09 mars 2026
/
Mál nr. 20/2025. Úrskurður kærunefndar útboðsmála.
Úrskurður kærunefndar útboðsmála 24. febrúar 2026
í máli nr. 20/2025:
Kolibri ehf.
gegn
Fjársýslu ríkisins,
fjármála- og efnahagsráðuneytinu,
Hugsmiðjunni ehf.,
1xINTERNET ehf.,
Deloitte ehf.,
Aranja ehf.,
Júní Digital ehf.,
Origo ehf.,
Revera ehf.,
Advania Ísland ehf.,
Gangverk ehf. og
APRÓ ehf.
Lykilorð
Afturköllun ákvörðunar um val tilboða. Lögvarðir hagsmunir. Málskostnaður.
Útdráttur
Ágreiningur málsins laut að rammasamningsútboði varnaraðila þar sem óskað var eftir tilboðum í þjónustu þverfaglegra teyma fyrir eflingu stafrænnar þjónustu hins opinbera. Útboðið skiptist í tvo hluta og beindist kæra málsins að 1. hluta þess. Varnaraðilar tóku upphaflega ákvörðun um val tilboða í báðum hlutum útboðsins 21. maí 2025 en afturkölluðu þá ákvörðun í kjölfar ákvarðana kærunefndar útboðsmála í málinu og málum nr. 21/2025 og 24/2025. Í úrskurði nefndarinnar var lagt til grundvallar að kærandi, K, hefði í ljósi afturköllunarinnar ekki lögvarða hagsmuni af kröfu sinni um ógildingu ákvörðunar varnaraðila um val tilboða í 1. hluta útboðsins. Þá lagði nefndin til grundvallar að skilyrði væru ekki uppfyllt til að nefndin myndi veita álit sitt á skaðabótaskyldu varnaraðila gagnvart K en nefndin tók til greina kröfu hans um málskostnað úr hendi varnaraðila.
Með kæru móttekinni hjá kærunefnd útboðsmála 30. maí 2025 kærði Kolibri ehf. (hér eftir „kærandi“) rammasamningsútboð Fjársýslu ríkisins fyrir hönd fjármála- og efnahagsráðuneytisins (hér eftir „varnaraðilar“) nr. 23151 auðkennt „Multidisciplinary teams for enhancement of digital services“.
Kærandi krefst þess að kærunefnd útboðsmála felli úr gildi ákvörðun varnaraðila að hafna tilboði kæranda og taka tilboðum Hugsmiðjunnar ehf., 1xINTERNET ehf., Deloitte ehf., Aranja ehf., Júní Digital ehf., Origo ehf., Revera ehf., Advania Ísland ehf., Gangverk ehf. og APRÓ ehf. í 1. hluta útboðsins. Þá krefst kærandi þess að kærunefnd útboðsmála láti í ljós álit sitt á skaðabótaskyldu varnaraðila gagnvart kæranda, nema afstaða nefndarinnar til annarra krafna leiði til þess að það eigi ekki við. Að endingu krefst kærandi þess að varnaraðila verði gert að greiða honum málskostnað við að hafa kæruna uppi og að samningsgerð varnaraðila verði stöðvuð með vísan til 1. mgr. 110. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup þar til endanlega hefur verið skorið úr kæru málsins.
Varnar- og hagsmunaaðilum var kynnt kæran og gefinn kostur á að koma á framfæri athugasemdum. Advania Ísland ehf. sendi tölvupóst til nefndarinnar 12. júní 2025 og tilkynnti að félagið myndi ekki láta málið til sín taka að svo stöddu en áskildi sér rétt til að koma að athugasemdum á síðari stigum. Athugasemdir bárust 19. júní 2025 frá varnaraðilum, Hugsmiðjunni ehf., Gangverki ehf., Júní Digital ehf., Aranja ehf., Revera ehf. og Deloitte ehf. Athugasemdir bárust frá Origo ehf. degi síðar. 1xINTERNET ehf. og APRÓ ehf. lögðu ekki fram athugasemdir við kæruna.
Varnaraðilar krefjast þess að öllum kröfum kæranda verði hafnað og sjálfkrafa stöðvun samningsgerðar aflétt. Til vara krefjast varnaraðilar þess að kærunefnd ógildi eða felli einungis niður þær ákvarðanir eða skilmála sem hún telur ólögmæta en ógildi ekki útboðið í heild sinni. Allir hagsmunaaðilar sem lögðu fram athugasemdir í málinu krefjast þess að kröfum kæranda verði hafnað og sjálfkrafa stöðvun samningsgerðar verði aflétt.
Með erindi 20. júní 2025 til varnaraðila óskaði kærunefnd útboðsmála eftir að varnaraðilar afhentu nefndinni afrit af tilboðsgögnum hagsmunaaðila og önnur gögn sem kynnu að skipta máli við úrlausn málsins, svo sem matsblöð einstakra matsnefndarmanna og önnur gögn sem vörðuðu yfirferð á tilboðum. Varnaraðilar afhentu umbeðin gögn 25. sama mánaðar.
Með erindi 3. júlí 2025 til varnaraðila óskaði kærunefnd útboðmála eftir að varnaraðilar afhentu nefndinni afrit af tilboðsgögnum Revera ehf. Kærunefnd útboðsmála sendi tvö erindi til varnaraðila degi síðar. Með fyrsta erindinu óskaði nefndin meðal annars eftir að varnaraðilar myndu afhenda nefndinni aftur hluta þeirra gagna sem varnaraðilar höfðu afhent 25. júní 2025 með betra skipulagi á framsetningu gagnanna. Með öðru erindinu benti kærunefnd útboðsmála á að í tilteknu afhentu skjali kæmu fram ítarlegar upplýsingar um mat á tilboðum bjóðenda, meðal annars varðandi lágmarkskröfur útboðsins. Óskaði nefndin eftir upplýsingum hvort sambærileg yfirferð hefði átt sér stað í tengslum við mat á þekkingu og reynslu bjóðenda og, ef svo væri, hvar skjal með þeirri yfirferð væri að finna í framlögðum gögnum.
Varnaraðili svaraði erindum nefndarinnar með nokkrum tölvupóstum á tímabilinu 7. til 11. júlí 2025 og afhenti umbeðin gögn.
Við meðferð málsins bárust tvær aðrar kærur vegna sama útboðs, dags. 1. og 10. júní 2025, og eru þau mál rekin fyrir nefndinni undir málsnúmerunum 21/2025 og 24/2025.
Kærandi sendi viðbótarupplýsingar á nefndina með tölvupósti 7. ágúst 2025.
Með ákvörðunum 25. ágúst 2025 í máli þessu og máli nr. 21/2025 hafnaði kærunefnd útboðsmála kröfum um að aflétt yrði sjálfkrafa stöðvun samningsgerðar í útboðinu. Með ákvörðun sama dag tók nefndin ekki afstöðu til kröfu kæranda í máli nr. 24/2025 um að samningsgerð í útboðinu yrði stöðvuð.
Advania Ísland ehf. krafðist þess að fá aðgang að öllum gögnum málsins með tölvupósti 26. ágúst 2025 en kærunefnd útboðsmála afhenti fyrirtækinu í kjölfarið afrit af greinargerðum varnar- og hagsmunaaðila.
1xINTERNET ehf. sendi tölvupóst 28. ágúst 2025 til nefndarinnar og gerði tilteknar athugasemdir við ákvörðunina í málinu.
Með tölvupósti 28. ágúst 2025 til bjóðenda afturkölluðu varnaraðilar ákvarðanir um val tilboða í hinu kærða útboði frá 21. maí 2025 og tóku fram að bjóðendum yrði tilkynnt um nýja ákvörðun um val tilboða í samræmi við lög nr. 120/2016 um opinber innkaup eftir frekari yfirferð á tilboðsgögnum.
Með tölvupósti 25. september 2025 til kærunefndar útboðsmála tók kærandi fram að hann hygðist ekki skila inn frekari athugasemdum í málinu. Kærandi áréttaði þó kröfu um málskostnað með vísan til afturköllunar varnaraðila á fyrri ákvörðun um val tilboða og tók fram að veigarmikil rök væru fyrir því að nefndin úrskurðaði kæranda málskostnað á grundvelli 3. mgr. 111. gr. laga nr. 120/2016.
Varnaraðilar tóku nýja ákvörðun 1. desember 2025 um val tilboða í hinu kærða útboði og var tilboð kæranda á meðal þeirra tilboða sem voru valin í 1. hluta útboðsins. Í framhaldi ákvörðunarinnar beindu þrír bjóðendur kærum til nefndarinnar og eru þau mál rekin fyrir nefndinni undir málsnúmerunum 62/2025, 63/2025 og 64/2025.
