06 mars 2026
/
Mál nr. 824/2025-Úrskurður
Úrskurðarnefnd velferðarmála
Mál nr. 824/2025
Föstudaginn 6. mars 2026
A
gegn
Vinnumálastofnun
Ú R S K U R Ð U R
Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.
Með kæru, dags. 22. desember 2025, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 19. desember 2025, um að fella niður rétt hennar til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði.
I. Málsatvik og málsmeðferð
Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 26. ágúst 2024 og var umsóknin samþykkt 17. september 2024. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 19. desember 2025, var kæranda tilkynnt að bótaréttur hennar væri felldur niður í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar þar sem hún hefði hafnað þátttöku í vinnumarkaðsúrræði. Í kjölfarið lagði kærandi fram ný gögn og var mál hennar því tekið fyrir að nýju. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 2. janúar 2026, var fyrri ákvörðun stofnunarinnar staðfest með vísan til þess að hún hefði að geyma efnislega rétta niðurstöðu, þrátt fyrir ný gögn.
Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 22. desember 2025. Með bréfi, dags. 5. janúar 2026, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 5. febrúar 2026 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dagsettu sama dag. Athugasemdir bárust ekki.
II. Sjónarmið kæranda
Í kæru til úrskurðarnefndar greinir kærandi frá því að hún hafi haft raunverulegan áhuga á að mæta á námskeiðið þar sem tölvan hennar sé ekki nógu góð og hún eigi erfitt með pappírsvinnu. Kærandi hafi þó átt við heilsufarvanda að stríða á þessum tíma, nánar tiltekið í hnjám og fótliðum vegna langvinnrar slímsekkjubólgu (bursitis) og liðagigtar (arthritis). Kærandi eigi ekki bifreið og það hafi verið erfitt fyrir hana að nýta almenningssamgöngur. Kærandi búi í B og hefði því þurft að skipta um strætisvagna til að komast á námskeiðið. Því hafi kærandi talið sér ófært að mæta.
Að sögn kæranda hafi hún ekki leitað til læknis þar sem hún sé sjálf menntuð sem læknir og hafi talið sig vita hvernig bregðast bæri við versnandi einkennum. Hún hafi ekki búist við því að hún þyrfti að staðfesta veikindi sín. Kærandi noti ekki tölvur reglulega og hafi því ekki verið að fylgjast daglega með tölvupóstinum sínum. Af þeim sökum hafi hún ekki séð tölvupóstinn frá Vinnumálastofnun þann 9. desember 2025. Kærandi hafi ekki talið að henni bæri að útskýra ástæður þess að hún hefði ekki mætt á námskeiðið. Nú átti kærandi sig á því hversu ábyrgðarlaust það hafi verið en hún hafi ekki gert það viljandi.
Kærandi búi með dóttur sinni í leiguhúsnæði þar sem þær greiði 280.000 kr. mánaðarlega, auk rafmagns og hita. Dóttir kæranda sé einnig atvinnulaus um þessar stundir. Nú muni þær ekki hafa tök á að greiða húsaleigu eða kaupa í matinn sem sé hræðileg staða fyrir þær. Kærandi sé í virkri atvinnuleit og sæki um störf daglega, meðal annars með því að fylgjast með atvinnuauglýsingum á Alfreð og heimsækja vinnustaði. Hún hafi þó ekki fengið nein atvinnutilboð. Kærandi bendi á að hún sé X ára og telji að aldur geti haft áhrif á möguleika hennar á vinnumarkaði. Hún hafi reynt að starfa á […] á síðasta ári en misst starfið vegna versnandi heilsufars. Kærandi sé miður sín yfir því að hún hafi ekki mætt og óski eftir endurskoðun á ákvörðun Vinnumálastofnunar.
III. Sjónarmið Vinnumálastofnunar
Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi sótt um greiðslu atvinnuleysistrygginga með umsókn, dags. 26. ágúst [2024.] Með erindi, dags. 17. september [2024], hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hennar hefði verið samþykkt og að útreiknaður bótaréttur væri 37%.
Þann 27. nóvember 2025 hafi kæranda verið sendur tölvupóstur og smáskilaboð í farsíma hennar frá stofnuninni, klukkan 10:25 þar sem hún hafi verið boðuð á námskeið. Umrætt námskeið hafi fjallað um hugbúnaðarforritin Word, Excel og Outlook 365. Námskeiðið hafi verið haldið dagana 1., 2. og 3. desember 2025 af hálfu Vinnumálastofnunar hjá Rafmennt á Stórhöfða 27 í Reykjavík. Umrædd boðun hafi verið send þann 27. nóvember 2025 á „Mínar síður“ kæranda, með tilkynningu á uppgefið netfang X og með smáskilaboðum í farsímanúmerið X. Samkvæmt skráningu Vinnumálastofnunar hafi smáskilaboðin borist í símtæki kæranda þann 27. nóvember 2025, klukkan 10:25. Kæranda hafi verið bent á að um skyldumætingu væri að ræða og öll forföll þyrfti að boða án ástæðulausrar tafar. Forföll bæri að tilkynna í gegnum „Mínar síður“ á vef Vinnumálastofnunar, vmst.is. Athygli kæranda hafi verið vakin á því að ótilkynnt forföll kynnu að leiða til stöðvunar greiðslna eftir viðeigandi ákvæðum laganna. Kærandi hafi hvorki mætt á boðað námskeið né boðað forföll.
