10 mars 2026
/
Heiða Kristín Helgadóttir ráðin sérstakur ráðgjafi utanríkisráðherra
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra hefur ráðið Heiðu Kristínu Helgadóttur sem sérstakan ráðgjafa vegna undirbúnings við þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður Íslands við Evrópusambandið.
Heiða hefur áður komið að stjórnmálastarfi í gegnum Besta flokkinn, Bjarta framtíð og Viðreisn. Auk þess hefur hún víðtæka reynslu af nýsköpun og samskiptamálum bæði á Íslandi og erlendis.
Ráðningin er tímabundin og hyggst utanríkisráðherra ekki ráða sér annan aðstoðarmann meðan á verkefninu stendur.