Ekki þykir þörf á að gera nánar grein fyrir málatilbúnaði kæranda, varnaraðila eða hagsmunaaðila, sbr. 31. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 og 7. mgr. 108. gr. laga nr. 120/2016. Kærunefndin hefur haft hliðsjón af öllum gögnum málsins við úrlausn þess.
Niðurstaða
Kærandi krefst þess að ákvörðun varnaraðila 21. maí 2025, um að hafna tilboði hans og velja tilboð hagsmunaaðila í 1. hluta hins kærða útboðs, verði felld úr gildi. Varnaraðilar afturkölluðu ákvörðunina með tölvupósti 28. ágúst 2025. Kærandi hefur af þessum sökum ekki lögvarða hagsmuni af úrlausn um kröfuna og verður henni því hafnað, sbr. 1. mgr. 105. gr. laga nr. 120/2016 um opinber innkaup.
Kærandi krefst þess einnig að kærunefnd útboðsmála láti uppi álit sitt á skaðabótaskyldu varnaraðila gagnvart honum. Í 1. mgr. 119. gr. laga nr. 120/2016 kemur fram að kaupandi sé skaðabótaskyldur vegna þess tjóns sem brot á lögunum og reglum settum samkvæmt þeim hefur í för með sér fyrir fyrirtæki. Fyrirtæki þurfi einungis að sanna að það hafi átt raunhæfa möguleika á að verða valið af kaupanda og möguleikar þess hafi skerst við brotið.
Að mati kærunefndar útboðsmála verður að telja að ákvörðun varnaraðila 21. maí 2025 um val tilboða í 1. hluta útboðsins hafi farið í bága við lög nr. 120/2016, sbr. ákvarðanir nefndarinnar í þessu máli og máli nr. 21/2025. Á hinn bóginn liggur fyrir, eins og fyrr greinir, að sú ákvörðun hefur verið afturkölluð og hafa varnaraðilar tekið nýja ákvörðun um val tilboða í útboðinu. Að þessu gættu og að virtum atvikum að öðru leyti verður að leggja til grundvallar að kærandi hafi ekki sýnt fram á að möguleikar hans hafi skerst við það brot sem fólst í ákvörðun varnaraðila 21. maí 2025 um val tilboða í 1. hluta útboðsins, sbr. fyrrgreint skilyrði 1. mgr. 119. gr. laga nr. 120/2016. Verður þessari kröfu kæranda því hafnað.
Jafnframt þarf að taka afstöðu til kröfu kæranda um málskostnað. Svo sem að framan greinir var ákvörðun varnaraðila um val tilboða í 1. hluta útboðsins andstæð lögum nr. 120/2016. Þótt ekki hafi reynst nauðsynlegt að fella hana úr gildi vegna afturköllunar varnaraðila breytir það engu um rétt kæranda til málskostnaðar. Samkvæmt þessu verður varnaraðilum gert að greiða kæranda málskostnað í samræmi við það sem nánar greinir í úrskurðarorði og er þar tekið tillit til virðisaukaskatts.
Að endingu þykir rétt að nefna að með tölvupósti 26. ágúst 2025 óskaði Advania Ísland ehf. eftir afriti af öllum málsgögnum í þessu máli og málum nr. 21/2025 og 24/2025, þar með talið afritum af greinargerðum varnar- og hagsmunaaðila. Í framhaldi af beiðninni afhenti nefndin fyrirtækinu afrit af framkomnum athugasemdum varnar- og hagsmunaaðila í öllum málum. Í ljósi niðurstöðu málsins og að teknu tilliti til fyrirliggjandi atvika er beiðninni synjað að öðru leyti.
Úrskurðarorð:
Varnaraðilar, Fjársýsla ríkisins og fjármála- og efnahagsráðuneytið, greiði kæranda, Kolibri ehf., óskipt 1.250.000 krónur í málskostnað.
Öðrum kröfum kæranda er hafnað.
Beiðni Advania Íslands ehf., um afrit af öllum málsgögnum þessa máls, er hafnað.
Reykjavík, 24. febrúar 2026.
Reimar Pétursson
Sigurður Snædal Júlíusson
Auður Finnbogadóttir