06 mars 2026
/
Mál nr. 800/2025-Úrskurður
Úrskurðarnefnd velferðarmála
Mál nr. 800/2025
Föstudaginn 6. mars 2026
A
gegn
Vinnumálastofnun
Ú R S K U R Ð U R
Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.
Með kæru, dags. 11. desember 2025, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 27. nóvember 2025, um að fella niður rétt hans til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði.
I. Málsatvik og málsmeðferð
Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 1. september 2025 og var umsóknin samþykkt 18. september 2025. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 27. nóvember 2025, var kæranda tilkynnt að réttur hans til atvinnuleysisbóta hefði verið felldur niður í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar með vísan til þess að hann hefði hafnað þátttöku í vinnumarkaðsúrræði. Í kjölfarið lagði kærandi fram ný gögn og var mál hans því tekið fyrir að nýju. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 11. desember 2025, var fyrri ákvörðun stofnunarinnar staðfest með vísan til þess að hún hefði að geyma efnislega rétta niðurstöðu, þrátt fyrir ný gögn.
Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 11. desember 2025. Með bréfi, dags. 16. desember 2025, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 3. febrúar 2026 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 4. febrúar 2026. Athugasemdir bárust ekki.
II. Sjónarmið kæranda
Í kæru til úrskurðarnefndar kemur fram að kærandi mótmæli viðurlögum sem hann hafi verið beittur fyrir að hafa ekki mætt á einn Teams fund sem hann hafi verið boðaður á þann 13. nóvember 2025. Kærandi hafi verið tilbúinn klukkan 10:00 þann 13. nóvember til að fara á fundinn en honum hafi ekki tekist að komast inn á hann þrátt fyrir að vera með skriflegar leiðbeiningar um hvað hann ætti að gera. Kærandi kunni ekki mikið á tölvur og hafi ekki getað fengið aðstoð þar sem hann hafi verið einn heima. Kærandi sé ekki að leita að vinnu þar sem reyni á tölvukunnáttu en hann sé vinnuvélamaður með meirapróf.
Að mati kæranda séu tveggja mánaða viðurlög mjög harkaleg fyrir að missa af einum fundi. Kærandi myndi skilja að fá viðvörun sérstaklega þar sem stutt hafi verið í jólin.
III. Sjónarmið Vinnumálastofnunar
Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi sótt um greiðslur atvinnuleysisbóta með umsókn, dags. 1. september 2025. Með bréfi, dags. 18. september 2025, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hans hefði verið samþykkt og að útreiknaður bótaréttur væri 100%.
Þann 22. október 2025 hafi kærandi verið boðaður á rafrænan kynningarfund sem hafi verið haldinn í gegnum forritið Teams þann 28. október 2025, klukkan 11:00. Í boðuninni hafi kærandi verið upplýstur um að hann gæti „setið“ fundinn hvort heldur sem væri með farsíma eða tölvu. Athygli kæranda hafi verið vakin á að um skyldumætingu væri að ræða og að ótilkynnt forföll og forföll án gildrar ástæðu gætu valdið stöðvun á greiðslum atvinnuleysistrygginga. Boðun þessi hafi verið send með smáskilaboðum í símanúmer kæranda og tölvupósti á skráð netfang í kerfi stofnunarinnar. Smáskilaboðin hafi borist í símtæki kæranda þann 22. október 2025, klukkan 09:56. Kærandi hafi hvorki mætt á boðaðan fund né tilkynnt forföll.
Þann 10. nóvember 2025 hafi kærandi aftur verið boðaður á rafrænan kynningarfund sem hafi verið haldinn í gegnum forritið Teams þann 13. nóvember 2025, klukkan 10:00. Boðun þessi hafi verið sambærileg boðun frá 22. október 2025 og send með smáskilaboðum í símanúmer kæranda og tölvupósti á skráð netfang í kerfi stofnunarinnar. Smáskilaboðin hafi borist í símtæki kæranda þann 10. nóvember 2025, klukkan 09:07. Kærandi hafi hvorki mætt á boðaðan fund né tilkynnt forföll.
Vinnumálastofnun hafi formlega óskað eftir skýringum frá kæranda á fjarveru á boðaðan fund með erindi, dags. 17. nóvember 2025. Þann 18. nóvember 2025 hafi eftirfarandi skýringar borist frá kæranda:
„Þar sem ég er ekki mjög tæknivæddur hélt ég að það væri ekkiert mál að tengjast fundinum. Ég ég gat það ekki komst að því að TEAMS er ekki í tölvunni sem ég ætlaði að nota og ég einn heima þar sem allir voru í vinnu og skóla.