Með erindi, dags. 9. desember 2025, hafi verið óskað eftir skriflegum skýringum kæranda á ástæðum þess að hún hefði ekki mætt á boðað námskeið. Áréttað hafi verið að ef kærandi hefði hafnað þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum án gildra ástæðna gæti hún þurft að sæta biðtíma eftir greiðslu atvinnuleysisbóta. Kæranda hafi verið veitt sjö virkra daga frestur til að koma að skýringum sínum. Engar skýringar hafi borist frá kæranda.
Með erindi, dags. 19. desember 2025, hafi kæranda verið tilkynnt um ákvörðun Vinnumálastofnunar að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til hennar sökum þess að hún hefði ekki sinnt boðun á námskeið. Ákvörðun þessi hafi verið tekin á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.
Þann 21. desember 2025 hafi tölvupóstur borist frá kæranda þar sem fram komi að hún hafi áhuga á efni námskeiðsins en hún hafi misst af fundinum þar sem skilaboð hafi farið fram hjá henni. Þá hafi hún sagst ekki vera með bíl og þyrfti því að ferðast með almenningssamgöngum. Það hafi verið erfitt að koma sér að Stórhöfða frá B með strætó. Þá hafi kærandi tiltekið að hún væri að glíma við veikindi.
Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna.
Eitt af almennum skilyrðum fyrir greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé að vera í virkri atvinnuleit, sbr. a. lið 1. mgr. 13. gr. Í 14. gr. laganna sé kveðið á um hvað felist í virkri atvinnuleit, en samkvæmt [h. lið] 1. mgr. 14. gr. felist virk atvinnuleit meðal annars í því að hafa vilja og getu til að taka þátt í þeim vinnumarkaðsaðgerðum er standi til boða. Í 13. gr. laga nr. 55/2006 um vinnumarkaðsaðgerðir komi einnig fram skylda þess sem teljist tryggður samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar til að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum sem Vinnumálastofnun ákveði. Ákvæði 13. gr. sé svohljóðandi:
„Atvinnuleitandi skal fylgja eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum skv. 11. gr. og gera það sem í hans valdi stendur til að bæta vinnufærni sína til þess að verða virkur þátttakandi á vinnumarkaði. Þar á meðal skal atvinnuleitandi ávallt mæta í viðtöl til ráðgjafa Vinnumálastofnunar skv. 14. gr. og taka þátt í þeim vinnumarkaðsúrræðum er standa honum til boða. Atvinnuleitandi skal jafnframt tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti án ástæðulausrar tafar.“
Þá sé í 1. mgr. 14. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir kveðið á um að ráðgjafar Vinnumálastofnunar skuli hafa eftirlit með því að atvinnuleitendur fylgi eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum.
Af framangreindum lagaákvæðum sé ljóst að heimildir Vinnumálastofnunar til að boða til sín atvinnuleitendur, og sömuleiðis skyldur atvinnuleitenda til að verða við slíkri boðun, séu ríkar. Þá sé það fortakslaust skilyrði svo unnt sé að aðstoða atvinnuleitendur við að fá starf við hæfi og gefa þeim kost á þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsaðgerðum að atvinnuleitendur sinni þeim boðunum sem þeim séu send. Í skilmálum sem umsækjendur samþykki þegar þeir sæki um greiðslur atvinnuleysistrygginga komi fram að umsækjendum sé skylt að mæta í viðtöl, fundi, námskeið og önnur úrræði sem Vinnumálastofnun boði til.
Fyrir liggi að kærandi hafi ekki uppfyllt mætingarskyldu á boðað námskeið. Áður hafi kærandi fengið senda tilkynningu í tölvupósti, farsíma og á „Mínum síðum“ atvinnuleitanda um boðun á umrætt námskeið. Kærandi hafi fengið nægan tíma til að bregðast við boðun stofnunarinnar. Á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar hafi kærandi verið innt eftir skýringum á fjarveru sinni með erindi, dags. 4. apríl 2025. Ákvæðið sé svohljóðandi:
„Sá sem hafnar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. Hið sama gildir þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma skv. 6. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr.“
Í 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar komi skýrt fram að hafni einstaklingur þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli hann sæta tveggja mánaða biðtíma eftir atvinnuleysisbótum. Hið sama gildi þegar hinn tryggði mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma. Í greinargerð með frumvarpi til laga um atvinnuleysistryggingar sé efni 58. gr. laganna nánar skýrt. Þar segi að Vinnumálastofnun annist skipulag vinnumarkaðsaðgerða og að litið sé svo á að þeim sem tryggðir séu innan atvinnuleysistryggingakerfisins sé skylt að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum. Þá sé jafnframt tekið fram í greinargerðinni að bregðist hinn tryggði þeirri skyldu leiði það til viðurlaga í formi biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.
Skýringar sem kærandi hafi veitt Vinnumálastofnun á fjarveru á boðað námskeið lúti að því að hún hafi misst af boðun á námskeið, hafi átt erfitt með að ferðast til að stunda námskeið og að hún hafi verið að glíma við veikindi.
Vinnumálastofnun meti skýringar kæranda ekki gildar. Boðun til umrædds námskeiðs hafi borist kæranda með sannanlegum hætti, sbr. lokamálslið 7. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Í boðun til kæranda hafi komið skýrt fram að um skyldumætingu væri að ræða og bent hafi verið á að fjarvera gæti leitt til greiðslustöðvunar á greiðslum atvinnuleysisbóta. Engar af þeim skýringum sem kærandi hafi veitt réttlæti það að hún hafi ekki tilkynnt um forföll áður en námskeið hafi byrjað. Því verði að líta svo á að kærandi hafi brugðist skyldu sinni sem atvinnuleitandi að mæta á boðað námskeið og hafi ekki gildar skýringar á fjarveru sinni.
Í ljósi alls framangreinds og þeirrar ríku skyldu sem hvíli á atvinnuleitendum til þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum sé það mat Vinnumálastofnunar að kærandi hafi brugðist skyldum sínum samkvæmt 13. gr. laga um vinnumarkaðsúrræði, 7. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og 3. mgr. 13. gr. sömu laga. Með því að hafa ekki uppfyllt mætingarskyldu á boðað námskeið hafi kærandi brugðist skyldum sínum og beri því að sæta tveggja mánaða biðtíma eftir greiðslum atvinnuleysisbóta á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.
Með vísan til alls framangreinds sé það niðurstaða Vinnumálastofnunar að kærandi skuli sæta viðurlögum í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.
IV. Niðurstaða
Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.
Í 58. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um viðurlög við því ef þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað. Segir þar í 1. mgr. að sá sem hafni þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í að minnsta kosti fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur, skuli ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt VII. kafla laganna fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila. Hið sama gildi þegar hinn tryggði mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma samkvæmt 6. mgr. 9. gr., nú 7. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr. laganna.
Í athugasemdum greinargerðar með frumvarpi til laga nr. 54/2006 segir meðal annars um 1. mgr. 58. gr. að ekki séu tilgreindar sérstakar vinnumarkaðsaðgerðir sem geti valdið því að hinn tryggði þurfi að sæta viðurlögum samkvæmt ákvæðinu heldur eigi það við um allar aðgerðir sem hinum tryggða sé boðið að taka þátt í til að auka líkur sínar á að fá vinnu við hæfi. Gert sé ráð fyrir að Vinnumálastofnun annist skipulag vinnumarkaðsaðgerða og að hinir tryggðu njóti faglegrar ráðgjafar sérfræðinga stofnunarinnar. Þannig megi ætla að þeim sem eru tryggðir innan atvinnuleysistryggingakerfisins verði boðin þátttaka í vinnumarkaðsúrræðum við hæfi en litið sé svo á að þeim sé skylt að taka þátt í slíkum úrræðum. Bregðist hinn tryggði þessum skyldum sínum leiði það til viðurlaga í formi biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.
Samkvæmt gögnum málsins var kærandi þann 27. nóvember 2025 boðuð á námskeið á vegum Vinnumálastofnunar sem haldið var dagana 1., 2. og 3. desember 2025. Kæranda var greint frá því að um skyldumætingu væri að ræða og ef upp kæmu forföll bæri að tilkynna þau án ástæðulausrar tafar á „Mínum síðum“ kæranda. Jafnframt var athygli kæranda vakin á því að ótilkynnt forföll gætu valdið stöðvun greiðslna eftir viðeigandi ákvæðum laganna. Þá var kærandi hvött til að hafa samband ef eitthvað væri óljóst eða hún óskaði frekari upplýsinga. Fyrir liggur að kærandi mætti ekki á námskeiðið og tilkynnti engin forföll.
Fyrir úrskurðarnefndinni hefur kærandi vísað til þess að hún hafi verið að glíma við heilsufarsvandamál á þessu tímabili. Jafnframt gerir kærandi grein fyrir því að það hefði verið erfitt fyrir hana að sækja námskeiðið þar sem hún eigi ekki bifreið og almenningssamgöngur væru henni erfiðar.
Framangreind boðun var send kæranda með sannanlegum hætti, þ.e. með tilkynningu í skráð tölvupóstfang og farsíma. Í 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 kemur skýrt fram að sá sem hafni þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli sæta viðurlögum á grundvelli ákvæðisins. Af gögnum málsins má ráða að kæranda hafi mátt vera fullljóst að henni bæri að mæta á boðað námskeið. Að mati úrskurðarnefndar velferðarmála hefur kærandi ekki fært fram viðunandi skýringar sem réttlæta fjarveru á boðað námskeið á vegum Vinnumálastofnunar. Þar sem kærandi hvorki mætti né boðaði forföll á námskeiðið kom til viðurlaga á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006.
Ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 er því staðfest.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð
Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 19. desember 2025, um að fella niður rétt A, til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði, er staðfest.
F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála
Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir