09 mars 2026

/

Stjórnarfundur framkvæmdastjórnar Matvælaáætlunar SÞ. (WFP)

{image.Description}

Fyrsti stjórnarfundur ársins 2026 hjá framkvæmdastjórn Matvælaáætlunar SÞ. (WFP) var haldinn dagana 24.-26. febrúar.

Fyrir hönd utanríkisráðuneytisins sótti fundinn Jónas Haraldsson, yfirmaður mannúðarmála í utanríkisráðuneytinu, og Berglind Bragadóttir frá fastanefnd Íslands í Róm.

Á tvíhliðafundi með Rania Dagash-Kamara , aðstoðarframkvæmdastjóra WFP sem ber ábyrgð á tengslum við aðildarríki og nýsköpun, var farið yfir framlög Íslands til WFP og þakkaði hún sérstaklega fyrir hversu sveigjanleg framlög Íslands væru, sem væri ekki síst mikilvægt í neyðarástandi. Þess má geta að Ísland er fjórði stærsti greiðandi framlaga til WFP á árinu 2025 ef miðað er við höfðatölu. Rætt var hvernig efla mætti aðkomu íslenskra sérfræðinga hjá stofnuninni en enginn Íslendingur er nú starfandi hjá WFP.

Rania sagði einnig frá nýsköpunarhraðali WFP sem er staðsettur er í München í Þýskalandi og bauð íslenskum stjórnvöldum að koma og kynna sér þau verkefni sem hraðallinn hefur unnið að í samstarfi við starfsfólk WFP víðsvegar um heiminn. Þá tók hún jafnframt fram að hún væri að skoða heimsókn til Íslands á árinu.

Á meðan stjórnarfundum WFP stendur eru haldnir reglulegir fundir Norðurlandanna með öllum umdæmisstjórum WFP þar sem farið er yfir verkefni í einstökum löndum sem WFP sinnir og hverjar framtíðarhorfurnar eru. Á þessum fundum gefst tækifæri til þess að fylgja eftir verkefnum stofnunarinnar sem Ísland styrkir með beinu samtali við landaumsjónaraðila sem sjá um þau.  

Við lok stjórnarfundarins tók Cindy McCain, framkvæmdastjóri WFP, til máls og þakkaði starfsfólki sínu fyrir vel unnin störf og aðildarríkjum fyrir góðan fund. Í lokin tilkynnti hún að vegna heilsu sinnar yrði hún að láta af störfum og að Carl Skau, aðstoðarframkvæmdastjóri WFP, myndi gegna starfinu samhliða henni næstu þrjá mánuði eða þar til nýr framkvæmdastjóri yrði ráðinn.