Auðvitað hefði ég átt að vera búinn að ganga úr skugga um að allt væri eins og það á að vera svolítið áður.“
Með erindi stofnunarinnar, dags. 27. nóvember 2025, hafi kæranda verið birt ákvörðun um tveggja mánaða biðtíma eftir greiðslum atvinnuleysisbóta til hans á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.
Þann 27. nóvember 2025 hafi kærandi sent svar við ákvörðun stofnunarinnar í gegnum „Mínar síður“ þar sem hann hafi mótmælt úrskurði stofnunarinnar og ítrekað takmarkaða tölvukunnáttu sína. Mál kæranda hafi verið tekið til umfjöllunar að nýju í samræmi við beiðni kæranda. Niðurstaða endurskoðunar stofnunarinnar á ákvörðun sinni, dags. 27. nóvember 2025, hafi verið kynnt kæranda bréfleiðis þann 11. desember 2025 þar sem beiðni kæranda hafi verið hafnað.
Framangreind ákvörðun Vinnumálastofnunar hafi verið kærð til úrskurðarnefndar velferðarmála 11. desember 2025. Í kæru sé að finna sömu skýringar kæranda og áður hafi komið fram um litla tölvukunnáttu hans.
Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna.
Á meðal skilyrða greiðslu atvinnuleysisbóta sé að viðkomandi sé í virkri atvinnuleit, sbr. a. lið 1. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Samkvæmt [h. lið] 1. mgr. 14. gr. felist virk atvinnuleit meðal annars í því að hafa vilja og getu til að taka þátt í þeim vinnumarkaðsaðgerðum er standi til boða. Í 13. gr. laga um vinnumarkaðsúrræði nr. 55/2006 komi einnig fram skylda þess sem teljist tryggður samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar til að taka þátt í þeim vinnumarkaðsúrræðum sem Vinnumálastofnun ákveði. Ákvæði 13. gr. sé svohljóðandi:
„Atvinnuleitandi skal fylgja eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum skv. 11. gr. og gera það sem í hans valdi stendur til að bæta vinnufærni sína til þess að verða virkur þátttakandi á vinnumarkaði. Þar á meðal skal atvinnuleitandi ávallt mæta í viðtöl til ráðgjafa Vinnumálastofnunar skv. 14. gr. og taka þátt í þeim vinnumarkaðsúrræðum er standa honum til boða. Atvinnuleitandi skal jafnframt tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti án ástæðulausrar tafar.“
Þá sé í 1. mgr. 14. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir kveðið á um að ráðgjafar Vinnumálastofnunar skuli hafa eftirlit með því að atvinnuleitendur fylgi eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum. Ráðgjafar stofnunarinnar skulu boða atvinnuleitendur reglulega í viðtöl eftir þörfum hvers og eins atvinnuleitanda.
Á grundvelli 7. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar beri atvinnuleitendum að hafa reglulegt samband við Vinnumálastofnun eftir nánara fyrirkomulagi sem stofnunin ákveði. Í tilfelli kæranda hafi hann verið boðaður til viðtals hjá stofnuninni en samkvæmt 3. mgr. 13. gr. laganna sé Vinnumálastofnun heimilt að boða atvinnuleitendur til stofnunarinnar með sannanlegum hætti meðal annars til að kanna hvort breytingar hafi orðið á högum þeirra sem kunni að hafa áhrif á rétt þeirra til greiðslu atvinnuleysisbóta. Atvinnuleitendur skulu þá vera reiðubúnir að mæta til stofnunarinnar með mjög skömmum fyrirvara. Ákvæði 3. mgr. 13. gr. hafi verið bætt við lög um atvinnuleysistryggingar með 4. gr. laga nr. 134/2009, en í athugasemdum með 4. gr. segi að gert sé ráð fyrir að stofnunin geti boðað atvinnuleitanda með allt að sólarhringsfyrirvara á þá skrifstofu sína sem næst sé lögheimili viðkomandi.
Fyrir liggi að kærandi hafi ekki sinnt boðunum á Teams fundi Vinnumálastofnunar þann 28. október 2025 og 13. nóvember 2025. Kærandi hafi fengið sendar tilkynningar í tölvupósti, farsíma og á „Mínum síðum“ um boðanir á umrædda kynningarfundi. Á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar hafi kæranda því verið gert að sæta viðurlögum vegna fjarveru sinnar á kynningarfundinn 13. nóvember 2025. Ákvæðið sé svohljóðandi:
„Sá sem hafnar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. Hið sama gildir þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma skv. 6. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr.“
Í 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar komi skýrt fram að hafni einstaklingur þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli hann sæta tveggja mánaða biðtíma eftir atvinnuleysisbótum. Hið sama gildi þegar hinn tryggði mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma. Í greinargerð með frumvarpi til laga um atvinnuleysistryggingar sé efni 58. gr. laganna nánar skýrt. Þar segi að Vinnumálastofnun annist skipulag vinnumarkaðsaðgerða og að litið sé svo á að þeim sem tryggðir séu innan atvinnuleysistryggingakerfisins sé skylt að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum. Þá sé jafnframt tekið fram í greinargerðinni að bregðist hinn tryggði þeirri skyldu leiði það til viðurlaga í formi biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.
