafi Vinnumálastofnun óskað eftir skýringum á umræddum tekjum. Engar skýringar eða gögn hafi borist frá kæranda. Í ljósi þess að kærandi hafi verið með ótilkynnt reiknað endurgjald samhliða greiðslum atvinnuleysisbóta hafi Vinnumálastofnun kannað hvort kærandi væri enn með opna launagreiðendaskrá samhliða greiðslum atvinnuleysisbóta. Kærandi hafi reynst vera með opna launagreiðendaskrá samhliða greiðslum atvinnuleysisbóta frá 1. október 2024 til 28. febrúar 2025.

Kærandi hafi ekki skilað umbeðnum gögnum innan þess frests sem honum hafi verið veittur né hafi stofnuninni borist skýringar hans á viðkomandi greiðslum. Með erindi, dags. 23. október 2025, hafi kæranda verið tilkynnt að þar sem hann hefði látið hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um nauðsynlegar upplýsingar sem hefðu haft áhrif á rétt hans til atvinnuleysistrygginga væri bótaréttur hans felldur niður frá og með þeim degi í þrjá mánuði. Ákvörðun þessi hafi verið tekin á grundvelli 1. mgr. 59. gr., sbr. 61. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Jafnframt hafi kæranda verið tilkynnt að samkvæmt fyrirliggjandi gögnum í máli hans hefði hann fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur, samtals að fjárhæð 1.918.274 kr., að meðtöldu álagi sem innheimtar yrðu skv. 2. mgr. 39. gr. laganna.

Ákvörðun Vinnumálastofnunar hafi verið kærð til úrskurðarnefndar velferðarmála þann 27. október 2025. Þann 25. nóvember 2025 hafi borist viðbótargögn frá kæranda til úrskurðarnefndar. Þar komi fram staðfesting af hálfu Skattsins að mistök hefðu verið gerið við afskráningu kæranda af launagreiðendaskrá. Kærandi hafi farið fram á að loka launagreiðendaskrá frá og með 11. apríl 2024 en vegna mistaka hjá Skattinum hafi afskráning kæranda af launagreiðendaskrá ekki verið framkvæmd fyrr en í október 2025. Umrædd gögn hafi þar af leiðandi ekki legið fyrir við afgreiðslu Vinnumálastofnunar á hinni kærðu ákvörðun.

Þar sem kærandi hafi ekki verið með opna launagreiðendaskrá samhliða greiðslum atvinnuleysisbóta muni skuld kæranda lækka til samræmis. Eftir standi þó að kærandi hafi látið hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um tilfallandi tekjur sínar að fjárhæð 140.424 kr. frá C. í febrúar 2025. Kærandi hafi ekki afskráð sig af atvinnuleysisbótum fyrr en þann 1. mars 2025. Af þeim sökum komi tekjur kæranda frá C því til skerðingar á þegar greiddum atvinnuleysisbótum í febrúar 2025. Skuld kæranda vegna ótilkynntra tekna frá C í febrúar 2025 hafi verið 19.636 kr. og þar að viðbættu 15% álagi 2.945 kr. Heildarskuld kæranda vegna ótilkynntra tekna í febrúar 2025 hafi því numið 22.581 kr. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar 22. janúar 2026 hafi kæranda verið tilkynnt að þar sem kærandi hefði vegna mistaka Skattsins verið ranglega skráður með opinn rekstur á tímabilinu 1. október 2024 til 28. febrúar 2025 hefði skuld kæranda verið lækkuð úr 1.918.274 kr. í 22.581 kr. Vinnumálastofnun telji af þeim sökum ekki tilefni til að falla frá viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 59. gr. og 1. mgr. 61. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Eins og áður komi fram þá hafi kæranda þann 13. janúar 2025 verið birt ákvörðun þar sem kæranda hafi verið gert að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur samtals 1.538.770 kr. sem rekja megi til þess að á tímabilinu 18. mars til 30. september 2024 hafi kærandi þegið ósamrýmanlegar greiðslur. Sú ákvörðun hafi verið staðfest með úrskurði nefndarinnar í máli nr. 25/2025 þann 3. apríl 2025. Athygli kæranda hafi verið vakin á því að eftirstöðvar skuldar vegna ákvörðunar, dags. 13. janúar 2025, væru samtals 1.538.770 kr. Sú skuld hafi verið send í innheimtu og hafi kærandi þegar greitt af skuld sinni samtals 262.260 kr. Að framangreindu leiði að heildarskuld kæranda sé nú 1.159.085 kr.

Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna.

Mál þetta lúti að ákvörðun Vinnumálastofnunar um innheimtu ofgreiddra atvinnuleysisbóta á tímabilinu 1. október 2024 til 28. febrúar 2025 sem kærandi hafi verið með opna launagreiðendaskrá, auk þess að vera með ótilkynntar tekjur frá C, samtals 140.424 kr. samhliða greiðslum atvinnuleysisbóta í febrúar 2025. Þar sem fyrir liggi að Skatturinn hafi gert mistök við afskráningu af launagreiðendaskrá kæranda og sá hluti af skuld kæranda hafi þegar verið felldur niður komi einungis til skoðunar ákvörðun Vinnumálastofnunar er varði ótilkynntar tekjur frá C í febrúar 2025.

Fyrir liggi að kærandi hafi ekki upplýst Vinnumálastofnun um tekjur sínar frá C í febrúar 2025. Í lögum um atvinnuleysistryggingar sé rík áhersla lögð á upplýsingaskyldu atvinnuleitanda gagnvart Vinnumálastofnun. Atvinnuleitanda beri meðal annars að tilkynna stofnuninni um allar breytingar á aðstæðum sem gætu haft áhrif á rétt viðkomandi til greiðslu atvinnuleysisbóta, sbr. 2. mgr. 14. gr. laganna. Í 3. mgr. 9. gr. sé sérstaklega kveðið á um skyldu atvinnuleitanda til að tilkynna stofnuninni um tekjur vegna tilfallandi vinnu. Segi þar orðrétt:

„Sá sem telst tryggður á grundvelli laga þessara skal upplýsa Vinnumálastofnun um allar breytingar sem kunna að verða á högum hans á þeim tíma er hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum eða anna það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum, svo sem um námsþátttöku, tekjur sem hann fær fyrir tilfallandi vinnu og hversu lengi vinnan stendur yfir.“

Vinnumálastofnun árétti að upplýsingaskylda atvinnuleitanda sé ítrekuð á öllum stigum umsóknarferlis um atvinnuleysisbætur. Við upphaf umsóknar séu atvinnuleitendum kynnt margvísleg atriði sem varði réttindi og skyldur, þar á meðal upplýsingaskyldu. Í lok umsóknarferlis staðfesti allir atvinnuleitendur að þeir hafi kynnt sér þau atriði. Þá sé á heimasíðu Vinnumálastofnunar að finna ítarlegar upplýsingar til handa atvinnuleitendum um skyldur þeirra sem tekjur hafi þegið samhliða greiðslu atvinnuleysisbóta og hvernig eigi að skrá slíkar tekjur.

Það sé ein meginskylda atvinnuleitanda að tilkynna stofnunni um störf sín og allar þær tekjur sem viðkomandi þiggi á meðan hann fái greiddar atvinnuleysisbætur. Á heimasíðu Vinnumálastofnunar megi finna upplýsingar og ítarlegt kennslumyndband um hvernig tilkynna beri tekjur til stofnunarinnar, en þar sé meðal annars tiltekið að tilkynna skuli stofnuninni um tekjur með minnst dagsfyrirvara og að skrá skuli fjárhæð tekna inn á „Mínum síðum“. Kærandi hafi ekki greint frá því að hann hafi starfað hjá C í febrúar 2025. Eðli máls samkvæmt geti atvinnuleitandi ekki þegið óskertar atvinnuleysistryggingar samhliða launuðum störfum. Kærandi hafi verið upplýstur um skyldu sína til að upplýsa um allar tekjur, hlutastarf, tilfallandi vinnu, tekjur eða fjármagnstekjur við upphaf vinnslu umsóknar hans, með tölvupósti, dags. 31. október 2023. Það sé því mat Vinnumálastofnunar að kæranda hefði mátt vera fullljóst að honum bæri að tilkynna stofnunni um upphaf og lok vinnu sinnar, auk þeirra tekna sem hann hafi aflað sér. Vinnumálastofnun vísi jafnframt í þessu samhengi til fyrri úrskurða úrskurðarnefndarinnar, t.a.m. í máli nr. 86/2013 þar sem fram komi að það sé á ábyrgð þess er fái greiddar atvinnuleysisbætur að tryggja að Vinnumálastofnun berist allra nauðsynlegar upplýsingar er geti haft áhrif á rétt hans til greiðslu atvinnuleysisbóta.

Í ljósi framangreinds sé það mat Vinnumálastofnunar að kærandi hafi ekki uppfyllt upplýsingaskyldu sína samkvæmt 3. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Af þeirri ástæðu hafi kæranda verið gert að sæta viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 59. gr. sömu laga en ákvæðið hljóði svo:

„Sá sem lætur hjá líða að veita nauðsynlegar upplýsingar skv. 14. gr. eða um annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. og 59. gr. a. Hið sama á við þegar hinn tryggði hefur látið hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á högum hans á því tímabili sem hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum sbr. 3. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 14. gr. Skal honum jafnframt verða gert að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur skv. 39. gr.“

Í 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar komi skýrt fram að láti einstaklingur hjá líða að tilkynna um tilfallandi tekjur samhliða greiðslum atvinnuleysisbóta skuli hann sæta biðtíma eftir greiðslum atvinnuleysisbóta.

Í 1. mgr. 61. gr. laga um atvinnuleysistryggingar komi fram að sá sem hafi áður sætt viðurlögum skv. 57-59. gr. eða biðtíma skv. 54. og 55. gr. og eitthvert þeirra tilvika sem þar greini eigi sér stað að nýju á sama tímabili skv. 29. gr. skuli ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en að þremur mánuðum liðnum frá þeim degi er ákvörðun Vinnumálastofnunar um ítrekunaráhrif hafi legið fyrir ef hann hafi fengið greiddar atvinnuleysisbætur skemur en samtals 24 mánuði á sama tímabili skv. 29. gr. Líkt og áður segi hafi kæranda verið gert að sæta biðtíma eftir greiðslum atvinnuleysisbóta í janúar 2025.

Á grundvelli 1. mgr. 59. gr., sbr. 61. gr. laga um atvinnuleysistryggingar hafi kæranda verið gert að sæta viðurlögum í þrjá mánuði. Ofgreiddar atvinnuleysisbætur hafi að auki verið innheimtar, samtals að fjárhæð 22.581 kr. að meðtöldu álagi.

Laun kæranda frá C. í febrúar 2025 hafi numið 140.424 kr. Tekjur kæranda komi til frádráttar atvinnuleysisbótum í samræmi við 1. mgr. 36. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sem hljóði svo:

„Þegar samanlagðar tekjur af hlutastarfi hins tryggða, sbr. 17. eða 22. gr., og atvinnuleysisbætur hans skv. 32. – 34. gr. eru hærri en sem nemur óskertum rétti hans til atvinnuleysisbóta að viðbættu frítekjumarki skv. 4. mgr. skal skerða atvinnuleysisbætur hans um helming þeirra tekna sem umfram eru. Hið sama gildir um tekjur hins tryggða fyrir tilfallandi vinnu, elli- eða örorkulífeyrisgreiðslur samkvæmt lögum um almannatryggingar, um elli- og örorkulífeyrisgreiðslur úr almennum lífeyrissjóðum, greiðslur úr sjúkrasjóðum stéttarfélaga sem eru komnar til vegna óvinnufærni að hluta, fjármagnstekjur hins tryggða og aðrar greiðslur sem hinn tryggði hefur haft á þeim tíma er hann fær greiddar atvinnuleysisbætur, sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum.“

Samkvæmt 3. gr. reglugerðar nr. 1455/2024 settri með stoð í 4. mgr. 36. gr. laga um atvinnuleysistryggingar hafi frítekjumarkið vegna ársins 2025 verið 89.817 kr. á mánuði.

Í febrúar 2025 hafi tekjur kæranda numið hærri fjárhæð en frítekjumark atvinnuleysisbóta. Umræddar tekjur hafi réttilega átt að koma til skerðingar á atvinnuleysisbótum í samræmi við 36. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Vinnumálastofnun hafi hins vegar ekki verið kunnugt um umræddar tekjur við útgreiðslur atvinnuleysisbóta til kæranda og því hafi myndast skuld við stofnunina, samtals að fjárhæð 19.636 kr.

Í 2. mgr. 39. gr. sé kveðið á um heimild Vinnumálastofnunar til að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur. Ákvæðið sé svohljóðandi:

„Hafi hinn tryggði fengið hærri atvinnuleysisbætur skv. 32. eða 33. gr. en hann átti rétt á samkvæmt álagningu skattyfirvalda eða öðrum ástæðum ber honum að endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd var að viðbættu 15% álagi. Hið sama gildir um atvinnuleysisbætur sem hinn tryggði hefur fengið greiddar fyrir tímabil er hann uppfyllti ekki skilyrði laganna. Fella skal niður álagið samkvæmt þessari málsgrein færi hinn tryggði rök fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka er leiddu til ákvörðunar Vinnumálastofnunar.“

Í framangreindu ákvæði sé mælt fyrir um heimild Vinnumálastofnunar til að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur. Í athugasemdum með 39. gr. frumvarpi til laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar sé sérstaklega áréttað að leiðrétting eigi við í öllum tilvikum sem kunni að valda því að atvinnuleitandi hafi fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur. Ástæða ofgreiðslunnar hafi m.ö.o. ekki áhrif á skyldu viðkomandi til að endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd hafi verið. Ákvæði 2. mgr. 39. gr. sé því fortakslaust að því er varði skyldu til þess að endurgreiða ofgreiddar bætur. Kæranda beri því að greiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur með 15% álagi. Heildarskuld kæranda vegna febrúar 2025 sé 22.581 kr. og þar af sé álag að fjárhæð 2.945 kr.

Eins og kveðið sé á um í lokamálslið 2. mgr. 39. gr. skuli fella niður álagið færi hinn tryggði rök fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka sem hafi leitt til skuldamyndunar. Í þessu samhengi vísi Vinnumálastofnun til þess sem að framan hafi verið rakið. Það sé mat Vinnumálastofnunar að kærandi hafi ekki uppfyllt upplýsingaskyldu sína gagnvart stofnuninni, sbr. 3. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Ein meginskylda atvinnuleitanda sé að tilkynna stofnuninni um allar tekjur og skýr fyrirmæli sé að finna þess efnis að slíkt skuli gera í gegnum „Mínar síður“ atvinnuleitanda. Jafnframt vísi Vinnumálastofnun til þess að það sé á ábyrgð þess sem fái greiddar atvinnuleysisbætur að tryggja að Vinnumálastofnun hafi borist nauðsynlegar upplýsingar sem geti haft áhrif á rétt hans til greiðslu atvinnuleysisbóta. Í ljósi framangreinds sé það mat Vinnumálastofnun að ekki sé tilefni til að fella niður álag á skuld kæranda.

Með vísan til alls framangreinds sé það niðurstaða Vinnumálastofnunar að kærandi skuli sæta viðurlögum á grundvelli 59. gr. laga, sbr. 61. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og að honum beri að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysistryggingar.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði á grundvelli 1. mgr. 59. gr., sbr. 1. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar og að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur.

Í 59. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um viðurlög við því að láta hjá líða að veita upplýsingar eða láta hjá líða að tilkynna um breytingar á högum. Ákvæði 1. mgr. 59. gr. er svohljóðandi:

„Sá sem lætur hjá líða að veita nauðsynlegar upplýsingar skv. 14. gr. eða um annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. og 59. gr. a. Hið sama á við þegar hinn tryggði hefur látið hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á högum hans á því tímabili sem hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum, sbr. 3. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 14. gr. Skal honum jafnframt verða gert að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur skv. 39. gr.“

Ákvæðið ber meðal annars að túlka með hliðsjón af ákvæði 3. mgr. 9. gr. laga nr. 54/2006 en samkvæmt því skal sá sem telst tryggður á grundvelli laganna upplýsa Vinnumálastofnun um allar breytingar sem kunna að verða á högum hans á þeim tíma er hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögunum, svo sem um námsþátttöku, tekjur sem hann fær fyrir tilfallandi vinnu og hversu lengi vinnan stendur yfir. Í 2. mgr. 14. gr. laganna kemur einnig fram að hinn tryggði skuli tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti samkvæmt 1. mgr., án ástæðulausrar tafar.

Í máli þessu liggur fyrir að kærandi var með tekjur frá C í febrúar 2025 samhliða greiðslu atvinnuleysisbóta frá Vinnumálastofnun. Þær upplýsingar bárust Vinnumálastofnun í kjölfar reglulegs eftirlits innan stofnunarinnar í september 2025.

Þann 11. apríl 2024 var kæranda send staðfesting á móttöku umsóknar um atvinnuleysisbætur þar sem tilgreint var að upplýsa þyrfti um allar tekjur, hlutastarf, tilfallandi vinnu, tekjur eða fjármagnstekjur á „Mínum síðum“ Vinnumálastofnunar. Kæranda var bent á að ítarlegri upplýsingar um réttindi og skyldur væri að finna undir liðnum „Hvað þarftu að vita“ á vefsíðu stofnunarinnar.

Með hliðsjón af framangreindu telur úrskurðarnefndin að kærandi hefði mátt vita af tilkynningarskyldu vegna tekna. Að því virtu og í ljósi upplýsingaskyldu 3. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 14. gr. laga nr. 54/2006 verður því fallist á það með Vinnumálastofnun að kærandi hafi brotið gegn skyldum sínum er hann tilkynnti stofnuninni ekki fyrir fram um framangreindar tekjur frá C. Í 1. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006 er skýrt kveðið á um beitingu viðurlaga við slíku broti.

Í 1. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um ítrekunaráhrif fyrri viðurlagaákvarðana. Ákvæðið er svohljóðandi:

„Sá sem hefur sætt viðurlögum skv. 57.–59. gr. eða biðtíma skv. 54. eða 55. gr. og eitthvert þeirra tilvika sem þar greinir á sér stað að nýju á sama tímabili skv. 29. gr. skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að þremur mánuðum liðnum frá þeim degi er ákvörðun Vinnumálastofnunar um ítrekunaráhrif liggur fyrir enda hafi hann fengið greiddar atvinnuleysisbætur skemur en samtals 24 mánuði á sama tímabili skv. 29. gr. Hafi hinn tryggði fengið greiddar atvinnuleysisbætur í samtals 24 mánuði eða lengur á sama tímabili skv. 29. gr. þegar atvik sem lýst er í 1. málsl. á sér stað skal hinn tryggði ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en hann uppfyllir skilyrði 31. gr.“

Samkvæmt gögnum málsins var bótaréttur kæranda felldur niður í tvo mánuði þann 31. mars 2025 á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006. Þar sem um sama bótatímabil er að ræða, sbr. 29. gr. laganna, kom til ítrekunaráhrifa samkvæmt 1. mgr. 61. gr. laganna, eða þriggja mánaða viðurlaga við ákvörðun Vinnumálastofnunar í október 2025.

Með hinni kærðu ákvörðun Vinnumálastofnunar voru einnig innheimtar ofgreiddar atvinnuleysisbætur, samtals að fjárhæð 1.918.274 kr., að meðtöldu 15% álagi. Sú fjárhæð var lækkuð í 22.581 kr. í kjölfar endurskoðunar Vinnumálastofnunar í janúar 2026.

Í 39. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um leiðréttingu á atvinnuleysisbótum. Þar segir í 2. mgr. að hafi hinn tryggði fengið hærri atvinnuleysisbætur samkvæmt 32. eða 33. gr. laganna en hann hafi átt rétt á samkvæmt álagningu skattyfirvalda eða af öðrum ástæðum beri honum að endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd hafi verið, að viðbættu 15% álagi. Hið sama gildi um atvinnuleysisbætur sem hinn tryggði hafi fengið greiddar fyrir tímabil er hann uppfyllti ekki skilyrði laganna. Í sömu málsgrein segir einnig að fella skuli niður álagið samkvæmt málsgreininni færi hinn tryggði rök fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka er leitt hafi til ákvörðunar Vinnumálastofnunar.

Samkvæmt framangreindu er ljóst að endurkröfuheimild Vinnumálastofnunar er meðal annars bundin við það að einstaklingur hafi fengið greiddar hærri atvinnuleysisbætur en hann átti rétt á. Þar sem kærandi tilkynnti ekki fyrir fram um tekjur sem hann fékk greiddar fyrir febrúar 2025 fékk hann hærri atvinnuleysisbætur en hann átti rétt á. Ákvæði 2. mgr. 39. gr. laganna er fortakslaust að því er varðar skyldu til þess að endurgreiða ofgreiddar bætur. Aftur á móti skal fella niður 15% álag færi hinn tryggði rök fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka er leitt hafi til ákvörðunar Vinnumálastofnunar. Líkt og áður greinir tilkynnti kærandi ekki Vinnumálastofnun fyrir fram um þær tekjur sem hann fékk framangreindan mánuð og er því að mati úrskurðarnefndarinnar ekki tilefni til að fella niður álagið sem stofnunin lagði á endurgreiðslukröfuna.

Með vísan til framangreinds er ákvörðun Vinnumálastofnunar, um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði á grundvelli 1. mgr. 59. gr., sbr. 1. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar og að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur á grundvelli 2. mgr. 39 sömu laga, staðfest.

 


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt A, til atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði og að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur að fjárhæð 22.581 kr., er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

 

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir