13 mars 2026

/

Afhending trúnaðarbréfs í Mónakó

{image.Description}
Furstinn af Mónakó, Albert II, og María Mjöll Jónsdóttir, sendiherra
María Mjöll Jónsdóttir, sendiherra, afhenti Albert II. fursta af Mónakó trúnaðarbréf sitt fimmtudaginn 12. mars 2026.  Við það tækifæri ræddu þau sameiginleg áherslumál ríkjanna eins og norðurslóðamál, málefni hafsins og Smáþjóðaleikana sem haldnir verða í Mónakó 2027.  Sendiherra átti einnig fund með stofnun Alberts II. og sat hádegisverð með utanríkisráðherra furstadæmisins.