Af framangreindum lagaákvæðum sé ljóst að heimildir Vinnumálastofnunar til að boða til sín atvinnuleitendur, og sömuleiðis skyldur atvinnuleitenda til að verða við slíkri boðun, séu ríkar. Þá sé það fortakslaust skilyrði svo unnt sé að aðstoða atvinnuleitendur við að fá starf við hæfi og gefa þeim kost á þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsaðgerðum að atvinnuleitendur sinni þeim boðunum sem þeim séu send. Í skilmálum sem umsækjendur samþykki þegar þeir sæki um greiðslur atvinnuleysistrygginga komi fram að umsækjendum sé skylt að mæta í viðtöl, fundi, námskeið og önnur úrræði sem Vinnumálastofnun boði til.
Skýringar kæranda á ástæðum þess að hann hafi ekki mætt til boðaðs kynningarfundar hafi verið þær að hann hafi ekki yfir að ráða tæknikunnáttu og að hann hafi ekki verið búinn að ganga úr skugga um það hvort hann gæti setið slíkan fund. Rétt sé að taka fram að atvinnuleitendur þurfi ekki að hafa sérstakt forrit uppsett á tækjum sínum til að taka þátt í rafrænum fundum stofnunarinnar.
Að mati Vinnumálastofnunar geti skýringar kæranda ekki talist gildar í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar. Í því samhengi bendi Vinnumálastofnun á að kærandi hafi fengið tilkynningar um opna fundi stofnunarinnar í heimabæ sínum án þess að hafa sinnt þeim boðunum nokkuð. Tilkynningar hafi verið sendar 6. október 2025 vegna viðveru starfsmanna stofnunarinnar þann 8. október 2025 og 10. nóvember 2025 vegna viðveru starfsmanna stofnunarinnar þann 12. nóvember 2025. Í báðum tilfellum hafi atvinnuleitendum á svæðinu, þ.m.t. kæranda verið veittar upplýsingar um að ráðgjafar stofnunarinnar yrðu á skrifstofu stéttarfélags á milli klukkan 10:00 til 12:00. Þó það hafi ekki verið skyldumæting hafi það staðið öllum til boða að ræða við starfsmenn stofnunarinnar og fá svör við hvaða fyrirspurnum sem þeir kynnu að hafa.
Kærandi hafi í upphafi umsóknar verið upplýstur með fullnægjandi hætti um hvernig honum yrðu send mikilvæg skilaboð og tilkynningar. Boðun á umrædda fundi hafi borist kæranda með sannanlegum hætti, sbr. lokamálslið 7. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Leiðbeiningar um hvaða tæki þyrfti til að tengjast fundi hafi verið sendar með boðun, auk þess hafi sérstaklega verið tekið fram að tilkynningar um forföll skyldu berast án ástæðulausrar tafar.
Í ljósi framangreinds og þeirrar ríku skyldu sem hvíli á atvinnuleitendum til þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum sé það mat Vinnumálastofnunar að kærandi hafi brugðist skyldum sínum samkvæmt 13. gr. laga um vinnumarkaðsúrræði, 7. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og 3. mgr. 13. gr. sömu laga. Með því að hafa ekki mætt til kynningarfunda þann 28. október og 13. nóvember 2025 hafi kærandi hafnað þátttöku í vinnumarkaðsúrræði og honum beri því að sæta viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 58. gr.
Með vísan til alls framangreinds sé það niðurstaða Vinnumálastofnunar að kærandi skuli sæta viðurlögum í formi tveggja mánaða biðtíma eftir greiðslum atvinnuleysistrygginga á grundvelli 1. mgr. 58. gr.
IV. Niðurstaða
Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.
Í 58. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um viðurlög við því ef þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað. Segir þar í 1. mgr. að sá sem hafni þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í að minnsta kosti fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur, skuli ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt VII. kafla laganna fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila. Hið sama gildi þegar hinn tryggði mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma samkvæmt 6. mgr. 9. gr., nú 7. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr. laganna.
