13 mars 2026

/

Bolungarvíkurkaupstaður tekur við rekstri vegarins á Bolafjalli

{image.Description}
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra ásamt Jóni Páli Hreinssyni, bæjarstjóra Bolungarvíkurkaupstaðar, og Jóni B. Guðnasyni framkvæmdastjóra varnarmálasviðs Landhelgisgæslu Íslands.

Utanríkisráðuneytið, Bolungarvíkurkaupstaður og varnarmálasvið Landhelgisgæslu Íslands (LHG) undirrituðu í gær samkomulag um veghald á Bolafjalli. Þar með hefur ábyrgð á rekstri vegarins á Bolafjalli verið flutt frá utanríkisráðuneytinu til Bolungarvíkurkaupstaðar.

Frá árinu 1985 hefur utanríkisráðuneytið haft á leigu landsvæði frá Bolungarvíkurkaupstað á Bolafjalli vegna reksturs ratsjárstöðvar, en vegur upp að stöðinni var lagður í kjölfarið. 

Varnarmálasvið Landhelgisgæslunnar fer með daglegan rekstur ratsjárstöðvarinnar og hefur auk þess sinnt viðhaldi vegarins í umboði utanríkisráðuneytisins. Vegurinn hefur verið opinn almennri umferð á sumrin, en þannig hefur verið tryggt aðgengi að vinsælum útsýnispalli á toppi Bolafjalls, sem tekinn var í notkun 1. september 2022. Síðan þá hefur umferð um fjallið stóraukist yfir sumartímann með tilheyrandi aukningu á viðhaldskostnaði.

Með samkomulaginu sem undirritað var í dag hefur Bolungarvíkurkaupstaður nú tekið yfir rekstur og viðhald vegarins í samráði við utanríkisráðuneytið og varnarmálasvið LHG og hyggst sveitarfélagið ráðast í framkvæmdir á veginum til að tryggja umferðaröryggi.

„Þetta er samkomulag sem gagnast öllum hlutaðeigandi, því nú geta Bolvíkingar byggt upp frekari ferðaþjónustu með því að fjárfesta í veginum til að gera hann enn aðgengilegri fyrir þær þúsundir ferðamanna sem heimsækja Bolafjall á hverju ári til að upplifa hið ólýsanlega útsýni sem við blasir uppi á fjallstindinum,“ segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra. „Á sama tíma er aðgengi starfsfólks að ratsjárstöðinni  tryggt og samráð okkar við sveitarfélagið um opnun og lokun vegarins þegar svo ber undir fest í sessi.“