Í athugasemdum greinargerðar við frumvarp það er varð að lögum nr. 134/2009, um breytingu á lögum nr. 54/2006, segir meðal annars um viðurlög við því að virða ekki boðun Vinnumálastofnunar:
„Í ljósi þess að mikilvægt er að Vinnumálastofnun geti haldið reglulegu sambandi við þá sem fá greiddar atvinnuleysisbætur, ekki síst til að geta fylgst með gangi atvinnuleitar og hvort stofnunin þurfi að koma að frekari stuðningi við viðkomandi, er lagt til að það kunni að varða viðurlögum á grundvelli laganna í þeim tilvikum er atvinnuleitendur virða ekki boðun stofnunarinnar skv. 1. gr. frumvarps þessa. Á þetta ekki síst við þegar fá störf eru í boði og auknar líkur eru á að atvinnuleitin dragist á langinn. Jafnframt er lagt til að sama gildi þegar atvinnuleitendur eru boðaðir til stofnunarinnar í því skyni að kanna hvort sá hinn sami uppfylli enn skilyrði laganna, sbr. 4. og 6. gr. frumvarps þessa. Er því gert ráð fyrir að sömu viðurlög komi til og eiga við þegar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað.“
Í 7. mgr. 9. gr. kemur fram að sá sem telst tryggður á grundvelli laganna skuli eftir að umsókn hans hafi verið samþykkt og á þeim tíma sem hann fái greiddar atvinnuleysisbætur eða sæti biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum hafa reglulegt samband við Vinnumálastofnun eftir nánara fyrirkomulagi sem stofnunin ákveði. Þegar Vinnumálastofnun upplýsi umsækjanda um að stofnunin hafi samþykkt umsókn um atvinnuleysisbætur skuli hún jafnframt upplýsa hlutaðeigandi um með hvaða hætti stofnunin muni koma upplýsingum eða öðrum boðum til hans meðan á atvinnuleit hans standi. Komi Vinnumálastofnun upplýsingum eða boðum til umsækjanda með þeim hætti sem stofnunin hafi tiltekið við hlutaðeigandi teljast upplýsingarnar eða boðin hafa borist með sannanlegum hætti.
Þá segir í 3. mgr. 13. gr. laga nr. 54/2006 að Vinnumálastofnun sé heimilt að boða þann tryggða til stofnunarinnar með sannanlegum hætti á þeim tíma sem hann fái greiddar atvinnuleysisbætur eða sæti biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum, meðal annars til að kanna hvort breytingar hafi orðið á högum hans sem kunni að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögunum. Hinn tryggði skuli þá vera reiðubúinn að mæta til stofnunarinnar með mjög skömmum fyrirvara.
Samkvæmt gögnum málsins var kærandi þann 22. október 2025 boðaður á rafrænan kynningarfund sem haldinn var í gegnum forritið Teams þann 28. október 2025. Kærandi hvorki mætti á fundinn né boðaði forföll. Þann 10. nóvember 2025 var kærandi aftur boðaður á rafrænan kynningarfund sem haldinn var í gegnum forritið Teams þann 13. nóvember 2025. Kæranda var greint frá því að hann gæti verið í tölvu eða snjallsíma og veittar leiðbeiningar um hvernig ætti að tengjast fundinum. Jafnframt var athygli kæranda vakin á því að ekki yrði hægt að fá nýja boðun í viðtal en forföll yrðu send Greiðslustofu þar sem tekin yrði afstaða til mögulegra viðurlaga í formi tímabundinnar eða varanlegrar greiðslustöðvunar. Hið sama gilti um ótilkynnt forföll. Þá var kærandi hvattur til að hafa samband ef eitthvað væri óljóst eða hann óskaði frekari upplýsinga. Kærandi hvorki mætti á fundinn né boðaði forföll.
Af hálfu kæranda hefur komið fram að hann hafi ekki mætt á boðaðan fund þar sem honum hafi ekki tekist að tengjast fundinum. Þá hefur kærandi vísað til þess að tölvukunnátta hans sé ekki mikil.
Í 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 kemur skýrt fram að sá sem hafni þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli sæta viðurlögum á grundvelli ákvæðisins og hið sama gildir þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma. Að mati úrskurðarnefndar velferðarmála hefur kærandi ekki fært fram viðunandi skýringar sem réttlæta að hann hafi ekki mætt á boðaðan fund hjá Vinnumálastofnun. Í því samhengi má benda á að kærandi hefði getað haft samband við Vinnumálastofnun til að fá aðstoð við að tengjast fundinum, eða að minnsta kosti upplýsa stofnunina strax um aðstæður sínar.
Ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 er því staðfest.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð
Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 27. nóvember 2025, um að fella niður rétt A, til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði, er staðfest.
F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála
Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir